11.12.1945
Sameinað þing: 16. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í B-deild Alþingistíðinda. (337)

16. mál, fjárlög 1946

Eysteinn Jónsson:

Hæstv. atvmrh., Áki Jakobsson, sagði hér í ræðu við þessar umr., að Framsfl. væri á móti aukningu síldarverksmiðja og nýtízku vinnubrögðum frystihúsa, og að Tíminn hefði glaðzt yfir því, að nýtt skip fórst í logni, og fleira þessu líkt. Og hann sagði, að það hefði verið siður fyrir stríð, að einn framsóknarmaður hefði verið í hverju fyrirtæki, til þess að það gæti komizt í náð hjá gjaldeyrisnefnd. Allt er þetta vísvitandi uppspuni frá rótum, og sá, sem heldur slíku fram, er ekki svara verður. — Hæstv. atvmrh. sagði einnig, að framsóknarmenn hefðu nýlega fengið áhuga fyrir sjávarútvegsmálum. En hverjir börðust fyrir stofnun Síldarverksmiðja ríkisins? Það voru framsóknarmenn, gegn andstöðu hæstv. núv. forsrh., og það voru Framsfl. og Alþfl., sem komu á síldarsöltunarskipulaginu, sem hefur gert síldarsöltun að verulegri atvinnugrein. Framsfl. og Alþfl. efldu Fiskimálasjóð og stóðu fyrir margs konar brautryðjendastarfi í sambandi við hann fyrir sjávarútveginn. Framsfl. var eini landsmálaflokkurinn, sem stóð óskiptur að gengislækkuninni 1939, sem var gerð fyrir sjávarútveginn. Þingflokkur núv. hæstv. forsrh. klofnaði svo nákvæmlega í tvo jafna hluta um það mál sem verið gat um flokk, þar sem tala flokksmanna stendur á stöku. Þannig hefur Framsfl. haft forustu um margvísleg málefni sjávarútvegsins.

Út af ræðu hæstv. atvmrh. er einnig ástæða til þess að benda á það, að þegar sendir voru menn til samninga við Breta um fisksölumálin, þorðu kommúnistar ekki að senda sinn fulltrúa út yfir pollinn, þorðu ekki að sýna hann í Bretlandi. En þá leitaði hæstv. atvmrh. til „Landsbankaklíkunnar“ — en kommúnistar hafa oft nefnt ráðamenn Landsbankans svo — til þess að gera fisksölusamning við Breta. Svo leyfir hæstv. atvmrh. sér að segja það um stjórnendur Landsbankans, sem hann hefur gert hér í umr. og háttv. hlustendur hafa heyrt. Það eru tæpast nema litlir karlar, sem leyfa sér það, sem hæstv. atvmrh. hefur gert í þessu efni.

Hæstv. fjmrh. sagði, að það væri erfitt að spara ríkisfé, þar sem of margir menn væru við störf og tækju laun frá ríkinu, og væru það leifar frá stjórn framsóknarmanna. En venjulegum mönnum mundi nú, hygg ég, sýnast auðveldara að spara útgjöld ríkisins til starfsgreina, þar sem of margir menn væru fyrir í starfinu og ýmsu væri bruðlað í óhófi. Þennan málflutning um erfiðleika í sambandi við sparnað skilur víst enginn nema hæstv. fjmrh.

Þá var svo að skilja á hæstv. ráðh., að ríkisstj. hefði greitt 38 þús. kr. fyrir aukastörf í nýbyggingarráði, vegna þess að Framsfl. hefði einhvern tíma greitt einhverjum manni eða mönnum einhver laun. Þetta eru nú svör hæstv. ríkisstj. við rökstuddri gagnrýni. Hæstv. fjmrh. láðist auðvitað að geta þess, að sjálfstæðismenn hafa farið með fjármálastjórn nú í 6 ár, þegar hann var að tala um „fjósið“, sem þyrfti að moka og væri svo ákaflega erfitt. Ef eitthvert „fjós“ þarf að moka, eitthvert fjármálastjórnarfjós, þá er það ekki fjós Framsfl., heldur fjósið, sem Sjálfstfl. hefur tekið að sér að hirða um síðastliðin 6 ár.

