29.04.1946
Neðri deild: 129. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2184 í B-deild Alþingistíðinda. (3607)
Starfslok deilda
forseti (BG):
Nú þegar slíta skal síðasta fundi þessarar hv. deildar, er mér bæði ljúft og skylt að þakka varaforsetunum, þingriturunum og öllum hv. þingdeildarmönnum fyrir samstarfið á þessu þingi. Sérstaklega vil ég færa þakkir fyrir þá þolinmæði og það umburðarlyndi, sem hv. þdm. undantekningarlaust hafa sýnt, þegar mistök hafa orðið á fundarstjórn minni, sem allt of oft hefur komið fyrir.
Ég vil svo óska öllum utanbæjarmönnum góðrar heimferðar og þeim og öllum öðrum góðrar framtíðar.