17.04.1946
Neðri deild: 113. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2126 í B-deild Alþingistíðinda. (3475)
241. mál, fyrningarafskriftir
Eysteinn Jónsson:
Ég ætla bara að segja örfá orð út af skýringu hæstv. ráðh. við 1. gr. Það má túlka hana eins og hann gerir, en það má líka leggja í hana annan skilning. En hæstv. ráðh. hefur lýst því yfir sem sínum skilningi, að notuð skip, sem hafa komið í notkun fyrir áramót 1944, kæmu ekki undir þetta ákvæði. En hvernig verður þá um hina margumtöluðu Svíþjóðarbáta? Hér er um svo stór hlunnindi að ræða, 20%, og því athugandi, hvort þessir bátar koma þarna með. Það er rétt, að það má ekki örva menn til að kaupa gömul tæki, en ég á við það, þegar menn endurbæta stórkostlega tæki, sem menn hafa átt. En ég ætla, að mönnum gefist tóm til að athuga þetta.