Ekki er laust við, að ríkisstj. sé ofurlítið státin af því, að ríkissjóður er ekki kominn í greiðsluþrot enn þá. Það hefur verið sagt, að stjórnarandstæðingar hafi spáð miklum tekjuhalla, en reynzt falsspámenn. Hið rétta í þessu er það, að hæstv. fjmrh. áætlaði tekjuhalla við afgreiðslu fjárl. fyrir yfirstandandi ár. Stjórnarandstæðingar byggðu gagnrýni sína á fjárl. fyrir yfirstandandi ár á áætlunum hæstv. fjmrh. Nú segist stj. muni fá 160–170 millj. kr. tekjur, eða 40–50 millj. kr. umfram það, sem hún hafði áætlað, en gjöldin verða enn hærri en stjórnarandstæðingar gerðu ráð fyrir. Nú væri ekki til mikils ætlazt, þótt menn gerðu þá kröfu, að ríkisstj., sem fær 40–50 millj. kr. meira í tekjur á einu ári en hún hafði fyrir fram gert ráð fyrir, skilaði nokkrum tugum milljóna í afgang eftir árið. Það hefði einhvern tíma þótt ástæða til þess að búast við því. En því fer svo fjarri, að þess sé að vænta. Niðurstaðan mun verða sú, þegar öll kurl koma til grafar, að sjóðir ríkisins umfram skuldir munu ekki gildna á þessu ári svo, að til bjargar verði á næstunni, þótt stj. hafi sópað saman fjármagni sem samsvarar 60–70% af útflutningsverðmæti þjóðarinnar. Þessara fjármuna hefur verið aflað með þeirri þyngstu skattapressu, sem þjóðin hefur nokkru sinni verið lögð undir, þ. á m. með álagningu veltuskattsins og með því að eyða allt að helmingi dollaraeignanna til vörukaupa á einu ári. Það er því ekki af miklu að státa fyrir hæstv. fjmrh. Liggur nær að athuga um horfur í sambandi við afgreiðslu fjárl. fyrir næsta ár en að reyna að stinga þjóðinni svefnþorn með því að telja það til afreka, að hægt hefur verið að forðast greiðsluþrot í 12 mánuði með aðferðum, sem eru svo illræmdar, að jafnvel ekki þessi ríkisstj. vogar að nota þær nema einu sinni.

Þegar ríkisstj. lagði fjárlagafrv. fyrir þingið, voru útgjöldin áætluð 130 millj. kr. Eftir 2. umr. verða þau komin upp í tæpar 140 millj. og eiga þá vafalaust eftir að hækka enn verulega, auk þess sem margvísleg útgjöld eru fyrirsjáanleg, sem ekki eru færð í fjárlagafrv. Fjvn. hefur ekki treyst sér að meta tekjuvonir á næsta ári hærra en svo, að fjárlfrv. er enn með þeim sama 13 millj. kr. greiðsluhalla, sem það var, er það fór til n. Og ríkisstj. hefur ekki imprað á neinum úrræðum til þess að afgreiða greiðsluhallalaus fjárl., enda er sannleikurinn sá, að það er með öllu óhugsandi að afgreiða hallalaus fjárl. að óbreyttri stefnu í verðlagsmálum. Afleiðingar stjórnarstefnunnar á fjárl. koma þá einnig glöggt fram í því og enn gleggra nú en í fyrra, að ekkert rúm er í fjárlfrv. fyrir fjárveitingar til ýmissa þeirra framkvæmda, sem nauðsynlegar eru. Þannig leggur fjvn. til, að á næsta ári verði tekin lán til nýrra hafnarframkvæmda jafnframt því, sem haldið verði áfram að éta upp hafnarbótasjóðinn. Og þannig mætti lengi telja og sýna fram á, að stefna stj. hlýtur að leiða til stórkostlegs greiðsluhalla hjá ríkinu og enn fremur, að allar meiri háttar framfarir í landinu verða að byggjast á lántökum og aftur lántökum. Ríkisútgjöld næsta ár verða aldrei undir 160 millj. kr. samkv. því, sem stj. stefnir, og verða þó ekki þar með framlög til nýsköpunarinnar eða til stuðnings atvinnuvegunum. Þessi afgreiðsla er hrein fásinna og fullkomið ábyrgðarleysi, enda verða menn að hlusta á og horfa upp á það, að þeir, sem ábyrgðina bera, viðurkenna það, en sitja samt sem fastast og koma í veg fyrir, að nokkuð sé aðhafzt í rétta átt.

