26.04.1946
Neðri deild: 122. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2099 í B-deild Alþingistíðinda. (3374)
235. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Mig langar bara til að benda á tvær staðreyndir í þessu máli, í fyrsta lagi þá slysni, sem orðið getur um afgreiðslu mála. Þetta frv. er flutt af hæstv. ríkisstj. og sjálfsagt undirbúið af lögfræðingi hjá henni. Ég er búinn að tala að minnsta kosti við fjóra af hæstv. ráðh., og enginn þeirra hefur ætlazt til, að brúasjóðurinn yrði lagður niður. Ég er búinn að tala við menn, sem höfðu málið til meðferðar í Ed., og þeir ætluðust ekki til þess. Þeir virtust ekki vita, hvað var í frv., sem þeir höfðu afgr. úr deildinni.
Annað er það, að að mínum dómi er mjög mikil þörf að halda áfram að aura í brúasjóð. Þó að fjárhagurinn sé eins og hann er nú og verði kannske enn um stund, þá er mjög fjarri því, að það gangi greiðlega að fá brýr, sem kosta milljónir, teknar inn á fjárl., og margar slíkar brýr eru eftir. Brúasjóðurinn var stofnaður í þeim tilgangi að aura saman fé til brúa, sem væru svo stórar, að ekki væri fært að taka þær inn á fjárl. á einu ári, og það hefur náð marki sínu, því að nú á að smíða eina slíka stórbrú í ár. Ég mæli því ákveðið með því, að brtt. hv. þm. V. Húnv. verði samþ. Ég er viss um, að það hefur ekki verið meining neins, sem hefur staðið að þessu frv., að brúasjóðurinn félli niður. Ég hygg, að það hafi þótt svo sjálfsagt, að ekki hafi einu sinni þótt ástæða til að taka það fram, þegar málið var til 2. umr., því að þá fann hv. frsm. ekki ástæðu til að standa upp og segja nokkurt orð. Ef þetta frv. verður nú samþ. óbreytt, þá rennur þetta 5 aura gjald beint í ríkissjóð, og þá verður ekki safnað neinu fé til að byggja stórbrýr.
Ég vil því mjög ákveðið mæla með því, að brtt. hv. þm. V.-Húnv. verði samþ., því að það er alveg víst, að það hefur ekki verið meining neins, sem að því hefur staðið, að láta brúasjóð leggjast niður.