11.12.1945
Sameinað þing: 16. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (329)

16. mál, fjárlög 1946

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Frv. það til fjárl. fyrir árið 1946, sem hér er til umræðu, er í höfuðatriðum svipað fjárl. þessa árs. Rekstrargjaldaáætlun 113 millj., en tekjur svipaðar eða sem næst því hinar sömu. Heildarútgjöldin eru hins vegar 13 millj. hærri og greiðsluhalli nálægt þessu. Samkvæmt till. fjvn. hækka gjöldin alls um 13,8 millj., en að sjálfsögðu er hér aðeins um áætlun að ræða.

Það lætur því nærri, að útgjöld ríkisins svari til 1000–1100 króna á hvert mannsbarn í landinu, og sömu upphæð verður ríkissjóður að heimta af þjóðinni, einn veg eða annan. liggur því í augum uppi, hversu mjög fjárstjórn ríkisins hlýtur að hafa rík áhrif á fjárhag og afkomu hvers manns í landinu, þótt eingöngu sé litið til fjárhæðanna. En einnig, og engu síður, er hitt þýðingarmikið fyrir landsmenn alla, hversu þessum feikna upphæðum er ráðstafað, að þær séu notaðar til að auka og efla menningu fólksins í landinu og tryggja lífskjör þess og atvinnu. Það mun láta nærri, að tekjur sveitar- og sýslufélaga um land allt nemi sem svarar helmingi af tekjum ríkissjóðs. Liggur í augum uppi, að það er að mjög miklu leyti á valdi þessara aðila að hafa áhrif á atvinnuskilyrði í landinu, — að gera vinnuna tryggari og jafna atvinnu frá ári til árs. Í þessu sambandi þykir mér rétt að benda á, að það mikla fé, sem í fjárl. er ætlað til margháttaðra nauðsynlegra verklegra framkvæmda, á ekki að nota á þann hátt, að það verði til þess að hindra eða torvelda aðrar nauðsynlegar framkvæmdir. Ekki má leggja svo mikið kapp á opinberar byggingar, sem þola bið, að það verði til þess að koma í veg fyrir, að fagmenn, efni og verkafólk fáist til nauðsynlegra íbúðabygginga eða dragi frá nauðsynlegum framkvæmdum til framleiðsluaukningar. Þá er betra að geyma féð og nota það síðar, þegar rýmra er um efni og meiri þörf atvinnu. Hlutverk hins opinbera er að jafna atvinnu frá ári til árs með framkvæmdum sínum.

Hæstv. ríkisstjórn hefur nú ráðið ríkjum hér í rúmt ár. Mér þykir því hlýða á þessum heiðursdegi hennar, eldhúsdegi, að rifja lítillega upp tildrögin að því, að hún tók við stjórnartaumunum, hverju hún hefur til vegar komið og hver verkefni rétt er að vænta, að hún og þetta þing leysi.

Verð ég þá fyrst með örfáum orðum að drepa á, hversu ástatt var, þegar hún tók við, og hvers vegna Alþýðuflokkurinn ákvað að styðja hana og eiga þátt í henni.

Þegar Alþingi kom saman haustið 1944, fór utanþingsstjórn með völd. Hún var skipuð góðum mönnum og gegnum. En henni hafði ekki tekizt að ná samstarfi við þingið, — hafði ekki þingmeirihluta að baki. Sex manna nefndar niðurstaða um verðlag landbúnaðarvara gilti sem lög. Um 25 millj. króna varð ríkissjóður að greiða með þessum vörum til þess að afstýra, að vísitalan færi upp úr öllu viti. Því var opinberlega yfirlýst, að bændur þyrftu að fá kr. 17,85 fyrir hvert kg. af kjöti innanlands, ef hætt væri að greiða uppbætur á útflutningsafurðir þeirra. Stjórnin vildi lækka kaup og afurðaverð með lögum. Atvinnurekendur treystu á kauplækkun, ef færi gæfist, verklýðssamtökin hugðu til hækkana á ýmsum svíðum. Búnaðarþing, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur töldu viðhlítandi óbreytt verð afurða innanlands, ef útflutningsuppbót yrði tryggð, en létu það fylgja með, að þau væntu jafnframt almennrar kauplækkunar og áframhaldandi hlutfalls sex manna nefndarinnar milli kaups og afurðaverðs. Ýmsir töldu þetta fyrirboða samstjórnar Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins, sömu flokkanna og settu gerðardómslögin sællar minningar. Af því varð þó eigi. Stríðsgróðinn streymdi enn inn í landið. Alltaf fjölgaði heildsölum, þrátt fyrir verðlagseftirlit og viðskiptaráð. Enginn þingmeirihluti fáanlegur með því að skattleggja stríðsgróðann, eignaaukningu stríðsgróðans sérstaklega, né til þess að koma föstu skipulagi á innflutningsverzlunina og flutninga til landsins. Verðbólgan jókst og alls konar spákaupmennska án þess nokkuð fengist að gert. Stríðið enn í algleymingi, þótt endalok þess mættu teljast fyrirsjáanleg. Innstæður landsmanna erlendis voru komnar yfir 500 millj. ísl. króna. Það, sem því mest kallaði að þá, var að gera ráðstafanir til þess, að þessu fé yrði breytt í varanleg innlend verðmæti og koma þannig í veg fyrir, að það yrði gert að eyðslueyri og yki enn á verðbólguna og afleiðingar hennar.

