16.04.1946
Efri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1951 í B-deild Alþingistíðinda. (3197)
139. mál, almannatryggingar
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. Ég skal ekki eyða löngum tíma í að ræða um þetta mál við þessa umr. Ég vil taka það fram, að ég hef sérstöðu aðeins um þá einu brtt., sem ég flyt, á þskj. 861, og lýtur hún að framkvæmdaratriðum í sambandi við starfrækslu trygginganna í umdæmum úti um landið. Samkv. ákvæðum frv. er gert ráð fyrir að kjósa tryggingan. í hverju tryggingaumdæmi og enn fremur þar, sem starfræktar eru gæzlustöðvar með sérstökum heilsugæzlun., og í þriðja lagi er svo gert ráð fyrir því, að Tryggingastofnunin sem stofnun hafi utan við þessar n. bæði skrifstofur og starfsfólk til þess að framkvæma þau störf, sem Tryggingastofnunin þarf að láta vinna á hverjum stað. Ég lít þannig á, að eðlilegast væri, að þessar tryggingan. starfræktu skrifstofur fyrir Tryggingastofnunina og kæmu fram sem umbjóðendur Tryggingastofnunarinnar og ábyrgir aðilar um framkvæmd trygginganna á hverjum stað og þessar n. ættu að hafa það skrifstofuhald, sem Tryggingastofnunin þyrfti að hafa í hverju umdæmi. — Það var fært fram sem rök gegn þessu af hv. frsm., að þessar tryggingan. væru ekki hugsaðar sem framkvæmdaaðili fyrir hönd Tryggingastofnunarinnar, heldur ættu þær að vera til þess að gæta hagsmuna hinna tryggðu gagnvart Tryggingastofnuninni og að öðru leyti í þágu Tryggingastofnunarinnar að fylgjast með starfrækslu tryggingamálanna á hverjum stað og gera till. um framkvæmd þeirra og umbætur. Ég skil þessa Tryggingastofnun hins vegar þannig, að það fari fjarri því, að hún sé eingöngu aðili þess opinbera gagnvart hinum tryggðu, heldur á hún jafnframt, að mínu áliti, fyrst og fremst að vera umbjóðandi hinna tryggðu og gæta hagsmuna þeirra, þ. e. a. s. að gæta þess, að þeir njóti í þeim tilfellum, sem við á, allra þeirra hlunninda, sem 1. þessi leyfa og sköpuð eru skilyrði til með fjárframlögum þess opinbera auk þeirra fjárframlaga, sem hinir tryggðu inna af hendi. Þess vegna getur það mjög vel farið saman, að n., sem að vísu geta um leið verið til þess að gæta hagsmuna hinna tryggðu, hafi á hendi framkvæmd tryggingastarfsemi fyrir stofnunina sjálfa. Ég sé ekki, að þar á milli ættu að verða neinir árekstrar, sem torvelduðu, að n. gætu verið aðili að framkvæmd trygginganna og um leið gætt hagsmuna hinna tryggðu, en hins vegar væri þetta einfaldara og um leið eðlilegra. N. eða aðrir nm. gátu ekki fallizt á þetta sjónarmið mitt, og þess vegna er það aðeins ég einn, sem stend að þessari brtt. hér Ég taldi hins vegar rétt, að þetta sjónarmið kæmi fram, og þess vegna flyt ég þessa brtt. og læt hv. d. skera úr um það, hvort hún telur þetta heppilegt eða ekki.
Um önnur atriði frv. og aðrar þær brtt. sem fyrir liggja, skal ég ekki ræða. Ég hef áður lýst afstöðu minni til frv. í heild, en vil aðeins taka það fram, sem hv. frsm. hefur gert, að þótt einnig þessi brtt. mín verði felld, mun það ekki hafa áhrif á afstöðu mína til frv., heldur mun ég standa með því, eins og ég áður hef lýst yfir.