17.04.1946
Neðri deild: 114. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1955 í B-deild Alþingistíðinda. (3205)

139. mál, almannatryggingar

Eysteinn Jónsson:

Það mun ekki leika á tveim tungum, að þetta er eitt hið stærsta mál, sem liggur fyrir þ., og þykir mér hlýða að fara um það nokkrum orðum, áður en það fer til n.

Enginn ágreiningur mun vera um nauðsyn almannatrygginga, en hins vegar munu vera nokkuð skiptar skoðanir um það, hve langt eigi að ganga. Slysatryggingar munu vera hér elztar allra trygginga og nú af flestum taldar sjálfsagðar. Þar næst munu vera elli- og sjúkratryggingar. Mér virðist, að allranauðsynlegast sé að hafa þær tryggingar, sem ætlaðar eru til að mæta óhöppum, sem menn verða fyrir, slysum og sjúkdómum, og svo tryggingar fyrir ekkjur og aðra þá, sem missa fyrirvinnu sína af óviðráðanlegum ástæðum, því að oft ber að höndum slys og óhöpp á þann hátt, að menn hafa enga möguleika á að búa sig undir að mæta slíku.

Í þessu frv. eru nokkur nýmæli, og er eitt þeirra sérstaklega merkilegt, en það er trygging fyrir ómegð. Það er sjálfsagt álitamál, hvað skynsamlegt sé að setja slíkar tryggingar á fót, en frá mínu sjónarmiði er skynsamlegt að koma á fót slíkum tryggingum. Mér finnst það ekki nema eðlilegt, að þjóðfélagið hlaupi undir bagga og hjálpi til að ala upp börn, þar sem þau eru mörg saman í fjölskyldu. Aðstaða þeirra hefur yfirleitt verið ákaflega óhagstæð undanfarið og út af fyrir sig gott að fá úr því bætt.

Í frv. því, sem hér liggur fyrir, er sem sagt gert ráð fyrir mjög stórfelldum breyt. á þessum málum öllum, frá því sem verið hefur, auknum gjöldum til manna frá tryggingunum og svo aftur stórlega auknum gjöldum til trygginganna frá einstaklingum, sveitarfélögum, ríkissjóði og atvinnurekendum. Það er ráðgert, miðað við núverandi vísitölu, að það velti um það bil 68 millj. kr. á ári um hendur Tryggingastofnunarinnar. Þetta er gífurlega mikill hluti af þjóðartekjunum, og sjá því allir, hvað þetta er stórkostlegt og hvað það skiptir miklu á allan máta, bæði hvernig tekst að setja reglur um úthlutun þessa fjár og einnig hvernig tekst að setja reglur um innheimtu fjárins og þessum byrðum sé skynsamlega skipt niður. Það eru ráðgerðar miklar breyt. að þessu leyti, og sumir hafa haldið því fram, að þær gangi verulega í þá átt að gera almannatryggingarnar meira að eiginlegum tryggingum en áður hefur verið og minna að framfærslu, og talið það stefnt í rétta átt. Það má segja, að þessu sé þannig varið að einhverju leyti, en þó ber þess að gæta, að eins og þetta frv. er, þá er það samt ekki nema að nokkru leyti, tryggingar, heldur að mestu leyti framfærsla. Það sést á því, að það er ekki nema mikill minni hluti þeirra tekna, sem tryggingunum eru ætlaðar, tekið með innheimtu iðgjalda, en meiri hlutinn er tekinn úr opinberum sjóðum, þannig að það er um framfærslu að ræða enn þá að mjög verulegu leyti og jafnvel að meira leyti en um raunverulegar tryggingar.

Í þessu frv. er ráðgert, að greiðslur til manna t. d. viðvíkjandi ellilífeyri o. fl. séu inntar af höndum án tillits til efnahags, og mun það vera byggt á þeirri röksemd, að hér sé meira um tryggingar að ræða en framfærslu og þess vegna sé rétt að gera þessa breyt. Mér finnst persónulega, án þess að ég hafi umboð til að lýsa yfir neinu frá Framsfl., að þetta sé vafasamt, vegna þess hvað mikið af fénu er tekið með greiðslu úr opinberum sjóðum. Mér hefði fundizt skynsamlegra að reyna að láta menn sjálfa standa meira undir tryggingarútgjöldunum enn um skeið og halda þeirri reglu að láta greiðslurnar, vera nokkuð takmarkaðar til þeirra, sem hafa mjög góðar efnahagslegar ástæður. Þessa bendingu vil ég aðeins gefa, þó að ég geri ekki ráð fyrir, að hægt verði að snúa við í þessu prinsipatriði frá því, sem í frv. er fyrirhugað.

