06.03.1946
Neðri deild: 81. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1883 í B-deild Alþingistíðinda. (3120)
107. mál, húsmæðrafræðsla
Sigfús Sigurhjartarson:
Menntmn. mun verða við tilmælum ráðh. um að taka málið til nánari athugunar og bendingar, sem hann hefur gefið, og eins ef fleiri koma fram við frekari umræður. Það er rétt hjá ráðh., að athugandi er, hvort sveitar- eða bæjarstjórn eigi ekki að hafa meiri hl. í skólan. Það voru gerðar um það fyrirspurnir af mþn. í skólamálum, hvort kvenfélagasambönd væru starfandi í öllum héruðum. N. fékk ákveðin svör um, að svo væri, frá þeim kvennaþingum, sem haldin voru á þessum tíma. En það er rétt hjá ráðh., að eðlilegt væri að hafa einhver ákvæði í l., ef samböndin væru ekki til. Varðandi bendingar ráðh. viðvíkjandi 7. gr., að þar sé óvarlega til orða tekið, vil ég segja það, að í rauninni var gert ráð fyrir, að þessir skólar ættu allir að vera heimavistarskólar, því að álit þeirra, sem til var leitað, var á þá leið, að námið kæmi ekki að fullum notum á annan hátt. — Aths. við 11. gr. er af sama toga spunnin og er fram komin af sama skilningi, en n. gerir ekki ráð fyrir nema heimavistarskólum í því sambandi. — N. mun taka þessar aths. til athugunar og athuga, hvort ekki er rétt að gefa um þetta gleggri ákvæði.