16.04.1946
Efri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1887 í B-deild Alþingistíðinda. (3140)
107. mál, húsmæðrafræðsla
Gísli Jónsson:
Ég vildi aðeins spyrja hv. frsm., hvort ekki sé ósamræmi í ákvæðum 6. gr. og næstsíðustu málsgr. 7. gr. Þá finnst mér, að ef fellt er niður ákvæðið um, að skólarnir séu sjálfseignarstofnanir, þá verði að taka fram, hvernig búin eru rekin, t. d. ef tap verður á rekstrinum, hvort ríkið eða sveitarfélögin eiga að bera það tap.