04.04.1946
Neðri deild: 102. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1604 í B-deild Alþingistíðinda. (3511)
141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins
Stefán Jóh. Stefánsson:
Alþfl. hefði kosið, ýmissa orsaka vegna, að framkvæmd hinna ýmsu stofnlánaveitinga til sjávarútvegsins hefði verið í höndum fiskveiðasjóðs, svo sem ráð var fyrir gert í frv. nýbyggingarráðs, en um þetta hefur ekki fengizt samkomulag og hefur það tafið afgreiðslu málsins langt fram úr öllu hófi. Er nú svo komið, að margir eigendur þeirra skipa, sem stofnlánanna þurfa að njóta, eru lagðir af stað til útlanda til þess að sækja skip sín, og ber því brýna nauðsyn til að tefja eigi afgreiðslu málsins lengur, heldur ljúka henni tafarlaust. Samkomulag hefur náðst milli stjórnarflokkanna um öll aðalatriði málsins, en eingöngu deilt um, hver skuli hafa stjórn stofnfjárveitinganna á hendi. Með brtt. meiri hl. sjútvn. er stjórn stofnlánadeildar falin stjórn Landsbankans, en yfirstjórn þeirrar stofnunar er, svo sem kunnugt er, í höndum fjmrh., og Alþingis, er kýs menn til þess að skipa bankaráð, þannig að full trygging á að vera fyrir, að stofnlánadeildinni sé stjórnað í samræmi við vilja meiri hl. Alþ. á hverjum tíma. Telur Alþfl. því ekki rétt að tefja afgreiðslu þessa frv. eingöngu vegna ágreinings um stjórn stofnlánaveitinganna, og mun því greiða atkv. með tillögum meiri hl. sjútvn. í öllum aðalatriðum.
Ég vildi gefa þessa yfirlýsingu af hálfu Alþfl., vegna þess að hann leggur áherzlu á, að þessu máli verði flýtt og það afgreitt sem allra fyrst.