Nú mundi kannske einhver spyrja, hvers vegna Framsfl. hafi ekki flutt niðurskurðartill. við fjárl., þar sem hann telji þau of há. Framsóknarmenn eru ekki niðurskurðarmenn verklegra framkvæmda né mótstöðumenn framlaga til þjóðnytjamála. Þess vegna flytja þeir ekki niðurskurðartill. Það er verðbólgan, sem gerir fjárl. óviðráðanleg. Hana vilja framsóknarmenn lækka strax, lækka þannig fjárl. um milljónatugi án þess að draga úr framlögum til þjóðnytjamála. Till. Framsfl. um lækkun verðbólgunnar eru því till. þeirra um lækkun fjárl.

Þá er rétt að víkja nokkrum orðum að ástandinu í verzlunarmálunum. Í þeim málum ríkir fullkomið öngþveiti. Samkeppni má teljast alveg útilokuð. Af þessu leiðir það, að verðlagseftirlitið verður ill- eða óframkvæmanlegt. Er í því sambandi skemmst að minnast stórra hneykslismála. Það hefur löngum verið úrræði alþýðu manna á Íslandi að berjast gegn óeðlilegum verzlunarháttum með því að gera samtök um verzlunina. Héldu þessi samtök áfram að vaxa, þangað til stjórnarvöldin gripu í taumana og hnekktu vexti þeirra með nýrri framkvæmd verzlunarmálanna nú fyrir nokkru. Geta menn nú ekki lengur notfært sér þetta úrræði. Sannleikurinn er sá, að núv. ríkisstj. hefur beinlínis stefnt markvisst að því að nota innflutningseftirlitið og útflutningskvótana í öðrum löndum til þess að koma í veg fyrir eðlilega þróun verzlunarsamtaka almennings. Þannig hefur innflutningshlutfall kaupfélaganna í mörgum þýðingarmiklum vörutegundum verið lækkað þrátt fyrir aukna tilhneigingu landsmanna til þess að verzla við kaupfélög. Þannig hafa samvinnufélögin í landinu verið neydd til þess að auka viðskipti sín við milliliðina og kaupa hjá þeim. Svo langt hefur verið í þessu gengið, að á sama tíma sem samvinnumenn landsins hafa verið neyddir til þess annaðhvort að verzla við heildsala í stórum stíl eða láta verzlunarbúðir sínar standa tómar, þá geta kaupmenn í Reykjavík selt til annarra landa margs konar varning af þeim tegundum, sem hér hafa verið hömlur á, fyrir milljónir króna. — Menn skyldu halda, að sú stj., sem stendur fyrir slíkum framkvæmdum í verzlunarmálunum, væri skipuð fulltrúum heildsalanna einum, en svo á þó víst ekki að heita, því að fulltrúar Alþfl. og kommúnista í ríkisstj. hafa, að minnsta kosti fram að þessu, ekki viljað telja sig það. Verzlunarmálunum er ekki stjórnað frá því sjónarmiði, hvað bezt hentar alþýðu manna, heldur ræður allt annað sjónarmið. Það er beinlínis unnið að því að viðhalda einokun og spillingu.

