17.04.1946
Neðri deild: 113. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2125 í B-deild Alþingistíðinda. (3473)

241. mál, fyrningarafskriftir

Eysteinn Jónsson:

Hæstv. fjmrh. sagði, að það hefði ekki svo mikla þýðingu, hvort aukaafskrift væri heimiluð af endurnýjun tækja, því að endurnýjunin mundi talin til rekstrarkostnaðar. En þegar endurnýjun tækja er komin yfir visst takmark, leyfa skattayfirvöldin ekki, að það sé reiknað til frádráttar, en annars skal ég ekki fullyrða, hvernig reglan er. En það getur valdið deilum, hvað telst sem rekstrarkostnaður og hvað sem eignarverð bátsins. Sums staðar telja skattayfirvöldin sér skylt að ganga hart fram í þessu, en annars staðar eru þau frjálslyndari. Þetta þarf að athuga.

En þetta leiðir hugann að öðru. Ég las 1. gr. betur en ég hafði gert, og þar segir svo: „Þær eftirtaldar eignir, sem teknar eru í fyrstu notkun á árunum 1944–1948 incl., má í stað venjulegra fyrningarafskrifta afskrifa um 20% á ári í 3 ár frá því er þær eru teknar í notkun, þó ekki fyrr en frá 1. janúar 1946 að telja: fiskiskip og önnur veiðiskip, fiskvinnslustöðvar, síldarverksmiðjur og dráttarbrautir.“

Það er ekki tekið fortakslaust fram, að tækin eigi að vera ný, og gæti þetta verið gert af ráðnum huga, t. d. með báta, sem ekki eru alveg nýir eins og þeir, sem fluttir hafa verið inn frá Svíþjóð, og munu þeir koma undir þetta. Ef einhver dubbaði upp skip, mundi það þá ekki heyra undir þetta, því að það stendur ekki, að þau eigi að vera ný, heldur tekin í fyrstu notkun á árunum 1944–'48. Það er spurning, hvort Svíþjóðarbátarnir koma ekki undir þetta, og þyrfti að setja inn í frv. ákvæði, sem skýrir þetta ljóslega: Ég ætla ekki að bera fram brtt. um þetta, en vil skora á ráðherra að bera sig saman við skattalöggjöfina og vita, hvort þeir finna ekki lausn á þessu. Mér sýnist, að það mundi valda misrétti, ef þetta ákvæði er stílað eins og það er nú. Ég vildi bara spyrja, hvernig þetta yrði með notuðu Svíþjóðarbátana og ef fluttir eru inn gamlir bátar og dubbaðir upp.

Þá eru það flutningaskipin. Hæstv. ráðh. sagði, að erfitt væri að fóta sig á þessu, og það er rétt. En nú vil ég skora á hæstv. ráðh. að ræða betur um þetta í ríkisstj. og vita, hvort ekki er hægt að komast að samkomulagi. Menn þurfa að vita, við hverju þeir mega búast. Og hitt er á að líta, að ef þessi hlunnindi verða ekki veitt þeim, þá er ákaflega ólíklegt, að nokkur hefði lagt í slík tæki. Ég held því, að þetta þurfi að athugast betur.

Hæstv. ráðh. benti á, að þarna væri hægt að koma inn fleiru og fleiru, t. d. olíugeymum fyrir togara. Ég held, að það verði að koma upp innlendum olíugeymum, því að það verður ekki þolað, að erlend félög eigi hér olíugeyma, og væri eðlilegast, að olíugeymum fyrir togarana yrði komið upp af umráðamönnum togaranna. Það ætti ekki að verða svo dýrt, að það yrði þeim ofvaxið. En þetta liggur nær með flutningaskipin, og er ekki heldur svo stórkostlegt, að gera þurfi sérstakar ráðstafanir þess vegna.

Ég skal svo ekki orðlengja þetta frekar, en skora á hæstv. ráðh. að athuga þetta.