11.12.1945
Sameinað þing: 16. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í B-deild Alþingistíðinda. (326)
16. mál, fjárlög 1946
Hermann Jónasson:
Þegar reynt var að semja um stjórnarsamstarf haustið 1944, krafðist Framsfl. þess, að stöðvun dýrtíðarinnar og niðurfærsla yrði sá grundvöllur, er samstarfið yrði reist á. En hinir flokkarnir vildu ekki á það fallast. Það var í fjórða skiptið, sem þessir flokkar risu gegn þeirri stefnu Framsfl. að stöðva dýrtíðina. Áður höfðu þeir gert það með framkvæmd dýrtíðarl. sumarið 1941, í annað skipti er þeir felldu stöðvunarfrv. á haustþinginu sama ár, og í þriðja sinn, þegar hlaupið var frá framkvæmd gerðardómsl. vorið 1942.
Í öll skiptin hafa þessir flokkar hrökklazt undan merkjum, þegar við höfum gert ákveðnar till. um að snúast gegn dýrtíðinni. Hin miklu fjármálamistök eru því afleiðing þeirrar stjórnarstefnu, sem ráðið hefur gegn till. og vilja okkar framsóknármanna, svo sem ljóst er orðið sívaxandi fjölda landsmanna.
Þegar núv. stjórn tók við völdum, gaf hún þjóðinni ýmis loforð í ræðu, sem hæstv. forsrh. flutti. Meðal þjóðarinnar var ræða þessi nefnd platan, af því að stjórnin lét spila hana á plötu og vegna þess hve mörgum datt í hug plötusláttur í annarri merkingu. En nú er kominn tími til að athuga efndirnar, sem þjóðin telur, að skipti meira máli en loforðin.
Ríkisstj. sagðist ætla að tryggja vinnufrið. Það er skemmst af því að segja, að hver vinnudeilan hefur rekið aðra nokkurn veginn látlaust, síðan ríkisstj. lofaði þjóðinni vinnufriði. Vinnudeilurnar hafa flestar staðið stutt, af því að látið hefur verið undan kaupkröfunum möglunarlítið. Með þessu móti hefur kaup verið hækkað í 50–60 verkamannafélögum, samkv. skýrslu Alþýðusambandsins. Nú er nýlokið einu stórfelldasta og lengsta verkfalli, sem hér hefur staðið, verkfallinu í siglingaflotanum. Verkfallið hefur valdið þjóðinni stórtjóni, og lá nærri, að af því hlytist óbætanlegur skaði. Svo gersamlega hjálparvana var ríkisstj. í þessu verkfalli, að nauðsynlegustu vörur frá landinu og til þess gat ríkisstj. fengið fluttar með því móti einu, að Bandaríkin hafa lánað okkur skip og áhafnir. Að öðrum kosti hefði verið komið hér neyðarástand. En þótt skip okkar sigli, er það ekki eintómt sólskin, því flutningsgjöld með þeim milli hafna á Norðurlandi eru 1/3 hærri en flutningsgjöld frá Svíþjóð til Norðurlands á sænskum skipum, og annað eftir því. Ef við notuðum eingöngu eigin skip, mundu farmgjöldin á örstuttum tíma stöðva hina sárþjökuðu framleiðslu landsmanna. En með því að hafa erlend skip á leigu með erlendum skipshöfnum, getum við notað gróðann af þeim til að borga niður farmgjöld af okkar eigin skipum. Þannig er hægt að leysa þetta mál í bili. En loforðið um vinnufrið hefur stjórnin því haldið þannig, að vinnudeilur og verkföll hafa hér aldrei verið tíðari, nema ef væri 1942, þegar skæruhernaðurinn var í algleymingi.
Stjórnin sagðist ætla að stöðva dýrtíðina. En hefur dýrtíðin verið stöðvuð? Stjórnarliðið sagði þjóðinni allt undanfarið ár, að þetta hefði tekizt. Þjóðinni var sagt, að kauphækkanirnar hefðu engin áhrif á vísitöluna né dýrtíðina. Margir framleiðendur og aðrir landsmenn treystu fyrirheiti stjórnarinnar. En Hagstofa Íslands sýndi þjóðinni sannleikann. Hún sýndi, að framleiðslukostnaður bænda hafði hækkað um 10 stig og annarrar framleiðslu auðvitað að sama skapi. Þegar þetta var uppvíst orðið, valdi ríkisstj. þær leiðir að láta framfærsluvísitöluna hækka um rúm 10 stig og beita bændastéttina jafnframt því bolabragði að velta aðalbyrði aukinnar dýrtíðar á bændanna bak. Dýrtíðarstefna stjórnarinnar veldur því, að miklum hluta útflutningsframleiðslunnar heldur við stöðvun. Sívaxandi dýrtíð veldur og trúleysi landsmanna á það, að komið verði í veg fyrir hækkun hennar. Afleiðingarnar eru fjárhagslegt öryggisleysi, vaxandi spákaupmennska og glundroði í mörgum myndum. Af mistökum hæstv. ríkisstj., sem eru þó bæði mörg og stór, ætla ég, að þessi svik hennar séu eitt stærsta og afdrifaríkasta óhappaverkið.