En við lítum svo á tekjuöflunina fyrir trygginguna, þá stingur það í augun, að ráðgert er að hætta við að innheimta tekjur tryggingarinnar sem sérstakt gjald á skattskyldar tekjur, en undanfarið hefur það verið svo, að borgað hefur verið 1% af skattskyldum tekjum, en nú er gert ráð fyrir framlagi úr ríkissjóði og sveitar- og bæjarsjóðum, en iðgjaldið er ekki miðað við tekjur nema að því leyti, að nokkrir eru undanþegnir, sem minnstar hafa tekjur. Ég tel þessa breyt. ákaflega vafasama, ég tel þetta ranga stefnu. Ég tel heppilegra að halda gömlu reglunni og taka prósentgjald af borgurunum til tryggingarinnar, t. d. 1%, en lækka í þess stað einhvern hinna liðanna, t. d. persónulega gjaldið eða þá að einhverju leyti hlut sveitarfélaganna. Mér finnst þetta allt mjög athugandi. Mér finnst sú hækkun, sem ráðgerð er á föstu persónulegu iðgjaldi, vera mjög tilfinnanleg fyrir þá, sem hafa meðaltekjur og þar fyrir neðan, og yfirleitt, ef þeirri stefnu er haldið; sem í frv. er gert ráð fyrir, þá verður niðurstaðan sú, að gjöldin lækka á þeim, sem hafa sæmilegar tekjur og góða afkomu, en hækka aftur á móti á þeim, sem hafa lakari afkomu, eða fyrir neðan meðallag. Sumir mundu kannske segja, að þessi skoðun ætti rétt á sér, vegna þess að sífellt stefnir í þá átt að gera þetta að tryggingum, að menn kaupi sér ellilífeyri, og þess vegna eigi iðgjöldin að vera persónuleg, en ekki eftir tekjum, en ég vil benda á og undirstrika það, sem ég hef áður sagt um erfiðleika á því, og þó að þetta frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir, þá er ekki búið að yfirgefa framfærslusjónarmiðið og ganga inn á tryggingarsjónarmiðið. Framfærslusjónarmið er ákaflega ríkt í frv. eins og það er, og mér finnst þess vegna, að það sé ekki um neina stefnubreyt. að ræða, þó að þessi háttur verði upp tekinn, og menn ættu þess vegna að geta aðhyllzt það, að tvímælalaust er ósanngjarnara að hafa fast iðgjald á nef í l. en innheimta verulegan hluta af þessu miðað við tekjur manna.

Það er einn þáttur í þessu, sem ég hef aldrei getað fengið ráðningu á. Það er vitað nokkurn veginn, hvað ríkissjóði er ætlað að greiða til trygginganna, og menn vita heildarfjárhæðina, sem áætlað er, að sveitarsjóðir skuli greiða. Ég hefði óskað þess í sambandi við þetta mál, að það hefði komið fram grg. um, hvernig þetta snertir sveitarsjóðina, en um það eru engar upplýsingar, og þar af leiðandi er ákaflega erfitt að átta sig á, hvað verið er að gera gagnvart þeim.

Ég álít gott, að n., sem fjallar um þetta, grennslist eftir því, hvort þess væri ekki kostur, að þetta gæti legið gleggra fyrir, einkum með tilliti til þess, ef menn féllust á að breyta um stefnu, til þess að hægt væri að dæma um, hvar sú hækkun, sem gera mætti á öðrum, ætti að koma niður sem tilslökun, hvort eitthvað af því ætti ekki að fara til að lækka þann hluta, sem bæjar- og sveitarfélögum er ætlað að borga, en það er erfitt að átta sig á því, af því að við höfum ekki fengið neinar myndir af því, hvernig þetta muni snerta bæjar- og sveitarfélög að þessu leyti, eða a. m. k. hef ég ekki séð þær myndir.

