26.04.1946
Efri deild: 114. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2103 í B-deild Alþingistíðinda. (3396)

216. mál, iðnlánasjóður

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Þessu máli var vísað til iðnn. 13. apríl, en hún hefur vegna anna ekki getað haldið um það nema einn fund, sem haldinn var í morgun, og eru nm. sammála um að mæla með, að frv. verði samþ. óbreytt. Meginbreyt. á l. er sú, að í staðinn fyrir 65 þús. kr., sé lagt í iðnlánasjóð 300 þús. kr. framlag af hálfu ríkissjóðs. Sumpart er þetta gert vegna hinna breyttu fjárhagsástæðna í landinu og sumpart vegna þess, að nú þarf iðnaðurinn á miklu meira fé að halda en sjóðurinn getur af hendi látið, ef ekki er greitt meira til hans af hálfu ríkisins en nú er ákveðið í l. Aðrar breyt. eru afleiðing af þessari breyt., sem er gerð á 1. gr. I. nr. 40/1941. Ég skal geta þess, að ég hef rætt við hæstv. fjmrh. um þetta, og er hann sammála því, að þessi breyt. nái fram að ganga. Ég skal að síðustu geta þess, að ég taldi, að það væri eðlilegt, að þessum l. yrði nokkuð breytt síðar, þó ekki sé tími til þess nú, á þann hátt, að iðnaðinum sé tryggt prósentugjald af framleiðslunni, líkt og fiskveiðasjóðnum, þannig að sjóðurinn geti fengið úr sínum eigin atvinnuvegi nokkuð mikið fé til þess að geta staðið undir öllum þeim óskum um lánveitingar, sem til hans koma. En það er ekki ástæða til að ræða það nánar hér. Ég taldi rétt, að það kæmi fram við þessa umr., að n. leit svo á, að það væri æskilegt, að hægt væri að breyta l. í það horf í framtíðinni, að sjóðnum yrðu tryggðar verulegar tekjur á líkan hátt og Fiskveiðasjóði Íslands. — N. leggur svo til, að frv. verði samþ. óbreytt.