09.04.1946
Neðri deild: 105. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1620 í B-deild Alþingistíðinda. (3536)

141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Í upptalningu þeirri, sem er í 3. gr. þessa frv. á mannvirkjum, sem stofnlánadeildin skuli veita lán til, hef ég ekki komið auga á, að sérstaklega sé þar tekið fram um síldarverksmiðjur. Ég hefði hins vegar talið eðlilegt, að út á slík mannvirki yrði lánað úr þessari deild, og ég hygg, að það hljóti að hafa verið upprunalegur tilgangur hv. flm. þessa frv. Það þarf ekki að færa að þessu mörg rök. Það er öllum vitanlegt, að síldarverksmiðjurnar annast einn mikilvægasta þátt íslenzks sjávarútvegsiðnaðar, og það ber brýna nauðsyn til þess að tryggja, að það séu fyrir hendi í landinu nægilega margar og afkastamiklar verksmiðjur til þess að gegna þessu hlutverki fyrir bátaflotann, sem síldveiði stundar. Það kann að vera, að fram komi sú mótbára gegn því að taka síldarverksmiðjur inn í þessa upptalningu, að hætt sé við því, að þær framkvæmdir mundu þá gleypa verulega mikinn hluta þess lánsfjár, sem hér er verið að taka frá til stuðnings við þær framkvæmdir, sem hér um ræðir. Ég hygg þó, að á þessu sé ekki svo mikil hætta, þar sem ríkisstj. hefur á hverjum tíma á valdi sínu, hverjum hún veitir leyfi til þess að byggja nýjar síldarverksmiðjur. Og í öðru lagi má benda á það, að í 8. gr. frv., eins og það er nú, þá er sleginn, varnagli fyrir því, að skipa- og bátabyggjendur verði ekki útundan um notkun lánsfjár úr þessari deild, þar sem sagt er, að hafi sjóðurinn ekki nægilegt fé til að fullnægja lánsþörfinni, skuli lán til skipa- og bátakaupa sitja fyrir öðrum lánveitingum. Þegar á þetta er litið, hygg ég, að þegar ríkisstj. hefur einnig leyfisveitingar fyrir byggingu nýrra síldarverksmiðja í hendi sinni, þá sé auðsætt, að byggingar síldarverksmiðja þurfi ekki að gleypa verulegan hluta lánsfjár þessa. — Ég vil þess vegna leyfa mér að flytja brtt. um þetta við 3. gr. frv., þannig að á eftir orðinu „niðursuðuverksmiðjum“ í 1. mgr. komi: síldarverksmiðjum. Og leyfi ég mér um þetta að vísa til þess rökstuðnings, sem ég hef sett hér fram. Leyfi ég mér svo að afhenda hæstv. forseta þessa skrifl. brtt.