04.04.1946
Neðri deild: 102. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1610 í B-deild Alþingistíðinda. (3519)
141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Það eru aðeins örfá orð varðandi það síðasta í ræðu hv. 6. landsk. Hv. þm. sagði, að þar sem hér væri um takmarkað fé að ræða, væri nauðsynlegt að veita það til þeirra framkvæmda, sem mest kölluðu að, og nefndi hv. þm. það dæmi, að samkomulag hefði verið um að lána ekki út á kaup á flutningaskipum. Eru þó kæliskipin ákaflega nauðsynleg fyrir útveginn. Þetta er að vísu rétt, en það vantar skýringu á þessu, og hún er sú, að það er búið að festa kaup á kæliskipum, svo að það er búið að sjá fyrir þörfum landsmanna á því sviði um talsverða framtíð. Eimskipafélagið þarf ekki lántöku til þessa og ekki heldur Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, sem einnig hefur keypt skip í þessu skyni. En annars þykir mér það skrýtin rök hjá hv. þm., ef á að spara útgjöld til þessara framkvæmda úr þessum stofnlánasjóði, að þá skuli þó eiga að leyfa útlán til ákveðinna manna, sem sækja um lán, en ekki til annarra, sem biðja um lán til sama hlutar. Þörfin fyrir dráttarbraut er jafnbrýn hvort sem það eru útvegsmenn eða iðnaðarmenn, sem að byggingu hennar standa, ef það er gert til að bæta úr þörf skipa við að fá sig afgreidd. Ef hægt á að vera að fara í kringum tilskilda dreifingu útlánastarfseminnar í því skyni, að sjávarútvegsmenn fái lán, en aðrir ekki, þá skil ég ekki tilganginn.