18.12.1945
Sameinað þing: 19. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í B-deild Alþingistíðinda. (357)

16. mál, fjárlög 1946

Jörundur Brynjólfsson:

Ég á tvær brtt. á þskj. 362 ásamt hv. þm. V.-Sk., og er önnur þeirra varatill. við þá fyrri, ef hún verður ekki samþ. Þessi till. er undir tölulið VIII á þskj. 362. Hún fer fram á, að veittar verði á fjárl. 1946 3700000 kr. til vegagerðar á Suðurlandsbraut, og er gert ráð fyrir, að þetta verði fyrsta greiðsla af sex. Mundi verða byrjað á þeim vegi nálægt Lækjarbotnum eða eftir till. mþn., sem haft hefur þessi mál til athugunar og lagt til, að gerður verði nýr vegur frá Lækjarbotnum austur í Ölfus. Ég ætla ekki að fara út í það mál, hversu gagnlegt það er að breyta veginum austur. Það er vafalaust rétt, að hann verður snjóléttari þessa leið en austur yfir Hellisheiði. Hæðarmunur er mikill og snjóalög þar af leiðandi minni. Hitt er annað mál, að ef snjóalög eru mikil, má búast við, að þessi leið sé hvergi nærri örugg. Og vegna þess er líka nauðsynlegt að flýta Krýsuvíkurveginum, svo að unnt verði að fara þann veg, þegar aðrar leiðir lokast. Það eru sjálfsagt deildar meiningar um það, hversu heppilegt er að leggja veg stytztu leið austur, og um engjar í Ölfusi. Mér er kunnugt um, að þar er nokkuð mjúkt undir fótum, og víst, að nauðsynlegt er að gera veginn þar allháan, og má búast við, að erfitt verði að gera hann þannig, að ekki verði torvelt að ferðast um hann, þegar flug er í vötnum og Ölfusá teppist af jakaburði. Ég treysti mér ekki að dæma um slíkt, það verða færari menn að gera. En hvað sem því líður, er aðalatriðið að fá bættan veg austur yfir fjall. Þessi fyrirhugaða leið mun vera sú stytzta. Hún verður farin, þegar mögulegt er, og munar það miklu með vegalengdina, þegar athugað er, hvaða óhemju magn það er, sem flytja þarf eftir þessari leið. — Ég geri ráð fyrir, að það þyki mikið í ráðizt að hefjast handa nú eftir því útliti, sem er á fjárl. Þetta er alveg rétt, en nauðsyn þessa máls er mikil og þetta er hagsmunamál nærri helmings allrar þjóðarinnar. Það liggur nú fyrir Ed. frv., sem ræðir þetta mál, en aðalefni þessarar till. er heimild fyrir lántöku til vegarins. Má vera, að mönnum þyki það ekki mikið í ráðizt að taka 20 millj. kr. lán. En ég tel ekki rétt að taka svo mikið lán vegna framtíðarinnar. Menn geta ekki búizt við, að þeir veltutímar, sem nú eru, verði endalaust. Ef ekki er ráðlegt að verja fé af tekjum til þessa mannvirkis, þá verður meira en lítill vafi, hvort stofna skal til slíkrar lántöku.

Ég drap á, að við flm. hefðum borið fram varatill. á þessu sama þskj. undir lið XXXVIII. Þar er um að ræða, að heimilt sé að verja þessari upphæð, ef reksturinn reynist verða svo hagkvæmur. Ég vil mælast til, ef menn skortir áræði til þess að samþ. aðaltill., að þá samþ. þeir varatill. Þá verður ríkisstj. látin ráða, hvað gert verður.

Ég fjölyrði svo ekki meir um þetta, og vil ekki gera fjárl. frekar að umræðuefni eða einstakar brtt. Ég á eina till., sem er ekki komin úr prentun, og vona, að forseti taki það ekki illa upp, þó að ég drepi á hana örlítið. Þessi till. fer fram á, að ríkisstj. sé heimilað að veita fé úr ríkissjóði til þess að steypa í málm mynd af Hirti Snorrasyni. Það var veitt fé til að gera þessa mynd, en vantar að koma henni fyrir á Hvanneyri, þar sem henni er ætlaður staður. Ég vænti, að þm. samþykki þessa till., svo að Alþ. skilji við þetta mál með fullri sæmd.