Ég veit, að ýmsir menn hafa lagt mikla vinnu í að undirbúa þetta mál. Ég vil ekki gera lítið úr því verki. Það hefur verið gefin út bók um undirbúning þess. Engu að síður er ekki hægt að mæla á móti því, að þótt nokkrir menn hafi lagt í þetta geysimikla vinnu, þá hefur málið enn ekki legið fyrir sveitarstjórnum eða almenningi, svo að menn hafi verulega getað áttað sig á, undir hvað þeir ættu að ganga, ef löggjöfin yrði samþ. Það er sæmilega ljóst, hvað menn eiga að fá, en það er ekki vel ljóst, undir hvað menn eiga að ganga, eins og ég hef nokkuð sýnt fram á. Þess vegna hefði mér fundizt, hefði það verið hægt og ekki hefði neitt pólitískt komið til í þessu efni, að það hefði verið miklu heppilegra, að tekinn hefði verið upp sá háttur að fresta að sinni endanlegri samþykkt málsins, athuga þær hliðar á því, sem sýna sig að vera ekki nægilega vel upplýstar, og afla því þá trausts og fylgis hjá almenningi í landinu, þangað til þinghald yrði hafið á ný, leita umsagnar frá þeim aðilum, bæjar- og sveitarfélögum og öðrum aðilum, sem eðlilegt væri, að fengju að segja sitt orð um þetta, áður en frv. yrði gert að l. Þetta held ég að væri skynsamleg meðferð á málinu, því að sannleikurinn er sá, að mönnum er það ljóst, að tryggingarnar eiga að koma stig af stigi, en ekki allar í einni hendingu, og menn þurfa m. a. að hafa æfingu í því að vera tryggðir, án þess að það leiði til vandræða. Menn hafa haft dálitla æfingu í því með sértryggingarnar, og ég held, að fyrir því yrði greitt með því, að þessi háttur yrði á hafður um afgreiðslu málsins.

Þá er annað, sem ég vildi vekja athygli á. Það er gert ráð fyrir, að þetta mál muni kosta um 68 millj. Ég man ekki, hvað það hefur kostað við þær tryggingar, sem hér falla undir og hafa verið áður. Er það ekki eitthvað um 40 millj.? Hækkunin mundi þá vera yfir 50% frá því, sem nú er, eftir því sem áætlað er, þannig að eins og ég sagði áðan, þá er hér um ákaflega mikið stórmál að ræða. Og þá er þess að gæta, hvernig ástatt er í landinu, hvort skynsamlegt er að gera þetta nú, þó að menn séu því fylgjandi, að almannatryggingar séu settar. Ég get vel skilið, að þeir, sem standa að hæstv. stj., og hinir, sem eru í stjórnarandstöðu, hafi nokkuð mismunandi skoðanir á þessu. Þeir, sem standa að hæstv. stj., hafa haldið fram, að þetta sé yfirleitt í nokkuð góðu lagi allt saman og muni geta staðið svo, og frá þeirra sjónarmiði er ekki óeðlilegt að fara út í að lögleiða slíkt tryggingabákn sem hér er gert ráð fyrir. Stjórnarandstæðingar hafa hins vegar mestu ótrú, eins og óft hefur verið sagt frá, á fjármálastjórn og stefnu atvinnumálanna og álíta, að það leiði út í mestu ófæru, ef ekki verður breytt alveg um. Auk þess álítur stjórnarandstaðan, að þannig hafi verið á málunum haldið, að menn búi nú við stórkostlegt misrétti. T. d. að okkar áliti, eins og oft hefur verið rökstutt, á bændastéttin við stórkostlegt misrétti að búa, og yfirleitt er hallað stórkostlega á framleiðendur í viðskiptum við ríkisvaldið og með þeim ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið af hendi stjórnarvaldanna. Enn fremur er það okkar skoðun, sem oft hefur verið látin í ljós og undirstrikuð með margvíslegu móti, að sú stefna, sem nú er haldið uppi, leiði út í öngþveiti í fjárhag ríkisins, það sé ekkert að marka, þó að ríkið hafi síðasta ár haft í tekjur milli 160 og 170 millj., því að öllum er augljóst, að innan stundar verði ríkissjóður rekinn með stórkostlegum halla, enda hafa fjárl. þessa árs verið afgr. frá því þingi, sem við sitjum á, með stórkostlegum halla. Þetta sýnist okkur benda ótvírætt í þá átt, að engin vitglóra sé í því, að enn sé samþ. nýr lagabálkur, sem hafi í för með sér tugmilljóna ný útgjöld fyrir ríkissjóð, atvinnuvegina og einstaklinga. Frá okkar sjónarmiði lítur málið þannig út, að fullkomnari alþýðutryggingar ættu að vera einn liður í ráðstöfunum, sem táknuðu stefnubreyt. í þessum málum öllum saman, og þess vegna með öllu óeðlilegt, að við getum fallizt á að afgreiða þær öðruvísi en þannig, að þær ráðstafanir, sem gerðar yrðu um leið, breyttu stefnunni í atvinnumálum og fjármálum, með því að stöðva verðbólguna, gera upp stríðstímabilið fjárhagslega og verðbólgugróðann, sem er gífurlegur sums staðar, því að eins og einn hv. þm. sagði, þá mun það sýna sig, þegar öll kurl koma til grafar, að verðbólgan hefur gert það, sem spáð var, þá ríku ríkari og þá fátæku fátækari. Frá sjónarmiði stjórnarandstæðinganna er það skakkt að setja stóra lagabálka inn í þingið og taka stórfé í almannatryggingar öðruvísi en það sé liður í slíkum ráðstöfunum, sem einn liður í þeirri keðju, sem verður að tengja, til þess að það komi að nokkru haldi til frambúðar.