Ekki tekur betra við, þegar litið er til skattamálanna. Það hefur verið sýnt fram á það í þessum umr., að þar er yfirleitt haldið verndarhendi yfir þeirri spillingu, sem hvert mannsbarn veit, að á sér stað, en í þess stað aflað tekna með framlengingu allra skatta og tolla, sem gripið var til á mestu kreppuárunum, og ofan á þetta er svo bætt stórfelldum nýjum sköttum og skattaviðaukum, sem þyngst koma niður á miðlungstekjur og smærri og miðlungsfyrirtæki. Í stað þessa hefði þurft að gera hér hreint borð í þeim málum, eins og aðrar þjóðir vinna að, en lækka aftur á móti gjöldin á þeim, sem undanfarið hafa borgað of mikið saman borið við aðra. — Það er engin tilviljun, að þannig er haldið á verzlunar- og skattamálunum. Við bentum á það þegar í upphafi stjórnarsamstarfsins, að svona mundi fara, blátt áfram vegna þess að samstarfið væri borið uppi af stórgróðamönnum í Sjálfstfl. annars vegar og kommúnistum hins vegar. Hlutur þeirra fyrrnefndu hefur þá verið rakinn. — En hver er þá hlutur kommúnista? Þeir hafa brugðizt verzlunarsamtökum alþýðunnar og svikið öll loforð sín og fyrirheit um afnám tolla, nýja róttæka skattapólitík, baráttu gegn auðvaldinu, að ég nú ekki tali um, hvernig það hljómar nú í eyrum manna, að sá flokkur þóttist einu sinni ætla að berjast gegn fjármálaspillingu í landinu. Það var nú svo sem auðséð áður en kommúnistar fóru í ríkisstj., hversu mikil alvara var að baki þessum fyrirheitum. Jafnvel á meðan þeir voru í tilhugalífinu við sjálfstæðismenn á árunum 1943 og '44 var þeim svo mikið í mun að sýna þjónustu sína, að þeir drápu stríðsgróðaskattstillögur sínar sjálfir, ef þess þurfti við til þess að stöðva þær. Hlutur kommúnista í stjórnarsamstarfinu er fyrst og fremst fólginn í þessu: Gegndarlausum fjáraustri af opinberu fé til gæðinga flokksins, ráðum yfir útvarpi og menntamálum og tryggingunni, sem þeir hafa fyrir því, að verðbólgunni verði haldið við, framleiðslunni haldið á heljarþröm og nýsköpunin byggð á skuldum. Það er engin tilviljun, að kommúnistar hafa ekki áhuga fyrir neinu öðru en því að veita í allar áttir hærri og lægri lán. Mestur er þó áhugi þeirra fyrir því að skuldskeyta þá, sem framleiðslu stunda, og sverfa að þeim um leið með tilstyrk verðbólgunnar. Þeir skilja mæta vel, að framleiðslan er undirstaða og það verður að vera hægt að ná tökum á henni í fyllingu tímans. Hugsunarhátturinn er þessi: Gefum bröskurum og stórgróðamönnum frjálsar hendur gegn því, að þeir styðji verðbólgu- og skuldastefnuna, þangað til hryggurinn er brotinn úr framleiðslustéttunum. Með því að gefa þessum öflum frjálsar hendur, var vakinn áhugi sumra þeirra, sem mestu réðu í Sjálfstfl. Hinir voru bókstaflega hræddir á því, að það væri ekki um neitt að velja annað en taka kommúnista, annars mundu þeir gera þjóðfélagið óstarfhæft með verkföllum. Hver er sá, sem ekki kannast við þennan áróður? Hæstv. forsrh. hefur jafnvel gengið svo langt að halda því fram, síðast í gærkvöld, að ef samstarfið við kommúnista mistækist, væri meira en vafi á því, að lýðræðisstj. yrði mynduð í landinu á ný. En jafnhliða eru svo landsmenn fræddir á því í blaði hæstv. forsrh., að foringjar kommúnista séu dulbúnir ofbeldismenn undir erlendri stjórn. Það má þá líka nærri geta, hvernig komúnistarnir notfæra sér þann mann, sem þannig ofurselur sig þeim og sér engin önnur úrræði en að dansa eftir þeirra pípu.

Hver, sem hugsar um þessi efni af alvöru, veit, að það, sem ég nú hef sagt, er ekki út í bláinn mælt, enda eru víðs vegar til vitnisburðir, sem gefa glöggar bendingar um það, hvað á bak við býr, þótt nýsköpunarstaglið sé venjulega haft á oddinum.

