26.04.1946
Efri deild: 114. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2130 í B-deild Alþingistíðinda. (3496)
241. mál, fyrningarafskriftir
Bernharð Stefánsson:
Af því að hv. form. og frsm. fjhn. er fjarstaddur, vil ég gera grein fyrir áliti n. í þessu máli. Meiri hl. n. mælir með, að frv. verði samþ., og þrír leggja auk þess til, að lítils háttar breyt. verði gerð. Má þó segja, að efni frv. sé að vissu leyti varhugavert. Hér er nefnilega um æði miklar skattaívilnanir að ræða. Nú standa yfir óvenjulegir tímar, og má búast við, að verðlag breytist til lækkunar. Gæti þá orðið erfitt fyrir þá, sem aflað hafa sér dýrra tækja á stríðsárunum, að standa undir rekstrinum, nema með því að afskrifa þeim mun meir þegar í byrjun. Og frv. miðar að því að heimila þessar afskriftir. Þær koma þá vitanlega á rekstrarreikning fyrirtækisins og reiknast sem frádráttur á tekjur. Getur hér því orðið um allmikla skattaívilnun að ræða.
Þótt n. sjái galla á frv., álítur hún, að samþ. bera frv. Í 1. frvgr. eru talin upp ýmis tæki, sem ná því að verða afskrifuð á þennan hátt, en þau eru: „Fiskiskip og önnur veiðiskip, fiskvinnslustöðvar, síldarverksmiðjur og dráttarbrautir.“ Verið getur vafamál, hvort veita eigi hlunnindi þessi fyrir öll framangreind tæki, en þó hafa ekki komið fram brtt. um að fella neitt niður af þessu. En þrír nm. vilja bæta við flutningaskipum og telja það rétt. Nú er mikið um alls konar ráðstafanir til eflingar fiskiflota þjóðarinnar. En ég held, að henni sé ekki síður lífsnauðsyn að koma sér upp í framtíðinni fríðum flutningaskipaflota. Öllum er kunnugt um, að Eimskip hefur nú skattfrelsi. Svo er háttað um flutningaskip sem veiðiskip, að hvor tveggja eru dýr, og þeir, sem ráðast í kaup á flutningaskipum, mundu hafa lítinn hagnað af þeim og varla geta látið þau bera sig, nema því aðeins að þeir fengju svipuð hlunnindi og í frv. greinir. Einmitt vegna þess, að Eimskip hefur hlunnindi, eru engar líkur til þess, að aðrir nýir aðilar muni treysta sér til að standast það að veita svipuð kjör og Eimskip við miklu verri aðstæður.
Ég hirði svo eigi um að orðlengja þetta meir og vænti þess, að hv. d. samþ. fyrri brtt. á þskj. 964 frá meiri hl. n. Um síðari brtt. er ekkert að segja. Hún er aðeins leiðrétting á orðalagi.