Ég skal ekki vera að setja á lengri ræðu um þetta. Ég hef viljað með þessum fáu orðum gera grein fyrir því, sem ég hér hef látið koma fram viðvíkjandi örfáum atriðum í frv., sem mér finnst þannig löguð, að það sé alveg ómögulegt annað en d. reyni að lagfæra þau. Það er aðallega eitt atriði, og kannske munu aðrir benda á önnur atriði áður en málið fer til n.

Mér sýnist það vera mjög áberandi í þessum tryggingal., hvað mönnum er veittur misjafnlega mikill réttur eftir því, hvernig ástæður þeirra eru. Það er óviðunandi, og ég skil ekki, hvernig á því stendur. Það er aðallega þetta, að þeim, sem reka sjálfstæða atvinnu, er skapaður annar og minni réttur en þeim, sem vinna hjá öðrum. Ég veit ekki, hvar þetta ætlar að lenda. Nú kemur hvert frv. á fætur öðru, þar sem mönnum er boðið upp á þetta sama misrétti. Það er eins og það sé að verða hegningarvert að vera að baksa við að reka atvinnu eða hafa sjálfstæðan atvinnurekstur, en verðlauna það að vinna hjá öðrum. Þetta er kannske skynsamlegt frá sjónarmiði, þeirra sem vilja ekki, að einstaklingarnir hafi neinn sjálfstæðan atvinnurekstur, en frá sjónarmiði þeirra, sem vilja það, og það hélt ég að væru flestir, er þetta alveg óhæfa. Í þessu sambandi vil ég minna á 42. gr., þar sem ákvæði er um það, hvaða menn skuli fá dagpeninga, ef þeir verða sjúkir. Þessi ákvæði eru í stuttu máli þannig, að ef menn vinna hjá öðrum, eiga þeir að fá sjúkradagpeninga eftir tiltekinn tíma, mig minnir 11 daga, þó man ég það ekki nákvæmlega — eða 8 daga. Síðan stendur: „Þeir, sem vinna sjálfstætt eða hafa launþega í þjónustu sinni, eiga rétt til bóta frá og með 5 sjúkravikum, allt að 20 vikum samtals.“ Mér er ómögulegt að skilja, hvernig á því stendur, að t. d. bóndi, sem starfar sjálfstætt, eða útgerðarmaður, sem rekur sinn bát og oftast vinnur sjálfur við hann, — eiga ekki að fá sjúkrapeninga alveg eins og þeir, sem vinna hjá öðrum. Mér skilst, að þetta geti orðið svo fáránlegt, að t. d. einyrkjabóndi, sem lægi veikur heima hjá sér og kæmist ekki í sjúkrahús, yrði að liggja án bóta, þó að hann undir slíkum kringumstæðum yrði að fá mann fyrir sig eða ofþjaka fjölskyldu sinni við störf sín eða bíða stórkostlegt tjón, ef þau eru óunnin. Hann yrði að liggja bótalaus, en aftur á móti forríkur hálaunamaður, sem aðeins tæki laun sín hjá öðrum, gæti fengið sjúkradagpeninga þegar eftir nokkra daga. Enn fremur skilst mér, að það geti orðið þannig, að mótorbátsformaður, sem ætti sjálfur bát sinn og hefði verið svo óheppinn að hafa drýgt það afbrot að vinna sjálfstætt, yrði að vera án dagpeninga, ef hann legðist ekki á sjúkrahús, en báturinn gengi, en aftur á móti yrði það svoleiðis, að á sama tíma fengi t. d. háseti og aðrir, sem tækju laun, fullar bætur. Ég ætla ekki að fara að rífast út af þessu. Mér finnst þetta þannig vaxið, að það verði að laga þetta, skapa öllum sama rétt að þessu leyti, en meðan það er ekki gert, þá eru þetta ekki almannatryggingar, heldur fyrir vissa hópa, sem er gott fyrir þá, en það eru ekki almannatryggingar. Mér finnst, að þegar lögð eru jöfn gjöld á borgarana, eins og hér er gert ráð fyrir, þá verði að sjá svo um, að allir fái sama rétt eftir þeim allsherjarreglum, sem settar eru.

Það er vafalaust fleira, margt fleira af sama tagi, sem ég skal ekki gera að umræðuefni, vegna þess að aðrir hafa betur athugað málið í einstökum, atriðum en ég, en á þessi stóru meginatriði vildi ég benda n., áður en hún tekur til starfa.