20.02.1946
Neðri deild: 71. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í C-deild Alþingistíðinda. (3646)
13. mál, botnvörpu- og dragnótaveiðar í Faxaflóa
Pétur Ottesen:
Ég hafði kvatt mér hljóðs, þegar frestað var umr. um þetta mál hér í gær, og þykir mér rétt að gera nokkrar aths. við ræðu hv. frsm., þm. Vestm., sem varði hér alllöngu máli í gær til þess að verja afstöðu sjálfs sín og n. í þessu máli, — til viðbótar því, sem hann hafði fært fram í málinu, þegar það lá hér fyrst fyrir til 2. umr. Hv. frsm. bar hér upp kveinstafi fyrir hv. þd. út af því, að ég hefði verið nokkuð harðorður í minni ræðu og ekki tekið svo á till. hans og n. sem hann hefði óskað. Mér fannst það, satt að segja, vera harla einkennileg viðkvæmni hjá hv. þm. Ég hélt, satt að segja, að hann væri ekki svo uppnæmur fyrir því, að mál væru flutt af nokkurri alvöru, eins og ég gerði í þessu máli. Því að það er, sem betur fer, almennur áhugi fyrir því, að ekki sé látið undir höfuð leggjast að fylgja fast fram því máli, að hér séu gerðar nokkrar öryggisráðstafanir gegn því, að fiskistofninn við strendur landsins verði rýrður svo, að það spilli því, að fiskveiðar okkar geti orðið í framtíðinni svipaður atvinnurekstur eins og verið hefur um langt skeið. En reynsla undanfarinna ára og áratuga, síðan farið var að nota hin stórvirkari veiðitæki hér við strendur landsins — og einkum þau veiðitækin, sem ganga ekki síður nærri ungviði fiskjarins heldur en nytjafiskinum sjálfum, — þessi reynsla hefur opnað augu landsmanna fyrir þessari nauðsyn, svo að það er ekki nema eðlilegt, að því sé fast fylgt fram og leitað allra úrræða til þess að koma í veg fyrir þann voða, sem landsmönnum virðist búinn af þessum sökum, ef svo vindur fram sem verið hefur að undanförnu. En því miður er misbrestur á því, að í hópi þeirra manna, sem eiga sæti á hæstv. Alþ., sé áhugi fyrir þessu máli í fullu samræmi við það, sem ríkir meðal þeirra manna, sem þessum málum eru kunnugastir, þ. e. sjómannastéttar landsins, og kom það einna skýrast fram í ræðu hv. frsm. hér í gær. Því að hann var þar nokkuð opinskárri um hina raunverulega afstöðu sína til þessara mála en hann hefur verið nú síðari árin og fram kom í ræðu hans, þegar hann lagði þetta mál fyrir af hálfu n. Nú gerði þessi hv. þm. ýtarlegar tilraunir til þess í ræðu sinni að draga úr þýðingu þess, að beitt yrði m. a. þeirri röksemd, sem fælist í því, að við bönnuðum, eins og það bann getur náð af okkar hendi, fiskveiðar hér í Faxaflóa með botnvörpu og dragnót, þessum stað, sem er álitinn af sérfræðingum að vera einhver mikilsverðasta klakstöð hér við land. Ég þarf ekki að endurtaka þau rök, sem alkunn eru, fyrir því, að einmitt þannig er ástatt um Faxaflóa. Það er alkunnugt og því hefur verið margoft hreyft af fræðimönnum um þessi mál. — Hv. þm. Vestm., frsm., gerði mjög ýtarlegar tilraunir til þess að véfengja það, að bann gegn botnvörpuveiði fyrir Íslendinga í Faxaflóa gæti verið nokkur þýðingarmikill liður í baráttu okkar fyrir því að fá aðrar þjóðir til þess að viðurkenna stefnu okkar í því efni og fara að okkar fordæmi. (Hv. frsm. rennur nú af hólminum hér, en kemur vonandi aftur í salinn, og get ég eigi að síður haldið áfram minni ræðu um þetta atriði). Ég benti á það hér, eins og líka fram hefur komið, að Árni Friðriksson fiskifræðingur gerði um það tillögur í stríðsbyrjun, að þá yrðu sett l. um, að bannaðar yrðu fiskveiðar fyrir Íslendinga í Faxaflóa. Þeirri málaleitun var ekki sinnt. Ég tók svo þetta mál upp aftur síðar á stríðsárunum, og