En hvernig er svo reynt að halda fylgi verkamanna við pólitík þeirrar ríkisstj., sem byggð er á þessum grunni? Jú, það er ofur einfalt. Það er reynt með því að segja við verkamenn, að þetta sé allt nauðsynlegt til þess að koma í veg fyrir stórkostlegar launalækkanir. Það sé yfirvofandi stórfelld árás á lífskjör þeirra, ef kommúnistar sitji ekki í stjórn. Það verði að þola margt fyrir svo mikils vert málefni. En á þessu er bara sá ágalli, að fyrir dyrum stendur engin árás á lífskjör verkamanna. Aftur á móti hafa komið fram till. um minnkun verðbólgunnar með þátttöku allra þjóðfélagsþegna, sem væri þannig framkvæmd, að kaupgeta peninganna ykist um leið og krónutala lækkaði í viðskiptum. En kommúnistar, þurftu á einhverju að halda sem skálkaskjóli fyrir sig í augum þeirra manna, sem hafa ekki áhuga fyrir rússnesku lýðræði, en hafa samt, þótt undarlegt sé, veitt þeim brautargengi undanfarið.

Kemur þá að einum viðurstyggilegasta þættinum í þessum leik. Fyrir síðustu alþingiskosningar og lengi eftir það áttu þeir, sem nú eru forustumenn ríkisstj., ekki nógu sterk orð til þess að lýsa skaðsemi verðbólgunnar. Vitnisburð hæstv. forsrh. hafa menn heyrt fyrr í kvöld, en kommúnistar sögðu, að verðbólgan græfi undan afkomu bænda og verkamanna, gerði kjarabætur að engu og undirbyggi atvinnuleysi. Verðbólgan væri ekki til hagsbóta fyrir neina nema verðbólgubraskara. En hvað hefur svo skeð? Um leið og stjórnarmyndunin átti sér stað, gerbreyttist eðli verðbólgunnar. Hún var ekki lengur hið geigvænlega böl, sem kom harðast niður á alþýðu landsins. Það var nú öðru nær. Lækkun hennar, eða jafnvel stöðvun, heitir nú orðið launalækkun á máli þessara manna og er orðin árás á verkalýðinn í landinu, bændur og, að því er mönnum skildist, þjóðina alla. Er nú ekki nema tvennt til, að þetta, sem sagt hafði verið um verðbólguna, voru hinar mestu stórlygar, sem nokkru sinni höfðu verið bornar á borð fyrir þjóðina, eða það var fávitahjal þeirra manna, sem þóttust vera leiðtogar, en vissu engin skil á þýðingarmestu málefnum landsins. Þannig hlýtur þetta að líta út í augum manna nú. Mér finnst sanngjarnt, að þeir, sem hlut eiga að máli, ráði, í hvorn dilkinn þeir vilja draga sig, og mun ég engin afskipti hafa af því.

En hvers vegna gera menn sig að slíkum viðundrum? Jú, hér lá sem sé mikið við, eins og áður er sagt. Kommúnistar þurftu að finna afsökun fyrir því að mynda verðbólgustjórn með helztu stríðsgróðamönnunum, og forkólfar sjálfstæðismanna að finna afsakanir fyrir fjórða eða fimmta hringsnúningi sínum í dýrtíðarmálunum. Þann 11. marz 1942 fórust hæstv. forsrh., Ólafi Thors, þannig orð um þá afstöðu Alþfl. að neita að taka þátt í setningu gerðardómslaganna:

„Hann lagðist á sveif með kommúnistum í baráttunni gegn hagsmunum launastéttanna, gegn hagsmunum gamalla og munaðarlausra, í baráttunni fyrir öngþveiti í þjóðfélaginu.

Í örvinglan kastaði hann öllu fyrir borð, eigin fortíð í málinu, skoðun sinni, velferð umbjóðenda sinna og hagsmunum alþjóðar, allt í því sama skyni að reyna að rétta bardagann, reyna að afla sér kjörfylgis á kostnað alþjóðar. Silfurpeningarnir urðu að vísu nokkrir. Júdasarlaunin einhver. Alþfl. fékk skárri úrslit í kaupstöðum landsins en hann áður hafði gert sér vonir um.