Allt frá því samkomulag náðist um lausn sambandsmálsins og stofnun lýðveldis vorið 1944, höfðu viðræður öðru hverju átt sér stað milli þingflokkanna fjögurra um nauðsyn samsteypustjórnar. Allir virtust sammála um, að nauðsynlegt væri, að mynduð yrði stjórn, sem hefði þingmeirihluta eða alla flokka að baki sér. Þegar viðræður þessar urðu árangurslausar, sneri formaður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Thors, sér til Alþýðuflokksins og spurðist fyrir um, hvort hann vildi styðja og taka þátt í stjórn þriggja flokka, Sjálfstæðisflokksins, Sósíalistaflokksins og Alþýðuflokksins.

Afstaða Alþfl. hafði í öllum þessum viðræðum, eins og líka í viðræðum um myndun stjórnar með Framsfl. og Sósfl. veturinn 194–43, ávallt verið hin sama: þ. e. að það færi eftir málefnum, hvað gert yrði. Sama var svarið við málaleitan Ólafs Thors, það, hvort Alþfl. tæki þátt í stjórnarmyndun, væri fyrst og fremst undir því komið, hvaða mál stjórnin tæki að sér að koma fram, hvenær og á hvern hátt. Alþýðuflokkurinn krafðist þess, að flokkarnir gerðu með sér opinberan málefnasamning, sem stjórnarsamstarfið yrði byggt á. Því meiri nauðsyn opinberra samninga, sem vitað var, að milli Alþfl. og hinna flokkanna hvors um sig höfðu verið litlir kærleikar, mjög mikill skoðanamunur við Sjálfstfl. um málefni og við Sósfl. um aðferðir til að koma málum fram og um baráttuaðferðir. Niðurstaðan varð sú, að hinir tveir flokkarnir féllust á svo margar og þýðingarmiklar kröfur Alþfl., að flokkurinn ákvað að taka þátt í stjórnarmyndun og samstarfi á þeim grundvelli, sem í málefnasamningnum segir. Samningurinn er öllum kunnur. Skal því ekki fjölyrt um hann. En það er ekki ofmælt, að hann fékk yfirleitt góða dóma hjá þjóðinni, þótt ýmsum þætti næsta undarlegt, að Sjálfstfl. og Sósfl. hefðu fallizt á ýmis atriði hans.

Eins og áður er sagt, taldi Alþfl. höfuðnauðsyn, að tafarlaust yrðu gerðar ráðstafanir til þess, að mikill hluti erlendu inneignanna yrði bundinn til kaupa á framleiðslutækjum til þess að tryggja framtíðaratvinnu, meiri eftirtekjur af hverri vinnustund eða degi og fyllri hagnýtingu afurðanna, En augljóst var, að það yrði eigi gert, ef hörð átök og harkalegar deilur yrðu vegna krafna um kauplækkanir eða óeðlilegar kauphækkanir. Alþfl. taldi því nauðsynlegt að fá tryggingu fyrir því, að svo yrði eigi a. m. k. — á næsta ári, meðan þessar ráðstafanir yrðu gerðar. Yfirlýsing atvinnurekendasambandsins um, að þeir mundu ekki leita eftir kauplækkun á árinu 1946 og yfirlýsing Alþýðusambandsins fyrir sama tíma var Alþfl. nægileg trygging í þessu efni.

