23.04.1946
Efri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2092 í B-deild Alþingistíðinda. (3328)

142. mál, sameining Selfossbyggðar í eitt hreppsfélag

Frsm. (Haraldur Guðmundsson) :

Herra forseti. Þetta frv. á þskj. 317 kom frá hv. Nd. Það komu fram nokkrar brtt. þar um málið, en engin þeirra var í þá átt að vinna á móti þessari sameiningu, heldur hvernig markinu yrði náð, en niðurstaðan varð sú sem greinir á þskj. 671. Eftir að málið kom til nefndar í Ed., höfðu tveir nm. skrifað undir álitið með fyrirvara, en frá því er greint á þskj. 873.

Ég hef átt tal við tvo menn úr hreppsnefnd Ölfushrepps, sem óskuðu eftir, að frv. yrði breytt þann veg, að Hellisland ofan vegar með Ingólfsfjalli verði ekki lagt undir Selfossbyggð, heldur látið fylgja Ölfushreppi eftir sem áður. Selfossbúar vilja aftur á móti ekki ganga inn á þetta, þar sem þeir telja það t. d. varhugavert, að ótakmarkaður aðgangur verði að Ingólfsfjalli, hvað ofaníburðarefni vega við kemur, og þar sem vatnsþró Selfoss liggur neðan vegarins, gæti stafað hætta af miklum ofaníburðartökum, en þær gætu valdið því, að vatn þróarinnar eyðilegðist vegna rennslis slíks efnis af völdum ofaníburðartöku. Slíkt jarðrask telja þeir ekki heppilegt.

Enn fremur hefur því verið haldið fram af sumum þeim, sem hér eiga hlut að máli, að heppilegra væri, að tíminn, er lögin koma í gildi, verði við næstkomandi áramót í stað 1. júní þetta ár. Nefndin sér nú samt, að annaðhvort er að samþ. frv. eins og það er eða það er hætta á því, að málið gangi ekki fram.

Nefndin telur, að þetta mál sé aðkallandi, og leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt, en þó áskilja einstakir nm. sér rétt til þess að fylgja brtt., sem fram kynnu að koma.