Stjórnin lofaði að hækka framlög til verklegra framkvæmda. Ef við tökum landsreikninginn 1938, en þá voru sölumöguleikar íslenzkra afurða mjög vesalir samanborið við það, sem verið hefur síðan, og berum saman við fjárlfrv. ríkisstj. 1946, kemur í ljós, þegar alls er gætt, að framlög til verklegra framkvæmda hafa dregizt saman hlutfallslega við rekstrarútgjöldin, sem nú gleypa meira og meira af tekjum ríkissjóðs. Og nú þegar svo er komið, að þegar rætt er hér á Alþ. um einhverjar stórframkvæmdir, eins og veg austur yfir fjall, sem er Suðurlandsundirlendinu og Reykjavík lífsnauðsyn, þegar talað er um að byggja landshafnir, sem er aðkallandi fyrir sjávarútveginn, þegar lagt er til að hækka framlög til jarðræktarstyrks, sem nú er nauðsyn fyrir landbúnaðinn, eða aðrar hliðstæðar framkvæmdir, getur stjórnarliðið með réttu bent á, að engir peningar séu til, ríkissjóður berjist í bökkum. Og teknanna, sem ríkissjóður berst í bökkum með, aflar stjórnin m. a. þannig, að um 2/5 af ríkistekjunum er aflað með tollum, sem drýgðir eru með því að flytja inn sem mest af alls konar varningi. Afleiðingin er sú, að verzlunarjöfnuðurinn við útlönd er nú óhagstæður um tugi millj. kr. Inneign bankanna erlendis hafði í lok október s. l. minnkað um 52 millj., og lokið er við að éta upp mikið af dollarainneign okkar í Bandaríkjunum. Eftir eru aðeins 20 millj. dollara fráteknar til nýsköpunarinnar og 1–3 millj. að auki, sem vissulega er lítilræði upp í þarfirnar. Þó að von sé á auknum vörum frá Englandi, hljóta allir að sjá, að ekki getur lengi orðið framhald á slíku ráðslagi. Og eftirtektarvert er það fyrir þjóðina, að 1938 eru tekjurnar 19,5 millj. kr., þar af vegna áfengissölu 1,9 millj. kr. eða 10%. En í frv. ríkisstj. til fjárl. 1946 eru tekjurnar áætlaðar 114 millj. kr., þar af tekjur af áfengissölu 22.4 millj. eða 20%. Þó er vitað, að tekjur ríkissjóðs verða meiri en áætlað er í frv., ekki sízt af áfengissölu. Sýnilegt er, að í ár verða brennivínstekjur ríkissjóðs 30–0 millj. kr., eða allt að því tvöfalt hærri fjárhæð en allar árstekjur ríkissjóðs nokkru fyrir stríð. Samkvæmt skýrslu lögreglunnar hér í Reykjavík er sett í tugthúsið hér í höfuðstaðnum hálft fjórða hundrað manns suma mánuðina vegna ölæðis. Vandræðin með húsnæði handa ölóðu fólki eru orðin slík, að ekki er unnt að hafa það í tugthúsinu nema rétt meðan er að renna af því mesta víman, til þess að geta sett inn aðra ölóða menn, sem eru hættulegri fyrir sjálfa sig og umhverfið. En brennivínsgróðinn hverfur sem aðrir fjármunir ríkissjóðs í sístækkandi hít tilkostnaðar við rekstur ríkisins. En loforðið um auknar verklegar framkvæmdir efnir stjórnin á sama hátt og önnur fyrirheit sín við þjóðina, því að þegar þetta loforð er þannig efnt þrátt fyrir þessa tekjustofna, hvernig halda landsmenn þá, að það verði um framlög til verklegra framkvæmda, er þeir og aðrir tekjustofnar bresta sem fyrirsjáanlegt er?