Í samræmi við óskir og till. Alþfl. var því yfirlýst af forsætisráðherra, er hann gerði grein fyrir málefnasamningnum, að það væri meginstefna. stjórnarinnar að tryggja það, að allir landsmenn gætu haft atvinnu við sem, arðbærastan atvinnurekstur. — Þessu marki skyldi leitazt við að ná meðal annars með þessu: „1. Af erlendum gjaldeyri bankanna í Bretlandi og Bandaríkjunum sé jafnvirði eigi minna en 300 millj. íslenzkra króna sett á sérstakan reikning. Má eigi ráðstafa þeim gjaldeyri án samþykkis ríkisstjórnarinnar og eingöngu til kaupa á eftirtöldum framleiðslutækjum :

1. Skip, vélar og efni til skipabygginga o. fl., samtals a. m. k. 200 milljónir króna.

2. Vélar og þess háttar til aukningar og endurbóta á síldarverksmiðjum, hraðfrystihúsum, niðursuðu svo og til tunnugerðar, skipasmíða o. fl. — um 50 milljónir króna.

3. Vélar og þess háttar til áburðarverksmiðju, vinnslu og hagnýtingu landbúnaðarafurða og jarðyrkjuvélar og efni til rafvirkjana o. fl. — um 50 milljónir króna. Fært skal milli flokka, ef ríkisstjórnin telur ráðlegt, að fengnum tillögum nefndar þeirrar, sem um getur í 4. lið hér á eftir. Nefnd sú geri sem fyrst tillögur um frekari hagnýtingu erlendra innstæðna, svo sem um efniskaup til bygginga. Almennt byggingarefni, svo sem sement og þess háttar, telst með venjulegum innflutningi. Efni til skipa, véla og þess háttar, sem smíðað er innanlands, telst með innflutningi framleiðslutækja.

2. Ríkisvaldið hlutast til um, að slík tæki verði keypt utanlands eða gerð innanlands svo fljótt sem auðið er.

3. Tæki þessi skulu seld einstaklingum og félögum, og slík félög m. a. stofnuð að opinberri tilhlutan, ef þörf gerist.

Framleiðslutæki, sem keypt kunna að verða fyrir framlag hins opinbera að nokkru eða öllu leyti, skulu ekki seld með tapi, nema öll ríkisstjórnin samþykki eða Alþingi ákveði.

4. Ríkisstjórnin skipar nefnd, er geri áætlanir um, hver atvinnutæki þurfi að útvega landsmönnum til sjávar og sveita, til að forðast, að atvinnuleysi skapist í landinu.

5. Ríkisstjórnin setur nánari reglur um starfssvið nefndarinnar og vald hennar. Skal þar m. a. ákveðið, að nefndin skuli leita fyrir sér um kaup framangreindra framleiðslutækja erlendis og smíði þeirra innanlands og hafa milligöngu fyrir þá aðila, sem þau vilja kaupa og þess óska.

Komi í ljós, að vegna viðskiptareglna annarra þjóða verði talið hagkvæmt eða nauðsynlegt, að einungis einn aðili fjalli um kaup ofangreindra tækja, svipað og nú er um sölu á flestri útflutningsvöru landsmanna, skal ríkisvaldið hafa alla milligöngu í þeim efnum.

6. Við nýsköpun þá á atvinnulífi þjóðarinnar, er hér hefur verið getið, skal hafa sérstaka hliðsjón af þeim sölumöguleikum, sem tekst að tryggja Íslandi í heimsviðskiptunum.

Framkvæmdum innanlands í sambandi við öflun þessara framleiðslutækja skal haga með hliðsjón af atvinnuástandi í landinu, í því skyni, að komið verði í veg fyrir atvinnuleysi, meðan verið er að útvega hin nýju framleiðslutæki.

Ríkisstjórnin mun taka til athugunar, hverjum öðrum framkvæmdum ríkisvaldið skuli beita sér fyrir í því skyni að forðast atvinnuleysi.

Fjár til þessara þarfa skal, að svo miklu leyti sem það fæst eigi með sköttum, aflað með lántökum, e. t. v. skyldulánum. Athugað skal, hvort til greina komi skylduhluttaka í atvinnutækjum eftir fjáreign.“

Krafa Alþfl. um það, að mestur hluti stríðsgróðans í erlendum innstæðum yrði notaður til kaupa á hentugum nýtízku framleiðslutækjum, er beint framhald af fyrri stefnu flokksins og aðgerðum. Frumskilyrði þess, að atvinnureksturinn geti veitt þeim, sem hann stunda, lífvænleg kjör, er, að áhöld og tæki, sem notuð eru, séu sem hentugust og fullkomnust, svo að hver vinnustund eða dagur verði verðmeiri, skili meiri afrakstri. Í stað þess að einblína á lækkun kaups á að beina orku og athygli að því að auka afköstin og hagnýta afurðirnar til hins ýtrasta. Hann álítur það engan „slettirekuskap“, þótt hið opinbera, ríki og sveitarfélög hafi afskipti af þessum málum, telur það þvert á móti höfuðverkefni þessara aðila. Þótt sumir hafi orðað það svo, að með því væri hið opinbera að „flækjast fyrir einkaframtakinu,“ þá hefur hann aldrei látið það á sig fá. Hann lítur svo á, að starfsorka sé undirstaða allrar velmegunar og því sé það skylda þjóðfélagsins að sjá fyrir því, að þeir, sem vinna, eigi völ hinna beztu tækja.

