04.04.1946
Neðri deild: 102. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1608 í B-deild Alþingistíðinda. (3516)

141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Ég skal ekki lengja mikið þessar umr., sem þegar eru orðnar nokkuð miklar. Sérstaklega get ég verið stuttorður, þar sem hv. 4. þm. Reykv. hefur lýst afstöðu okkar flokks. En það, sem kom mér til að standa upp, var ræða hv. 2. þm. S.-M. út af till. um að fella niður aðstoð til dráttarbrauta og skipasmíðastöðva. Ég tel, að þetta sé hættulegt, og álít, að það eigi að fella þessa till. Þessi fyrirtæki eru flest í einkaeign og hafa átt erfitt uppdráttar, og nú á að fara að gera þeim enn örðugra fyrir, og þó er vitanlegt, að þörfin fyrir þessar stöðvar vex með hverjum nýjum bát, sem kemur inn í landið. Brtt. fer fram á, að einungis verði lánað út á þær stöðvar, sem reknar eru í þágu útvegsins. Nú er það augljóst mál, að því erfiðara sem þessum fyrirtækjum er gert fyrir, því dýrari verða viðgerðirnar á skipunum, og kemur það óhjákvæmilega niður á útveginum. Brtt. gefur tilefni til að benda á, að hér vantar algerlega dráttarbraut, sem getur tekið upp togara, og verður það að breytast.

Ég vildi ekki láta þessari umr. ljúka svo, að mín skoðun kæmi ekki í ljós varðandi þessa brtt. Ég álít hana vera málinu til ógagns og legg til, að hún verði felld.