eins og ég lýsti hér, fór það mál í hendur hv. þm. Vestm., frsm. þessa máls nú, og annarra manna í hv. sjútvn. með meðmælum Árna Friðrikssonar, en eigi að síður sýndi nefndin málinu þau skil að setjast á það og koma í veg fyrir, að um það gætu gengið atkv. í þinginu. — Mér var kunnugt um það, að fiskifræðingurinn Arni Friðriksson, sem einmitt á árinu 1943 var á fundum úti í Englandi, þar sem þetta mál bar á góma, hann taldi, að það hefði verið mikill styrkur fyrir sig, að slík samþykkt hefði verið gerð, því að þá röksemd hefði þá mjög mátt nota til þess að sýna, hvað Íslendingar vildu á sig leggja til þess að hrinda þessu máli áfram. En slík samþykkt var þá ekki fyrir hendi, af því að Alþ. hafði daufheyrzt við þeim till., sem fram höfðu komið um þetta efni. Enn fremur sýndi ég fram á það, að sú afstaða, sem fiskifræðingurinn hafði tekið nú gagnvart þessu máli, væri harla einkennileg og í algerðu ósamræmi við það, sem hann hefði áður haldið fram. Því að svo sterk röksemd sem þetta hefði orðið af okkar hálfu á stríðsárunum, þegar lítið var hér af erlendum togurum, þá var þetta miklu sterkari röksemd nú, þegar von var á því, að fiskveiðar erlendra togara ykjust hér á miðunum, þannig að þrátt fyrir þetta vildum við þó gera það, sem í okkar valdi stæði, því að okkar valdsvið náði ekki lengra en þetta. Þess vegna er það, að þegar hv. þm. Vestm. var hér í gær að gera mjög lítið úr því, að þetta væri sterk röksemd, þá var hann ekki aðeins að gera lítið úr minni afstöðu og því, sem ég held fram í þessu máli, heldur einnig því, sem fiskifræðingurinn hefur haldið fram um þetta mál, og hefði — svo framarlega sem hann hefði verið sjálfum sér samkvæmur — ekki síður átt að halda fram nú. En það kom mjög greinilega fram hjá hv. frsm., þegar hann fór að tala um, að ég hefði haldið því fram, að skoðanaskipti hefðu átt sér stað áður fyrr hjá Árna Friðrikssyni fiskifræðingi, að hv. frsm. taldi, að þetta væri ekki sterk röksemd. — Það er alkunnugt frá fyrri þingum, þegar við hv. þm. Vestm. og ég höfðum deilt um dragnótaveiðar í landhelgi, að þá notaði þessi hv. þm. mjög þær röksemdir, sem Árni Friðriksson hafði fyrr á árum haldið fram um það, að þessar dragnótaveiðar væru ekki það skaðvænlegar fyrir fiskistofninn, að sérstök ástæða væri til að skerast í leikinn og banna þær. Nú benti ég á, að fiskifræðingurinn, Árni Friðriksson, hefði tekið upp allt aðra stefnu og afstaða hans hefði gerbreytzt í þessum málum. Og hv. frsm. tók einnig fram, að hann vildi alls ekki taka undir með fiskifræðingnum um þessa stefnubreyt., sem hjá honum hefði orðið í þessu efni, því að hann sagði á þessa leið: „án þess að ég tæki undir með honum um þessa breytingu.“ Þetta sýnir það, að sá aðsteðjandi voði hjá okkur fyrir fiskveiðarnar, sem með hverju ári verður augljósari, hann hefur alls ekki opnað augu hv. frsm. fyrir þeirri hættu, sem hér vofir yfir. Þess vegna er afstaða hans skiljanleg að því leyti, að hann telur ekki, að við þurfum að leggja neitt sérstaklega að okkur til þess að koma fram ráðstöfunum, sem gætu orðið til þess að skakka þann hættulega leik, sem átt hefur sér stað með botnvörpu- og dragnótaveiðum í landhelgi hér við okkar land. Hv. frsm., þm. Vestm., hefur enga sannfæringu fyrir nauðsyn friðunarinnar og engan áhuga fyrir því máli. — Ég vil náttúrlega ekki slá neinu föstu um það, að afstaða annarra sjávarútvegsmanna sé jafnróttæk og hans í þá átt, að það sé óþarft að gera ráðstafanir til þess að fá einhverju framgengt í þessu máli, og að aðrir sjávarútvegsmenn