Ríkisstj. lofaði að leggja skattana á þá ríku, á stríðsgróðann, en alls ekki á fátæka. Það þarf ekki að segja þjóðinni það, hún veit það og skilur, hverjar efndirnar hafa orðið, og eins þó að stjórnarliðið hafi þrisvar sinnum lengri ræðutíma í þessum umræðum og láti sér það vel sæma. Í stað skatta á stríðsgróðann er lagður á veltuskattur, er harðast kemur niður á þeim fátæku, þeim, sem hafa mesta ómegð og flestum fyrir að sjá. En það er eftirtektarvert, hvernig þetta loforð var gefið á plötunni. Þetta er það loforð, sem oftast var endurtekið. Fyrst segir, að skattarnir verði lagðir á þá, sem helzt geti undir þeim risið. Skattar skuli fyrst og fremst lagðir á stríðsgróðann, og enn, að skattar á lágtekjumenn skuli alls ekki hækkaðir. Síðar var þetta loforð enn endurtekið af hæstv. forsrh. í fjórða sinn með því að segja, að nú skyldi farið inn í rottuholurnar eftir stríðsgróðanum. Það beita sumir þeim vinnuaðferðum að lofa því oftast, sem ekki á að efna. Stríðsgróðinn hefur ekki hjá neinni þjóð verið hlutfallslega meiri en hjá okkur Íslendingum. Þrátt fyrir öll hátíðleg loforð hefur verið sneitt hjá því að snerta við þessum stríðsgróða. Á Norðurlöndum og annars staðar er stríðsgróðinn hiklaust tekinn að verulegu leyti, þegar kemur yfir hundrað þús. kr. eða svo. Bændastjórnin í Danmörku er nú að taka 1–2 milljarða kr. í stríðsgróðaskatt, að sjálfsögðu í eitt skipti fyrir öll og að undangengnu nákvæmu eignauppgjöri. Stjórn, sem verkamannaflokkarnir bera ábyrgð á og hlífist við að taka stríðsgróðaskatt, mun hvergi vera til nema á Íslandi. Hér una jafnaðarmenn og kommúnistar því alveg ágætlega, að um þetta séu gefin endurtekin loforð, en í stað efnda leggur ríkisstj. á landsmenn veltuskatt, sem þyngstur er á ómagamönnum, framlengir alla tolla, tekjuskattsviðaukann, viðauka á margs konar gjöld og aflar sér tekna alveg sérstaklega með aukinni brennivínssölu. Og nú, þegar stjórnarflokkana vantar fyrirsjáanlega fé til þess að geta haldið sukki sínu áfram, er ráðgert, — nei, ekki stríðsgróðaskattur, — heldur að láta ríkissjóð taka lán sem síðar á að velta yfir á almenning. Loforðið um að leggja á stríðsgróðaskatt minnist enginn stjórnarliði á lengur. Þeir virðast alveg hafa gleymt rottuholunum sínum.
Ríkisstj. lofaði að skerpa eftirlit með skattaframtölum. Þetta loforð var þegar tortryggilegt af þeirri ástæðu, að því var tvílofað og lögð á það sérstök áherzla á talplötunni. Efndirnar á þessu loforði eru í svo fullkomnu samræmi við efndirnar í skattamálunum, að síðan hefur enginn maður heyrt á þetta loforð minnzt. En vilji stj. í þessu máli hefur þó verið augljós. Þegar uppvíst varð, að margir stórkaupmenn höfðu látið falsa þá, frumreikninga, er þeir sýndu íslenzkum yfirvöldum, og sett innkaupsverð vörunnar hærra en rétt var, til þess að fá hærri álagningu, voru með því drýgð þrenns konar svik. Neytendur voru féflettir með of háu vöruverði. Peningarnir voru fluttir óleyfilega úr landi og sviknir undan skatti. Um sum þessara mála gerði ríkisstj. réttarsætt, eins og gert er í lítilfjörlegum smámálum, og í allri rannsókn málanna sýndi ríkisstj. óvild, og sum stjórnarblöðin töldu þetta ofsókn.
Þegar rökstuddar líkur eru fram komnar fyrir því, að stór hópur manna hafi framið afbrot, átti að framkvæma rannsókn hjá öllum, er grunur leikur á. Í þess stað var hinum seku gefin aðvörun og frestur eftir frest, til þess að þeir gætu komið plöggum sínum í lag og sönnunargögnum undan. Loks, þegar rannsókn er hafin og húsleit gerð hjá nokkrum stórinnflytjendum, skeður þó það undarlega, að enn finnast nokkur sönnunargögn. En þegar íslenzk yfirvöld benda stj. á, að málin verði ekki rannsökuð, svo að viðunandi sé, nema senda menn vestur um haf og láta þá rannsaka málið hjá firmum þeim, sem vörurnar höfðu verið keyptar frá, til þess að sannprófa verðið o. fl., þá er þessu neitað af ríkisstj. og komið í veg fyrir það. Þrátt fyrir þetta sannast þó, að ýmsir stórinnflytjendur hafa dregið sér ranglega svo að hundruðum þús. kr. skiptir. Vegir ríkisstj. og vinnuaðferðir við að efna gefin loforð við landsmenn eru órannsakanlegar.
Ríkisstj. lofaði landsmönnum að hafa hemil á verðlagi, lækka milliliðagróða og rannsaka ýtarlega, hvernig þessu marki yrði bezt náð. Ég veit ekki til, að nokkur hafi orðið var við þessar ráðstafanir, en ýmsir að sjálfsögðu það gagnstæða, og þessa ýtarlegu rannsókn veit víst ekki nokkur maður til, að reynt hafi verið að standa við að framkvæma. En athæfi ríkisstj. í heildsalamálunum sýnir okkur ásamt öðru, hvernig ríkisstj. fer að því að efna þetta loforð sitt og hve dæmalaust annt henni er um að lækka milliliðagróðann og álagninguna. Meðferðin á sölufyrirkomulagi kjötsins er annað sýnishorn á efndum þessa loforðs. Á sama tíma og ríkisstj. lækkar kjötverð til bænda, þrátt fyrir hækkandi framleiðslukostnað, leyfir hún milliliðunum að hækka álagninguna, sem rennur í þeirra vasa, um 48 aura á hvert kílógramm. — Þannig m. a. eru efndirnar á því loforði að lækka álagningu og milliliðagróðann, og er það í samræmi við allt annað.
