20.03.1946
Neðri deild: 91. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2083 í B-deild Alþingistíðinda. (3307)

142. mál, sameining Selfossbyggðar í eitt hreppsfélag

Sigurður Thoroddsen:

Ég skal ekki lengja umr. mjög. Það var aðeins í sambandi við það, sem hv. 1. þm. Árn. tók fram. Kæmi fyrir lítið, ef ég ætti að fara að hrekja öll þau rök. Ég býst reyndar ekki við, að það mundi skipta miklu máli.

Fyrir mitt leyti get ég samþ. að taka till. aftur. Ég trúi þó ekki, að það breyti miklu. Ólíklegt er, að greiðari leið verði þá til samkomulags en hingað til í þessum málum.