En nú var aftur komið að skuldadögunum. Nú eru svikin komin í dagsins ljós. Nú veit Alþfl. hvað bíður hans. Nú mundi Alþfl. einskis fremur óska en þess að hafa átt dálítið meira hugrekki, þegar gerðardómslögin voru sett, því að nú brestur hann hugrekki til að horfast í augu við dóm þjóðarinnar yfir þeim svikum, sem hann þá framdi, ofan á allt annað.“

Hæstv. forsrh. lagði út á þann hála ís að minnast á verðbólguna. Í móti hefur komið sú refsing, sem honum verður þungbærust, en það er upplestur valdra kafla eftir hann úr þeirri grein bókmenntanna frá undanförnum árum, sem fjallar um verðbólguna.

En hvernig hefur þá verðbólgan snert afkomu þeirra, sem taka kaup og laun í landinu? Það mun láta nærri, að verkamenn hafi 1200–1350 kr. tekjur á mánuði með því að hafa vinnu hvern einasta dag mánaðarins með 8 klst. vinnu daglega. En hver er svo kaupgeta þessara launa nú orðið? — Fitl hæstv. ríkisstj. við vísitöluna sýnir mönnum, hvað í vændum er, ef ekki verða neinar raunhæfar ráðstafanir gerðar gegn dýrtíðinni. En þó eru þetta smámunir enn þá hjá því ástandi, sem er að skapast hjá verkamönnum og öðrum launamönnum í bæjunum vegna þeirra áhrifa, sem verðbólgan hefur haft á byggingarkostnað og húsaleigu. Hvað halda menn, að hlutur þeirra launamanna sé mikill af stríðsgróðanum, sem búa við nýsköpunarhúsaleigu í Reykjavík og annars staðar á landinu? Og það er öllum augljóst, að ef verðbólgan stendur áfram, þá verða það sífellt fleiri, sem verða að sæta nýsköpunarhúsaleigu, og að lokum fer svo, að það verður nýsköpunarhúsaleigan, sem verður ráðandi um verðlag á húsnæði í landinu. Þetta er bara eitt lítið sýnishorn af því, hver verður blessun launamanna í landinu af völdum verðbólgunnar, þegar til lengdar lætur. Enn þá er nóg atvinna í landinu, og getur vel orðið um skeið, en það stafar af því, að menn eru byrjaðir að eyða þeim fjármunum, sem þeir hafa aflað á undanförnum árum. En þess mun ekki langt að bíða, að áhrif verðbólgunnar komi einnig fram á þessu sviði, og mun það vera sönnu nær, sem forkólfar kommúnista og sjálfstæðismanna sögðu um eðli og afleiðingar verðbólgunnar fyrir kosningar, en það, sem þeir halda nú fram. Það mætti þá líka fyrr vera, ef sköpun verðbólgu væri sérstakt heillaráð til þess að jafna stríðsgróðanum, að engin þjóð í heiminum skyldi notfæra sér það nema Íslendingar. Mun Ólafur Thors hollari verkamönnum en Per Albin Hansson, Bevin eða aðrir slíkir menn?

Það verður nú að ætlast til þess, að þjóðinni fari að verða ljóst, á hvílíkum óheilindum núverandi stjórnarsamstarf er byggt. Sannleikurinn er sá, að brölt stjórnarinnar og óskipulegt fálm, gort hennar og hótanir er einhver mesti sorgarleikur, sem leikinn hefur verið í þessu landi. Það verður aldrei með tölum talið það tjón, sem af þessu leiðir. Það ætti að vera komin nóg reynsla, til þess að menn sjái, hvert stefnir. Ef kommúnistar hefðu ætlað sér eitthvað annað með samstarfinu en ég hef gert ráð fyrir og ætlað sér að leysa vandann, þá hefðu þeir tekið þátt í raunhæfum ráðstöfunum ekki síðar en á þessu hausti. Það er gersamlega óverjandi að láta stríðsgróðamenn og verðbólgubraskara á öðru leitinu og kommúnista á hinu leitinu halda hér öllu í sjálfheldu, viðhalda spilltu fjármálalífi og koma í veg fyrir það, að óvenjulegt tækifæri sé notað til þess að framkvæma heilbrigða framfarastefnu. Meðal þeirra, sem tilheyra stjórnarflokkunum, er fjöldi manna, sem sér þetta og vill annað. Þeir hafa talið sig vilja bíða og sjá, hvað gerist. Nú er ekki verjandi að bíða lengur.