Enn lofaði ríkisstj. þjóðinni því að bæta lífskjör útvegs- og fiskimanna og skapa þeim öryggi. Það, sem lækkar mest kjör útvegs- og fiskimanna og veldur þeim öryggisleysi, er síhækkandi framleiðslukostnaður, sem er afleiðing af allri stefnu stjórnarinnar. Í stað þess að efna það loforð að bæta lífskjör þessarar stéttar er stj. nú á góðum vegi með að koma henni á kné og gerir það áreiðanlega, ef henni verður lífs auðið. Við skulum svo láta útvegs- og fiskimenn sjálfa bera vitni um það, hvernig loforð stjórnarinnar við þá hefur verið efnt. Landssamband útvegsmanna hefur skrifað þingflokkunum bréf, dags. 28. f. m., þar sem segir: „Eins og yður mun vera kunnugt, hefur hag smáútgerðarmanna í landinu stöðugt farið hnignandi síðan 1942. Nú er svo komið, að smáútvegsmenn almennt munu eiga erfitt um að halda áfram rekstri við þær aðstæður, sem þeim eru búnar.“ Og þar segir enn fremur, að gera verði skjótar ráðstafanir til að „skapa einhvern grundvöll, til þess að byggja á áframhaldandi rekstur ....“ Samþykktir Fiskiþings þessa dagana um sama efni eru enn þá ákveðnari. Að dómi þess er enginn grundvöllur undir bátaútveg í vetur að óbreyttu ástandi. Það er vitað, að þessi vitnisburður um efndir ríkisstj. á loforðum við útvegs- og fiskimenn er í samræmi við staðreyndir og þarf ekki frekar um þær efndir að ræða.
Í fréttum frá Fiskiþinginu sést, að það hefur samþykkt að benda á leið til úrlausnar út úr öngþveitinu, að lækka dýrtíðina, þannig að framleiðslukostnaður sé við hæfi þess verðlags, er fáanlegt er fyrir framleiðsluvöruna í markaðslöndum okkar. Það er hárrétt, að þetta er eina rétta leiðin. Þetta er sú leið, sem Framsfl. benti á sem grundvöll fyrir stjórnarmyndun s. 1. haust, en stjórnarflokkarnir máttu ekki heyra nefnda. Þar skildu leiðir. Þessi stefna, sem Fiskiþingið markar nú og hefur lengi verið vilji útvegs- og fiskimanna, er samhljóða yfirlýstri stefnu frá síðasta flokksþingi framsóknarmanna. Búnaðarþing hefur bent á þessa stefnu sem einu færu leiðina fyrir framleiðslu og fjármál landsmanna, og haustið 1944 gekk búnaðarþing á undan til þess að reyna að fá Alþ. til þess að taka upp þessa stefnu. Ríkisstj. svaraði þessu með því að nota tilboð bænda til þess að svíkja þá og níðast síðan sérstaklega á þeim með eins konar hegningarlöggjöf um svo kallað „búnaðarráð,“ þar sem allt vald í verðlagsmálum er af bændastéttinni tekið og hún í lífskjörum sett neðar öllum öðrum stéttum þjóðfélagsins. Og nú er fram komið hér á Alþ. frá Jóni Pálmasyni og einum kommúnista frv. til laga, eins konar viðauki við hegningarlögin á bændur, þar sem svipta á heildarsamtök þeirra yfirráðum yfir búnaðarmálasjóði, fé, sem þeir sjálfir leggja fram. Þetta er gert til þess að reyna að kljúfa samtök þeirra, skipta þeim í innbyrðis stríðandi fylkingar, veikja þá og koma þeim á kné. Stj. virðist telja það hættulegt, að bændur hafi heildarsamtök um allt land sín á milli, eins og aðrar stéttir. Þegar menn, sem eru í minni hluta meðal stéttar sinnar vegna þess, að þeir hafa misst traust hennar, leita þannig til utanaðkomandi valds til að beita stétt sína ofbeldi, eru þeir að fremja ódæði, sem er hliðstætt því, er maður, sem misst hefur traust þjóðar sinnar, leitar til erlendra þjóða til þess að fá þær til að beita þjóð sína kúgun. Þetta eru vinnubrögð hinna fyrirlitnu og þýlyndu þjóna Hákonar gamla á Sturlungaöld og þeirra manna, sem á seinni árum hafa hlotið nafnið Quislingar. Hver einasta þjóð eða stétt, sem lætur kljúfa sig þannig í innbyrðis stríðandi fylkingar með vinnubrögðum þessarar manntegundar, hver einasta þjóðarstétt, sem rís ekki gegn þessu sem heild, tortímir sjálfri sér.