Mín fyrsta ganga hér á Alþingi fyrir nærri 18 árum var þeirra erinda að útvega Samvinnufélagi Ísfirðinga ríkisábyrgð, svo að það gæti með tilstyrk bæjarins, hafnarsjóðs og ýmissa góðra manna komið upp útgerð í bænum, þegar einkaframtakið brást og lánardrottnar seldu mest af skipunum burt úr bænum. Þá var ráðizt í það að kaupa, ekki gömul skip og ódýr, heldur nýjustu og hentugustu gerð báta, sem þá voru fáanlegir, 7 báta nálægt 50 lestum hvern. Ýmsum þótti þetta í stórt ráðizt þá, bærinn eignalítill og mennirnir flestir örsnauðir. En þessi stofn hefur síðan verið undirstaðan undir athafnalífi bæjarins, undirstaða undir freka.ri framkvæmdum og áframhaldandi vexti bátaflotans þar. Ísfirðingar eru nú að undirbúa stofnun iðjuvers til að hagnýta allar fiskafurðir til fullnustu, auk stórfelldrar stækkunar bátaflotans.

Síldarverksmiðjur ríkisins voru næsta skrefið. Þeim var komið á fót gegn harðsnúinni baráttu og þrátt fyrir mestu hrakspár. Síldarverksmiðjunum hefur síðan fjölgað og þær stækkað svo, að síldariðnaðurinn er nú einn veigamesti þátturinn í atvinnulífi okkar. Síldin hafði áður verið eins og happdrætti. Aðeins örlítill hluti var saltaður af því, sem hægt var að veiða. Síldarkaupmennirnir voru stórríkir annað árið og gjaldþrota hitt.

Þegar erlenda útgerðin í Hafnarfirði hætti, var ástandið ekki ósvipað þar og á Ísafirði. Þá réðst bærinn í það stórræði að kaupa togara 1931 og annan 1934. Það er ekki ofmælt, að bæjarútgerðin í Hafnarfirði hafi ... ............

Hæstv. atvmrh. fannst fátt til um samstjórn Alþfl. og Framsfl. 1934–38. En það er öllum kunnugt, að þetta voru erfið ár. Saltfiskmarkaðir brugðust eða lokuðust með öllu, og fiskflutningar voru takmarkaðir. Fyrstu verk samstjórnarinnar voru að leita nýrra úrræða, nýrra leiða í stað þeirra, sem lokuðust. Síldarútvegsnefnd tók við sölu saltsíldarinnar eða síldin var verkuð á annan hátt og síldarverksmiðjurnar voru auknar mjög. Fiskimálanefnd var sett á stofn. Hún gekkst fyrir byggingu hraðfrystihúsa og tók við útflutningi á freðfiski, en sá atvinnuvegur hefur síðan farið hraðvaxandi ár frá ári. Auk þess mikla undirbúningsstarfs, sem unnið var á þessum sviðum árin 1935–'38, hefði eigi verið unnt að færa sér í nyt þá miklu sölumöguleika fyrir freðfisk, sem mynduðust eftir að stríðið hófst. Þá var einnig hafin karfaveiði og karfavinnsla og herðing á fiski og fengin mikil reynsla, sem síðar mun að gagni koma. Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda var stofnað og niðursuðuverksmiðja byggð. Sogsvirkjunin var framkvæmd á þessum árum og undirbúningi lokið undir virkjun á Ísafirði og Akureyri.

Fyrir þessu þingi liggur frv. frá atvmrh., þar sem gert er ráð fyrir, að 15% af andvirði útflutnings vors renni í nýbyggingar til kaupa á framleiðslutækjum. Þetta er sjálfsögð og skynsamleg ráðstöfun. Í grg. þessa frv. er línurit, sem sýnir, að á árunum 1935–'39 hafi að meðaltali 13% af útflutningi, en það svarar til 15% af innflutningi, verið varið til kaupa á nýjum framleiðslutækjum. Þetta er þá aukningin, sem hann ætlast til, að gerð verði frá þessum hraksmánarlegu árum.

