27.04.1946
Neðri deild: 128. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2111 í B-deild Alþingistíðinda. (3444)
248. mál, kosningar til Alþingis
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Það kom fram í umr. í gær, hjá hv. 8. þm. Reykv.. að ég ætla, að það væri ekki óalgengt a. m. k., að menn, sem væru lasburða, kysu fyrir kjördag hjá hreppstjóra eða sýslumanni, til þess að lenda ekki í troðningi á kjördegi. Mér kom þetta dálítið ókunnuglega fyrir sjónir, því að eftir því sem ég veit bezt, er þetta ekki heimilt og 96. gr. kosningal. gerir ráð fyrir, að ef maður er á kjörstað á kjördegi, eigi hann að taka aftur þann kjörseðil, sem hann hefur kosið á áður, og kjósa aftur á kjördegi, annars sé hann kominn undir sektarákvæði l. Mér er sagt, að það sé algengt, að menn kjósi hjá lögmanni fyrir kjördag og séu heima hjá sér á kjördegi. Sé þetta rétt — og ég hef ekki ástæðu til að vefengja það, að kosningar séu framkvæmdar á þennan hátt hér í Reykjavík, — vil ég vekja athygli hæstv. Alþ. á því, að þetta er ólöglegt. En þetta er ekki haft svona úti um land, þó að ólíkt meiri ástæða væri til þess, að menn kysu þar fyrir kjördag, menn, sem þurfa að ferðast fleiri km. á kjörstað. En þar er þessi leikur hvergi leikinn, svo að ég viti. En ég vil benda hv. þm. á, að þessi leikur er leikinn hér í Reykjavík, og að hv. þm. ættu að sjá um, að hann verði ekki leikinn í sambandi við kosningarnar í vor.