Bændur eiga elztu og þroskuðustu félagssamtökin í landinu, samvinnufélögin, búnaðarfélagsskapinn og hafa nýlega stofnað stéttarsamband fyrir alla bændur landsins. Þeir eru sammála um meiri háttar mál öll, en eins og gengur í öllum félagsskap ósammála um minni háttar atriði. Þeir kjósa fulltrúa á búnaðarþing. Þeir greiða atkvæði um fyrirkomulag stéttarsamtakanna í búnaðarfélögunum. Þannig gera þeir upp reikninga sína og láta meiri hluta ráða að réttum lýðræðislögum siðaðra manna. Með þessu móti einu geta bændur styrkt stétt sína og tryggt afkomu sína þannig, að þeir verði ósigrandi heild í baráttunni gegn þeim ofsóknum, sem þeir eru nú beittir. Bændur vita vel, að það er verið að reyna að kljúfa þá sundur í innbyrðis, stríðandi hópa til þess að sundra kröftum þeirra og veikja þá og til þess að geta eftir það með auðveldu móti beitt þá áframhaldandi bolabrögðum. Bændur þekkja þessi bolabrögð frá fyrri öldum og ekki sízt frá bernskuárum samvinnuhreyfingarinnar. Mennirnir frá Akri voru líka til í bændastétt í þann tíð og þjónuðu þá herra sínum, faktornum. Þeir, sem beita bændur þessum aðferðum, eiga eftir að verða fyrir vonbrigðum. Bændur hafa alla tíð komið sterkari en áður út úr slíkri eldraun. Ég minnist þess nú, að þegar bændur almennt lýstu sig andvíga stefnu ríkisstj., hafði Áki Jakobsson atvmrh. frammi hér í útvarpinu ruddalegar hótanir við bændastéttina. Ég held, að þessar illkvittnislegu hótanir séu eina loforðið, sem ríkisstj. hefur staðið við. Það skal hæstv. ríkisstj. vita.
Þá kem ég að loforðum ríkisstj. um nýsköpunina og loforðum hennar um það að gæta þess, að hinn skjótfengni auður renni ekki út í sandinn. Auðvaldsstefna og einstaklingsframtak skefjalaust veldur offramleiðslu og ofþenslu í þjóðfélaginu, þegar framleiðsla og framtak er gróðavænlegt, en síðan kreppu og atvinnuleysi. Hvort tveggja er bölvun fyrir þjóðfélagið, sem nauðsynlegt er að koma í veg fyrir. Margir fremstu hagfræðingar síðari ára telja, að þessu megi auðveldlega afstýra með áætlunarbúskap, án verulegrar þjóðnýtingar. Þeir benda á reynslu Svía sem fordæmi. Eru þá gerðar áætlanir um nauðsynlegustu framkvæmdir þjóðarinnar, þannig, að þær séu miðaðar við fjármagn, erlendan gjaldeyri, vinnuafl þjóðarinnar o. fl. Með þessu má afstýra bæði atvinnuleysi og ofþenslu, en skapa jafnvægi og öryggi. Ef reksturinn virðist ætla að dragast saman hjá einstaklingunum, eykur ríkið framkvæmdir beint eða óbeint, til þess að afstýra kreppu og atvinnuleysi. En er framtak einstaklinganna er óvenjulega mikið, dregur ríkið úr sínum framkvæmdum, og með því móti er komið í veg fyrir ofþenslu. Það voru slík hnitmiðuð vinnubrögð, er vöktu fyrir Framsfl., er hann flokkanna fyrstur flutti till. og fékk samþ. um nefnd til að gera áætlanir um stórframkvæmdir næstu ára. Það er skiljanlegt, að ef framkvæmdir ríkisstj. byggjast ekki á framangreindum útreikningum, eru nær enginn áætlunarbúskapur, heldur þvert á móti óhugsað kák og fálm, sem í stað þess að skapa jafnvægi og öryggi veldur röskun og öryggisleysi í fjármálum þjóðarinnar meira en versta auðvaldsframtak óheft. Í höndum núv. ríkisstj. er svo kölluð nýsköpun orðin þessi tegund framkvæmda, enda hafa sjálfstæðismenn ótrú á heilbrigðum áætlunarbúskap og sömuleiðis kommúnistar nema jafnhliða byltingu.
Frá Svíþjóð voru keyptir 45 bátar áður en þessi stjórn tók við völdum. En s. l. sumar tók stjórnin sig til og gerði í mesta skyndi samninga um smíði innanlands á um 30 bátum. Tilboð, er borizt hafa frá Danmörku um smíði sams konar báta, sýna, að þar kosta þeir yfir 200 þús. kr. minna, enda hefur enginn maður enn fengizt til að gera tilboð í þessa báta ríkisstj. Þegar þess er gætt, að alls staðar vantar vinnuafl, var framleiðslu okkar nauðsynlegt að hafa þær hendur lausar til aðkallandi vinnu, sem nú stunda bátasmíðar. Engum manni kemur lengur til hugar, að nokkur maður kaupi báta þessa hærra verði en þeir fást fyrir erlendis. Beint fjárhagslegt tjón ríkissjóðs á þessum bátum verður því 6–8 millj. kr., auk þess sem þessar framkvæmdir hjálpa til þess að valda ofþenslu. En hvað munar okkur, þessa auðugu þjóð, um nokkrar milljónir!