Ég hef talið rétt að drepa á þessi atriði til þess að sýna fram á samhengið milli fyrri aðgerða Alþfl. og framkvæmda og fyrirætlana núverandi ríkisstj. á þessum sviðum. Af þessu er ljóst, hvers vegna Alþfl. lagði svo mikla áherzlu á það, að ýtarlega yrði kveðið á í stjórnarsamningnum um þetta atriði, kaup á nýjum framleiðslutækjum.

Ég sagði áðan, að stjórnarsamningnum hefði yfirleitt verið vel tekið. Þó er ekki því að leyna, að af hálfu stjórnarandstöðunnar, Framsfl., hefur þessu verið fundið margt til foráttu: Röksemdafærsla þeirra hefur verið mjög einkennileg, vegna þess að tvenn rök hafa þar verið flutt af sömu mönnum. Í fyrsta lagi, að það sé fullkomið glapræði að rjúka til í flýti og kaupa framleiðslutæki. Við eigum heldur að bíða og geyma peningana, þangað til skipin og önnur tæki lækka í verði. Kaupið er líka svo hátt, að útgerð skipanna getur ekki borið sig. Við eigum að bíða með kaupin, þar til reksturinn er tryggður. Í öðru lagi harma svo þessir sömu menn, að ekkert muni verða úr framkvæmdum og loforðum ríkisstj. sé ekki treystandi í þessu efni. Yfirlýsingin sé markleysa, tálvonir og gyllingar handa fólkinu, allt verði þetta svikið. Þeir séu þeir réttu nýsköpunarmenn. Hvort tveggja getur þetta ekki staðizt: Eitt rekur sig á annars horn. Nú er varla hægt að hampa síðari röksemdinni lengur. Þegar hafa verið keyptir 30 togarar, yfir 100 vélbátar og 10–20 ýmiss konar flutningaskip. Hér er beinlínis sköpuð atvinna fyrir a. m. k. 3000 manns. Þegar þess er gætt, að ekki eru nema 7 mánuðir liðnir síðan Evrópustríðinu lauk og enn skemmra síðan Japanar gáfust upp, verður ekki annað með sanni sagt en ríkisstj. hafi staðið við loforð sín í þessu efni, gert það, sem í hennar valdi stóð.

Stríðsgróðinn á að vera, stofnfé og áhættufé fyrir þann grundvöll, sem nýsköpunin byggist á, en ekki er enn séð, hverjir verða kaupendur hinna nýju framleiðslutækja og reka þau. En svo sýnir það sig, er þeir, sem mest hafa grætt, draga sig í hlé og vilja ekki hætta gróðanum, að þá verður enn meira knýjandi, ég vil segja óhjákvæmilegt, að taka af stríðsgróðanum. —En hefði verið skynsamlegra að bíða? Hve lengi? Hvenær lækkar verðið úti, — og hvenær verður fengin trygging fyrir því, að reksturinn beri sig? Og hvað verður mikið eftir af hinum erlendu innstæðum, þegar sá tími er kominn? Ef við getum ekki lifað af því að veiða og verka fisk og selja hann í samkeppni við aðrar þjóðir, þegar við höfum jafngóð eða betri skip en þær, á hverju getum við þá lifað?

Annað atriði í stjórnarsamningnum þykir mér rétt að nefna. Stj. hét því samkv. kröfu Alþfl. að setja ný lög um laun opinberra starfsmanna þegar á þingi í fyrravetur. Það loforð var efnt að fullu á tilsettum tíma, og var þar með mikil réttarbót fengin, sem bæði var nauðsynleg og gleðileg. Næsta skrefið á að vera að setja lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. — Í stjórnarsamningnum er ekkert ákvæði beinlínis um úrbætur á húsnæðisleysinu. En í yfirlýsingu, sem ég las upp áðan, segir, að gera skuli „tillögur um frekari hagnýtingu erlendra innstæðna, svo sem um efniskaup til bygginga“. — Ástæðan til þess, að Alþfl. taldi ekki rétt að fastbinda meira en 300 millj. kr. til kaupa á framleiðslutækjum, var sú, að honum var ljóst, hversu aðkallandi var að ráðast í stórfelldar byggingar íbúðarhúsa, auk byggingarframkvæmda í sambandi við hin nýju framleiðslutæki. Þess vegna var nauðsynlegt að sjá um, að nægur erlendur gjaldeyrir væri eftir skilinn til að mæta þörfinni fyrir byggingarefni.

Um húsnæðisvandræðin og nauðsyn íbúðarbygginga er óþarft að fjölyrða. Ástandið í þessum efnum er á hvers manns vitorði. Nú hefur félmrh. (FJ) lagt fyrir Alþ. frv. til l. um opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum, en byggingar í sveitum er ekki talið, að falli undir verksvið hans, en fylgi landbúnaðarmálunum. — Þykir mér rétt að gera stuttlega grein fyrir helztu nýmælum í frv. þessu, þar eð ég tel, að ef það verður að lögum, sé stórt spor stigið til þess að vinna bug á húsnæðisvandræðunum.

