17.04.1946
Neðri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2128 í B-deild Alþingistíðinda. (3483)

241. mál, fyrningarafskriftir

Sveinbjörn Högnason:

Ég er sammála hv. 7. þm. Reykv., að það skipti ekki miklu máli í sumum tilfellum, hvort ríkisstyrkur sé veittur, en það er samt ekki rétt að skilja eftir styrklaus fyrirtæki, sem einhvern tíma hafa fengið styrk. Og það er rétt, að hér er ekki um stórar fjárupphæðir að ræða, en þó er sjálfsagt, að fullt réttlæti sé í þessu.