Þá eru það togarakaupin. Nefnd þriggja manna, sem fá fararefni mun hafa skort nema sérþekkingu, var send til Englands til að kaupa togara. Nefndin samdi við skipamiðlara einn í London, sem að lokum gerði henni tilboð um kaup á 30 togurum, og varð n. að ganga að eða frá innan þriggja daga. Ríkisstj. samþykkti að kaupa. Stjórnin gaf svo út eina af sínum opinberu tilkynningum, þar sem þessum happakaupum var lýst og því með, að hver togari kostaði 1.7–1.9 millj. kr. En er sérfróðir menn fóru að rannsaka, hvað n. hafði keypt, kom í ljós, að enginn togarinn var eins og Íslendingar helzt vilja hafa þá. Þá var send ný n. til að fá öllu þessu breytt og fá aðra gerð skipa. Vita allir, hve veik aðstaða þess aðila er, sem er búinn að hlaupa á sig í samningum, búinn að binda sig og þarf nú að fá öllu breytt. Það kom líka í ljós, því að eftir seinni samningana kostaði hver togari, að vísu stærri og vandaðri, hálfa þriðju millj. kr. En svo mikið og margt vantar í skipin, og þannig eru samningarnir gerðir úr garði, að vitað er nú þegar, að togarar þessir kosta að lokum á fjórðu millj. króna. Hæstv. forsrh. lýsti því fyrir nokkru sem sérstöku happi, að þessi togarakaup hefðu verið gerð. Hann sagði, að nú væri hvergi hægt að fá byggð skip. Þá stóð upp hæstv. atvmrh., Áki Jakobsson, sem vildi kaupa 20 togurum fleira, og upplýsti, að auðvelt væri að fá smíðaða togara, því að atvinnuleysi væri nú þegar byrjað í skipasmíðastöðvum í Bandaríkjunum, sem engum kemur á óvart, því nú er meira af skipasmíðastöðvum í heiminum en nokkru sinni áður. — Ríkisstj. er nú að reyna að selja þessa togara. Til þess að fá kaupendur gerir hún það tilboð, að þeir megi gera það að skilorði fyrir kaupum, að þeim verði séð fyrir hagkvæmum lánum og að þeim verði lögheimilt að afskrifa skipin mjög mikið á næstunni, m. ö. o. yfirlýsing um, að skipin verði á næstunni alls ekki þessi virði, sem þau nú kosta, sem og vitað er. Er fresturinn var að renna út nú fyrir mánaðamótin, voru komin eitthvað þrjú skilorðsbundin tilboð, auk sjálfsagðrar beiðni Reykjavíkur um 20 togara nú fyrir bæjarstjórnarkosningarnar, þó að hún hafi engan eyri til að kaupa fyrir og vilji ekki kaupa, nema stórútgerðarmenn fáist ekki til þess. En það er haft eftir einum stórútgerðarmanni, að þessir togarar séu ókaupandi fyrir þá, sem eitthvað eigi. Til þess að koma út togurunum á nú með lögum að taka sparifé almennings í bönkunum og lána það til skipakaupa. En með því að ríkissjóður ber ábyrgð á sparifénu, situr hann og þar með almenningur áfram í súpunni þrátt fyrir sölur að nafninu til. Með þessu móti eru þeir, sem hafa auðinn og endurbyggingarsjóðina, losaðir við áhættuna af svona kaupum. Vitanlega þurfum við að kaupa skip. En afskipti ríkisins áttu að vera þau að aðstoða, leiðbeina og hafa milligöngu fyrir þá kaupendur, sem gáfu sig fram. — Það er alveg óútreiknanlegt, hve margar þær milljónir eru, sem ríkisstj. hefur tekizt að láta renna út í sandinn vegna mistaka og fálms í bátabyggingum og skipakaupum. Þó eru húsbyggingamálin eitt táknrænasta sýnishorn óstjórnarinnar. Byggingarefni hefur verið af skornum skammti. Allt árið hefur ríkisstj. horft á það alveg aðgerðalaus, að byggingarefnið er hrifsað út í sumarbústaði, stórvillur, stórbyggingar, sem ekki eru aðkallandi, og af húsabröskurum, sem byggja til að okra á því, en samvinnubyggingarfélög hefur skort efni. Nýsköpunin í húsbyggingum er þannig, að húsaleiga og húsaverð hefur hækkað daglega síðan stjórnin tók við, og er nú húsaleiga í Reykjavík fyrir 4 herbergi og eldhús í nýjum húsum um 13 hundruð kr. á mánuði, ef menn binda sig í 5 ár.