Frv. er í 4 köflum. Hinn fyrsti er um breytingu á l. um verkamannabústaði, annar kaflinn er um byggingarsamvinnufélög, þriðji kaflinn um íbúðarbyggingar sveitarfélaga og hinn fjórði um innflutning og skiptingu byggingarefnis o. fl. Lögin um verkamannabústaði voru sett og hafa síðan verið endurbætt fyrir forgöngu Alþfl. gegn harðri andstöðu þeirra, sem telja, að einkaframtakið eigi að leysa þessi mál. Þau hafa þegar gert stórkostlegt gagn, en væru nú ófullnægjandi til að leysa þau verkefni, sem aðkallandi eru, nema þeim sé breytt og fjárframlög aukin.

Helztu breyt. samkv. frv. eru þessar:

1. Tillag sveitarsjóða og ríkis hækkar úr 2 kr. frá hvorum aðila upp í 4 kr. lágmark, en má fara upp í 6 kr., ef bæjarstjórn ákveður verðlagsuppbót.

2. Inngönguskilyrði eru rýmkuð. Allir, sem ekki fara fram úr 7000 kr. tekjum að viðbættum 4000 kr. fyrir hvert skyldmenni, geta notið fullra réttinda.

3. Stofna má innlánsdeildir í félögunum, þar sem menn geta safnað smám saman fyrir framlagi sínu í íbúðina.

4. Vextir verði 2%.

5. Lánstími verði allt að 75 árum.

6. Lánin verði í 4 flokkum. Þeir, sem geta lagt meira fram og betur eru stæðir, fá lán til 42 ára, allt að 85% kostnaðarverðs. Þeir, sem minnsta getu hafa, fá lán til allt að 75 ára og 90% af kostnaðarverði. Til þess að eignast íbúð, sem kostar 66–67 þús. kr., þarf því að leggja fram 6–7 þús. kr. Ef 66 þús. kr. lán fæst til 75 ára, yrði ársgjaldið 1548 kr., afborganir og vextir, eða aðeins 129 kr. á mánuði. Ef lánið er til 42 ára, yrði ársgjaldið 2124 kr., eða 171 kr. á mánuði.

Sé gert ráð fyrir, að l. taki til staða með 10 þús. íbúa, yrðu tekjur byggingarsjóðsins frá 1,9 millj. til 2.7 millj., en það ætti að nægja til að greiða vextina af 2000 íbúðum. Tekjur byggingasjóða Rvíkur, ef framlag er 6 kr., ætti að verða ca. 1,4 millj. á ári, en það ætti að nægja fyrir vöxtum eitthvað á annað þúsund íbúa.

Gert er ráð fyrir, að samvinnubyggingarfélögin fái ríkisábyrgð fyrir 80% af kostnaðarverði og mega vera tvö í hverju sveitarfélagi.

Hér í Rvík búa um 1500 manns í bröggum og 200 fjölskyldur í húsnæði, sem er alveg óhæft til íbúðar. Ekki er hægt að búast við því, að verkamannabústaðir og samvinnufélög leysi vanda alls þessa fólks. En slík íbúðarhverfi eru meinsemd, mannskemmandi. Þessu verður að útrýma. Skv. frv. er gert ráð fyrir, að þar, sem fólk býr í heilsuspillandi íbúðum og ekki verður úr bætt á annan hátt á nægilega skömmum tíma, skuli bæjarfélagið gera ráðstafanir, er bæti úr húsnæðisvandræðunum á 4 árum, með því að byggja sjálft íbúðir. Ríkissjóður og bæjarsjóður leggi þá hvor um sig fram 16% af kostnaðinum, en 4/5 hluta skal ríkissjóður útvega sem lánsfé til 50 ára með 3% vöxtum. Íbúðirnar má síðan selja eða leigja þeim, sem húsnæðislausir eru og ekki geta notað sér samvinnufélög eða verkamannabústaði.

