12.04.1946
Neðri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1626 í B-deild Alþingistíðinda. (3547)

141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Jóhann Jósefsson:

Ég er út af fyrir sig samþykkur þeirri stefnu, sem kemur fram í þessari till., en eins og hv. þm. er kunnugt um, er þetta frv. sumpart samkomulag milli flokkanna, þó að um það sé ágreiningur í ýmsum atriðum, og vegna þess samkomulags, sem gert hefur verið, greiði ég atkv. á móti till. og segi nei.

Brtt. 722,4-5 teknar aftur.

— 735,1 samþ. með 22 shlj. atkv.

Brtt. 735,2 samþ. með 20:4 atkv.

— 717,2 samþ. með 21:1 atkv.

— 735,3 samþ. með 25 shlj. atkv.

Frv., svo breytt, samþ. með 27 shlj. atkv, og afgr. til Ed.