Ríkisstj. hefur, svo sem ég hef rakið, brugðizt einmitt þeim loforðum, sem, ef efnd voru, máttu miða til þess að stöðva dýrtíðina og gefa fólkinu trú á gjaldmiðilinn og framleiðsluna. Fálmkenndar framkvæmdir og heildarstefna stjórnarinnar hefur því í stað þess skapað hjá þjóðinni trúleysi á því, að verðfall krónunnar verði stöðvað. Þetta trúleysi er orðið að sjúklegum faraldri. Margir þeir, sem peninga eiga, kaupa svo að segja hvað sem þeir fá og hvað sem það kostar. Framferði stjórnarinnar er því líkast, sem það væri markmið hennar, að skjótfenginn auður þjóðarinnar renni sem fyrst út í sandinn, en ekki hið gagnstæða. Merkur útlendingur, sem héðan kom, sagði við blöð heimalands síns, að Íslendingar lifðu nú líkast því sem hver dagur væri þeirra seinasti. Ástandið, sem verðbólgustefna stjórnarinnar hefur skapað, er í stuttu máli þannig: Ríkissjóður fleytir sér enn með naumindum á brennivínsgróða og tollum. Dýrtíðinni er velt á bak bændanna að svo miklu leyti sem reynt er að sporna við henni. Stjórnin er nú einnig að koma bátaútveginum á kné. Fátækir eigendur gömlu húsanna eru rændir tekjum sínum. Eigendum nýju húsanna heldur ýmsum við örbirgð vegna dýrleika þeirra. Sparifjáreigendur lifa í stöðugum ótta vegna gengisfalls. Laun hafa verið hækkuð við launamenn.
En hvaða öryggi er í því, að ríki, sem þannig er stjórnað, standi til lengdar undir þeim greiðslum? Loks á svo að veita öllum þjóðfélagsþegnum öryggi með almennum tryggingum. En það hefur bara gleymzt að segja mönnum frá því, að peningana í tryggingarnar greiðir ríkið, atvinnurekendur og hinir tryggðu sjálfir. Ef þessir gjaldstofnar bresta, er allt tryggingakerfið að engu orðið. Með því að grafa undan afkomu ríkissjóðs og atvinnuveganna, svo sem gert er með núverandi stjórnarstefnu, er verið að taka tryggingunum gröf, áður en þær fæðast.
Mörgum ykkar sýnist lítt skiljanlegt þetta stjórnarsamstarf. En það er auðskilið. Til þess þurfið þið þó að gera ykkur ljóst, að þeir, sem stjórna kommúnistaflokknum, eru ráðnir byltingamenn, en stjórnendur Sjálfstfl. er fámennur hópur stríðsgróðamanna, sem hefur grætt tugi milljóna á styrjöldinni. Milli þessara manna, en ekki að vilja kjósendanna, eru samningarnir gerðir raunverulega um allt annað en segir í plötunni. Raunverulegi stjórnarsamningurinn er um það, að auðmennirnir fái að græða og vernda fyrst um sinn auð sinn. Það þýðir enginn stríðsgróðaskattur, nægilega lélegt skattaeftirlit, meinlausar rannsóknir og sættir í svikamálum o. s. frv., svo sem þetta hefur birzt í framkvæmd. Í stað þessa fá kommúnistar aðstöðu til áróðurs með yfirráðum yfir útvarpi og alveg sérstaklega aðstöðu til áhrifa á börn og unglinga með yfirráðum yfir uppeldismálum. Glundroðinn í fjármálum er líka þeim í hag, því að með honum eykst ábyrgðarleysi í landinu. Samningarnir eru í fæstum orðum þannig annar aðilinn fær auð, hinn áróðursaðstöðu. Báðir aðilar þessa samnings telja, að heilbrigð stjórnmálastefna sé hættulegri fyrir tilveru þeirra og áform. Á Norðurlöndum og víðar, þar sem heilbrigð umbótastefna ríkir um stjórn landsins, er stríðsgróðinn (segjum yfir 100 þús. kr.) tekinn að verulegu leyti. Þar er ekki sætzt á skattsvik og verzlunarsvik, heldur eru þau rannsökuð. Fjármagninu er varið til framfara, til þess að bæta lífskjör fólksins á kostnað stríðsgróðamanna og annarra auðmanna. Og þetta er svo rækilega á kostnað byltingarmanna, að áhrif þeirra hljóta að fara þverrandi þar, sem svona er stjórnað í samræmi við vilja og þrá fólksins. Svona stjórnarstefnu, sem heilbrigðir jafnaðarmannaflokkar hafa víða beitt sér fyrir, óttast því bæði auðmenn og kommúnistar. En hér birtist hin hefðbundna einfeldni auðmannsins ásamt sjúkri metorðagirnd. Hann skilur það ekki enn, að öryggi hans í íslenzku þjóðfélagi, eins og nú er komið og nú er stefnt, getur þegar frá líður orðið minna en öryggi fátæklings í heilbrigðu þjóðfélagi.
