24.04.1946
Neðri deild: 118. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2010 í B-deild Alþingistíðinda. (3237)
139. mál, almannatryggingar
Páll Þorsteinsson:
Ég vil fyrst taka það fram, að ég tel eigi rétt að skammta ræðutíma manna naumt. Mér finnst, að þeir hv. þm., sem hér sitja og hlut eiga að máli, séu ekki kunnir að málþófi, né heldur sé útlit fyrir, að málið tefjist að óþörfu. Hér ber þess og að gæta, að þetta er stærsta og mikilvægasta mál þingsins.
Hv. 4. þm. Reykv. kvað undirbúning frv. góðan og taldi rangt hjá mér að segja, að honum væri ábótavant að ýmsu leyti. En þessi hv. þm. gekk fram hjá því, að skort hefur á undirbúning málsins að því leyti, að sveitarstjórnum hefur ekki gefizt tækifæri til að fylgjast með breytingunum á tryggingamálunum. Hér er um mjög stórfellt mál að ræða. Með því, er fram hefur komið í grg. frv., á að leggja auknar byrðar á. Hækkunin á atvinnurekendur nemur 181%, en á sveitarfélögin kemur 49% hækkun. Ég tel ekki ófyrirsynju, þótt sveitarfélögum og atvinnurekendum úti um land hefði verið gefinn kostur á að fylgjast með málinu og till. í því, áður en það yrði að l. frá Alþ. Hv. frsm. benti á, að eigi hefði verið fundið að afgreiðslu frv. um landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum. Ég tel raunar nokkra galla vera á þeim l., sem mátt hefði bæta úr, en að öðru leyti segi ég, að hér er um ósambærileg mál að ræða. Landnámsfrv. ræðir ekki um neinar kvaðir á sveitarfélögin, er aðeins endurskoðun á eldri l., og er mönnum í sjálfsvald sett, hvort þeir ráðast í framkvæmdir eða ekki. En í tryggingal. er bundið við að leggja byrðar á sveitarfélögin án þess að spyrja þau ráða.
Hv. 4. þm. Reykv. segir, að algengt sé erlendis að mismuna mönnum eftir fjárhagslegri getu þeirra. En nú hef ég heyrt, að þessi löggjöf eigi að taka fram því, sem áður hefur þekkzt, jafnvel í öðrum löndum. Þess vegna get ég ekki litið svo á, að hér sé um veigamikil rök að ræða. Ég gæti vel fellt mig við þann kost, að mönnum væri mismunað eftir tekjum þeirra og eignum, en sú tilraun, sem gerð er í þá átt í frv., er að mínum dómi ekki réttmæt. Þar er miðað við það, hvort menn eru atvinnurekendur eða ekki. Nú er það vitanlegt, að bóndi getur verið illa stæður og lagt hart að sér fyrr en atvinnurekstur hans stöðvast að fullu, en þangað til er hann í öðrum flokki en launþegar. Hugsanlegt er það, að bóndi geti lifað á eign sinni, en það getur launþegi líka. Hann getur átt arðbærar eignir, hús eða annað, þótt hann reki ekki atvinnu. Hér er þess vegna ekki um það að ræða, að skipt sé í flokka eftir tekjum, heldur eftir því, hvernig teknanna er aflað. Það er lagður skattur á þá menn, sem afla tekna úr skauti jarðarinnar eða djúpi hafsins, þótt þeir hafi engu meiri tekjur en launþegar. Þetta finnst mér óréttlátt og get ekki fallizt á slíka aðferð. Hv. 4. þm. Reykv. segir, að eðlilegt sé, að atvinnurekendur greiði slysatryggingu vegna launþeganna, þar sem það sé þeirra hagur, að verkamennirnir vinni. Þetta má til sanns vegar færa. En þeir dagar hafa nú líka komið, þegar það þóttu hlunnindi að fá að vera í vinnu. Mér virðist, að ekki sé hægt að segja, að það sé hagur atvinnurekenda einna að halda uppi atvinnu, það er hagur allrar þjóðarinnar. Ég get því ekki séð, að óeðlilegt sé, að atvinnurekendur og launþegar greiði hvorir fyrir sig, enda séu laun miðuð við það. Hv. 6. landsk. flytur brtt., sem fjallar um þetta, en ég tel, að hún nái of skammt.
Ég harma það, að hv. 4. þm. Reykv. skuli hafa vikið af fundi, án þess að svara þeim fyrirspurnum, sem ég bar hér fram, t. d. viðvíkjandi því, hvort bændur ættu að greiða af sínu kaupi þær greiðslur, sem þeim ber að annast, og sé ég ekki ástæðu til að lengja mál mitt frekar, úr því að enginn er til andsvara.