Samkv. fjórða kafla frv. er gert ráð fyrir, að ef skortur er á byggingarefni og iðnaðarmönnum, skuli skammta efnið þannig, að íbúðarhús til almenningsþarfa gangi fyrir ásamt nauðsynlegustu framkvæmdum í sambandi við framleiðsluna. Það er ekki ofmælt, að ef frv. þetta verður að l. og framkvæmd þeirra er í lagi, þá sé stórt skref stigið til þess að vinna bug á húsnæðisleysinu og bölvun þess. Ekki er um þetta samið beinlínis. En ég vænti þó, að Alþ. sjái nauðsynina og samþ. það í höfuðatriðum. Bæjarstjórn Reykjavíkur hefur einróma skorað á Alþ. að gera svo. — En við svo búið má ekki standa. Börn ná ekki fullum þroska. Fullorðnir bíða heilsutjón. Allt heimilislíf er að engu gert.

Eins og fyrr var sagt, lýsti ríkisstj. því yfir sem meginstefnu sinni, að allir landsmenn hafi atvinnu við sem arðvænlegastan atvinnurekstur. Í yfirlýsingu ríkisstj. segir einnig, að ríkisstj. hafi ákveðið að koma á á næsta Alþ. jafnfullkomnu kerfi almannatrygginga og í nágrannalöndunum. Um þetta voru einnig gerðir samningar þegar Alþfl. og Framsfl. gengu saman í stjórn 1934. Samkv. þessu frv. er öllum tryggingum steypt saman í eitt kerfi. Tryggingin er að meginefni tvíþætt: Annars vegar heilsuvernd og hins vegar tekjutrygging. — Í Rvík er gert ráð fyrir 1970 kr. í ellilífeyri fyrir hjón, þegar bæði fá lífeyri, en 1200 kr. á ári, þegar aðeins annað fær hann. Utan Rvíkur og kaupstaða, sem hafa yfir 2000 íbúa, verða upphæðirnar 1440 kr. fyrir hjón og 900 kr. fyrir einstaklinga. Ef gamalmenni tekur ekki lífeyri strax, hækkar hann um 5% með hverju ári, sem líður framyfir 67 ára aldur. Barnalífeyrir er greiddur, unz börn eru fullra 16 ára, eftir nánar ákveðnum reglum, og er hann 800 kr. í Reykjavík og stærri bæjum, en kr. 600 á stöðum undir 2000 íbúa. Þessi lífeyrir er greiddur elli- og örorkulífeyrisþegum, ekkjum, börnum, sem misst hafa foreldra sína og enga fyrirvinnu hafa, fráskildum konum o. fl. — Þá eru greiddar fjölskyldubætur til foreldra, sem hafa á framfæri 4 börn eða fleiri innan 16 ára aldurs. Fjölskyldubæturnar eru í Rvík 400 kr., en á stöðum undir 2000 íbúa 300 kr. Bæði barnalífeyri og fjölskyldubætur skal eingöngu nota til framfærslu og menntunar börnum þeim, sem hlut eiga að máli. — Þá skal greiða bætur til mæðra og ekkna. Gert er ráð fyrir þrenns konar bótum til mæðra við barnsburð. Í fyrsta lagi 80 kr. sem allar mæður eiga rétt á, og í öðru lagi fá mæður, sem vinnu stunda utan heimilis, auk þessara 80 kr. 140 kr. á mánuði í allt að 3 mánuði, ef vissum skilyrðum er fullnægt, og í þriðja lagi fá mæður, sem ekki stunda atvinnu utan heimilis síns, auk þessara 80 kr. 20 kr. upp í fæðingarkostnaðinn. Öllum ekkjum sé greiddur lífeyrir, og auk þess fá allar ekkjur barnalífeyri, sem hafa börn á framfæri sínu innan 16 ára aldurs. Mæður, sem stunda atvinnu utan heimilis síns, fá fæðingarstyrk, sem nemur 140 kr. á mánuði. Er hann greiddur í 12 vikna tíma, — í 6 vikur fyrir barnsburð og 6 vikur eftir. Kona, sem hefur 3 börn á framfæri sínu, fær fyrir börnin 7000 kr., en fyrir sjálfa sig. 1700 kr. Þetta eru hinar föstu greiðslur, en auk þess eru greiddir dagpeningar fyrir sjúkralegu. Í sjúkrabætur er greitt kr. 7.50 á dag fyrir gifta menn, en kr. 5.00 fyrir ógifta. Tilgangurinn með þessu er sá að tryggja að móðirin þurfi ekki að líða skort, þótt tekjurnar bregðist. Við lítum svo á, að það sé meginskylda þjóðfélagsins að tryggja félagslegt öryggi þegnanna gegn skorti og öðru böli, sem orsakast af þeim ástæðum, sem hlutaðeigendur eiga ekki vald á. Þegnarnir eiga rétt á, að þjóðfélagið veiti þeim slíkt öryggi í svona tilfellum.