Ég veit ekki til, að hæstv. menntmrh., Brynjólfur Bjarnason, hafi tekið aftur þá stefnuyfirlýsingu flokks síns, að auka verði auðvaldskreppuna og atvinnuleysið til þess að herða og magna verkamenn í endurteknum verkföllum og illdeilum við verkfallsbrjóta og lögreglulið, unz kommúnistafl. verði fær um að taka völdin, ekki með kosningum, heldur með handafli. Eftir að hafa hlustað á ræðu hæstv. menntmrh. (BrB) fyrir fáum dögum, er hann ræddi um Rússland í sambandi við útvarpið, þarf enginn að efa, að þessi stefnuskrá er í fullu gildi. En eins og ég hef rakið, hefur aldrei verið unnið að því jafnmarkvisst að skapa þessa auðvaldskreppu og með verðbólgustefnu stjórnarinnar. Sjálfstæðismennirnir sumir friða sig með því, að kommúnistar muni, ef þeir eru í stjórn er allt stöðvast, hjálpa þeim til að lækka framleiðslukostnaðinn. Þetta er mjög fávíslegt. Atvinnuleysi og kreppa er einatt markið, sem byltingamenn keppa að. Ekki til þess að leysa málin, heldur til þess að geta gert lokaátakið. Þegar við blasir atvinnuleysi og örbirgð, munu kommúnistar ekki spara að benda á auðinn í klóm stríðsgróðamannanna, óhóf þeirra og allsnægtir. Það eru ekki óskynsamleg skipti að hafa fengið áróðursaðstöðuna fyrir að lofa stríðsgróðamönnum að geyma auðinn nokkur ár, til þess að geta síðar notað hann á hentugum tíma sem vopn á þá sjálfa.
Eins og ég hef sýnt, hafa loforðin á plötunni alls ekki verið efnd. Það stóð aldrei til. Platan og nýsköpunin eru leiksýningar til þess að dylja kjarna samningsins. Skrafið um frið milli verkamanna og atvinnurekenda er til þess að dylja það, að aldrei hefur verið stefnt til stærri ófriðar milli þessara aðila en nú. Siglingaverkfallið er lítið forspil. Það var leyst með meðgjöf frá erlendum skipum.
Þið munuð spyrja: Hvað á að gera? Leiðin er aðeins ein, og hún er augljós. Það er að lækka framleiðslukostnaðinn, með átaki allra, ekki sízt stríðsgróðans, við hæfi verðlags á útfluttri vöru okkar. Með þessu er aftur skapað traust á gjaldmiðlinum og öryggi framleiðslunnar. Það er sá grundvöllur, sem fjármálalíf verður að hvíla á til þess að það sé heilbrigt. Þetta er stefna Framsfl., yfirlýst stefna búnaðarþings og fiskiþings. Á þessum grundvelli á að reisa, ekki pappírsnýsköpun, fjárhagslega sjúka og feiga, heldur raunverulega nýsköpun, sem kemur frá þjóðinni sjálfri, vegna þess að framleiðendum er skapað öryggi í stað sívaxandi öryggisleysis. Á þessum grundvelli er auðvelt, þar sem þjóðin hefur nú fjármagn, að hefja þær stórfelldustu framfarir, er landsmenn hafa lifað, gerðar samkv. áætlun um næstu 2–5 ár eftir hnitmiðuðum útreikningi á fjármagni, auðlindum, erlendum gjaldeyri og vinnuafli þjóðarinnar, þannig að hvorki verði atvinnuleysi né ofþensla. Framsfl. hefur á reiðum höndum hina stórfelldustu framfaraáætlun og hefur á þessu þingi sýnt í frumvarpsformi þann hluta hennar, sem helzt þótti von til, að nú gengi fram. Það yrði of langt mál að greina efni þessara frv., enda eru þau till. um stórfelldar framfarir í flestum atvinnumálum og menningarmálum þjóðarinnar. Það er þessi stefna, sem meiri hluti svo að segja allra þjóða Vestur-Evrópu hefur kosið. Meiri hluti kjósenda fæst ekki fyrir þessari stefnu hér, fyrr en hann skilur, að stjórnarsáttmálinn er það, sem ég hef sýnt, að hann er. Það er ekki nóg, að verulegur hluti kommúnista og sjálfstæðismanna séu mótfallnir stefnu stjórnarinnar og næstum allir Alþýðuflokksmenn nema ráðherra og nokkrir þm. Hinir óánægðu verða að slíta af sér flokksböndin og mynda með Framsfl. fylkingu, nægilega sterka og heilsteypta, ekki aðeins til þess að rísa gegn stefnu stjórnarinnar, heldur og til baráttu fyrir stefnu lýðræðissinnaðra umbótamanna, stefnu, sem ég hef nokkuð markað hér að framan, stefnu, sem fólkið í nálægum löndum og okkur andlega skyldast hefur valið. Ég hygg, að gæfa íslenzku þjóðarinnar, ég segi frelsi hennar og tilvera, sé undir því komin, að þessi fylking verði nægilega samstillt og sterk til þess að svigna hvorki fyrir valdi stórgróðaklíkunnar, er stjórnar Sjálfstfl., né ofbeldi ráðinna byltingamanna, heldur beri heilbrigða stefnu umbótamanna, sem er þrá mikils meiri hluta þjóðarinnar, fram til sigurs.