Samkv. frv. er gert ráð fyrir, að allir hafi sama rétt til bóta. Sumum finnst það óeðlilegt, vegna þess að menn hafa mismunandi tekjur. Um þetta eru skiptar skoðanir, en þó varð það ofan á í n. að láta alla hafa sama rétt, og er þetta algerlega í samræmi við annað þvíumlíkt, sem hér hefur tíðkazt, svo sem við slysatryggingar, í sjúkrasamlögunum, við lífeyrisgreiðslu o. s. frv. Einnig er veittur styrkur til landbúnaðar og sjávarútvegs án tillits til efnahags, enda er mat á efnahag manna hvimleitt og vandasamt verk, sem nær ekki tilgangi sínum. Það sýnir sig samkv. skýrslum, að það er sáralítill hluti þjóðarinnar, sem er svo efnum búinn, að hann þarf ekki á styrk að halda, og um hann munar því tiltölulega lítið. N. leggur til, að lífeyrisgreiðslur verði háðar efnahag manna 5 fyrstu árin frá gildistöku l., en síðan eða eftir 1. jan. 1952 hefjist fullar lífeyrisgreiðslur án tillits til tekna.

Iðgjöldin eru breytileg. Lægsta gjald er fyrir ógifta konu á 2. verðlagssvæði 7 kr. á mánuði, en hæst 15 kr. á mánuði fyrir kvæntan mann á 1. verðlagssvæði, miðað við núv. vísitölu, 285. Atvinnurekendur eiga að borga slysatryggingu og auk þess fast iðgjald fyrir hvern þann, sem rétt á til slysabóta.

Heilsuvernd verður aukin verulega, og sjúkrasamlögin taka hana undir sína þjónustu. Í staðinn fyrir mörg gjöld, t. d. í sjúkrasamlög og lífeyrissjóð, og þar af leiðandi verða margar tegundir sjóða, er nú ætlazt til, að öll þessi gjöld renni í einn sjóð, tryggingasjóð, er tekur yfir allar tegundir trygginga.

Hvað kostar nú allt þetta? munu margir spyrja. Áætlaður kostnaður er samtals 72 millj. kr. En nú er varið 40 millj. til þessara trygginga, svo að bein kostnaðaraukning er 32 millj. kr. Ráðgert er, að þessi auknu útgjöld skiptist þannig: Hinir tryggðu greiði 20.9 millj. eða 29%. Atvinnurekendur greiði 11.8 millj. eða 16.5%. Sveitarfélög greiði 15.3 millj. eða 21%. Ríkissjóður greiði 24 millj. eða 33.5%. Ætlazt er til, að framlag ríkissjóðs hækki um 11 millj. kr., en sveitarfélaga um 5 millj. kr. — Tekjur í fjárl. eru nú áætlaðar um 138 millj. kr., en útgjaldaaukningin, sem af tryggingunum leiddi, er 11 millj. kr. Hækkun þeirra mundi því nema 9–10% til að ná settu marki. Heildarupphæð útsvara landsmanna nemur nú 50 millj., og lætur því nærri, að aukning útsvaranna mundi einnig nema 10%. Nú er ekki nema eðlilegt, þótt einhver spyrði: Er okkur þetta ekki um megn? Þá er fyrst að athuga tekjur þjóðarinnar í heild. Árið 1943 námu þær um 750 millj., en 1944 hafa þær sennilega numið 800 millj. Ef þetta er rétt, þá ættu heildarútgjöld trygginganna að nema 9% af þjóðartekjunum. Ekki verður með sanni sagt, að það sé ýkja mikið, þegar þess er gætt, hversu víðtækar tryggingarnar eru. Rétt er að geta þess, að í frv. eru engin ákvæði um atvinnuleysistryggingar. En n. hefur einnig til athugunar tillögur Jóns Blöndals um Atvinnustofnun ríkisins. Er ráðgert, að til hennar renni 3 millj. kr. af árlegum tekjum tryggingasjóðs, þegar hún verður komin upp. Hækkun á elli- og örorkulífeyri nemur um 75%, og er það langmesta hækkun á einum lið.

Ég sé nú, að tími minn er á þrotum, en e. t. v. gefst mér tækifæri síðar að skýra nánar frá frv. þessu. Ég vil að lokum endurtaka það, að ég tel það meginverkefni, sem fyrir þ. þessu liggur, vera þau tvö frv., sem ég hef drepið á, en það eru frv. um opinberan styrk til íbúðarhúsabygginga og tryggingafrv., sem samið hefur verið um, að gangi fram á þessu þingi. Mér er ánægja að lýsa því yfir, að um þau atriði, sem framkvæma átti, hefur verið hið bezta samkomulag á milli stjórnarflokkanna.