séu í jafnróttækri andstöðu gegn því, eins og komið hefur fram hjá hv. frsm., þm. Vestm., að hann er, þar sem hann hefur nú fengið því ráðið í sjútvn., að mál þetta fengi afgreiðslu, sem er í samræmi við þann steingervingslega hugsunarhátt, sem hv. frsm. hefur tileinkað sér í þessu máli. Hvort svo er um aðra útvegsmenn, það sýnir reynslan í þessu efni. Væri svo, þá væri það vitanlega mjög miður farið. Og ég efast ekkert um það, að ef hv. frsm., þm. Vestm., á langt líf fyrir höndum — sem ég vona, að verði, — þá á hann eftir að taka út fyrir þá fásinnu að vera svo tómlátur í þessu máli og heltast svo úr lest sem hann gerir um þann almenna áhuga, sem ríkjandi er í landinu gagnvart þessum málum. — Og það var einmitt þetta, sem ég benti á, að væri í ósamræmi við hans mikla tal hér um nýsköpun, þessi steingervingslegi hugsunarháttur og sjónarmið, sem framkoma hans í þessu máli er öll mótuð af. Hitt var rangt hjá honum, að ég hefði mælt nokkurt öfugt orð í garð nýbyggingarráðs. Í þessu sambandi var það aðeins þessi afstaða hv. frsm. í þessu máli annars vegar og svo hið mikla tal hans um nýsköpun á sviði sjávarútvegsmála og á öðrum sviðum, sem mér fannst í ósamræmi hvað við annað. Og það var af góðum huga gert, að ég benti honum á þetta, í von um, að ég gæti vakið hann af þeim doðasvefni, sem á hann hefur lagzt, þegar um þessi mál er að ræða, sem hér eru til umr. nú.
Ég þarf þess vegna ekkert að taka aftur af því, sem ég sagði um þetta, því að ég sagði ekkert í garð nýbyggingarráðs, sem ástæða er til fyrir hv. þm. Vestm. að fetta fingur út í.
Það voru tvær röksemdir, sem ræða hans var byggð upp á, og að hann spann hér lopann nokkuð lengi var það, sem ég hef nú minnzt á, og svo hitt, að gera lítið úr ályktunum og samþykktum fiskimanna. Eitt af því, sem hann reyndi að nota til þess að véfengja aðstöðu mína og sýna öfgarnar og fjarstæðurnar, sem þessar samþykktir væru byggðar á, var það, að Garðbúar, sem eiga allt sitt undir því, að sæmilega gangi urri fiskveiðar hér við Faxaflóann fyrst og fremst, hefðu gert samþykkt um það, að þeir óskuðu helzt eftir, að allt svæðið frá Geirfuglaskeri til Öndverðaness yrði friðlýst. Með þessu fannst hv. þm. hann geta kveðið upp dauðadóm yfir því, að ekkert væri að leggja upp úr samþykktum þessara manna, því að þær væru svo öfgakenndar, að ómögulegt væri að taka tillit til slíks. Þessar samþykktir byggjast á því, að með þessum hætti yrðu þau mið friðuð, sem línuveiðar eru stundaðar á, bæði frá Sandgerði og úr Garði og að nokkru leyti frá Keflavík og Njarðvíkum. Hv. þm. veit það, að hjá öðrum fiskveiðiþjóðum, sem eiga þó ekki eins mikið undir fiskveiðum og Íslendingar, af því að þær styðjast við aðra atvinnuvegi, sem er miklu stærri þáttur í lífi og afkomu þeirra þjóða, — eru nú uppi tillögur um það að færa landhelgina úr 3 sjómílum upp í 6, eða um helming frá því, sem landhelgislínan er hjá okkur, og á að friða allt þetta svæði fyrir dragnóta- og botnvörpuveiðum. Þá hafa og borizt fregnir frá Bandaríkjunum til stjórnarráðsins hér, að þar séu uppi tillögur um sama efni, sem þó ganga enn lengra. Væri ekki ólíklegt, að þetta gæti orðið okkur að einhverju liði í þeirri baráttu, sem við heyjum fyrir útfærslu landhelginnar og friðun einstakra fiskimiða. Það er einmitt þetta, sem fram kom í tillögum sjómannanna og í samræmi við þær tillögur, sem eru uppi hjá mestu fiskveiðiþjóðunum. Yfir þessum tillögum sjómannanna vill hv. frsm. kveða dauðadóm og lítur á þær sem fjarstæðukennt ofstæki, og má hér sannarlega segja: „Hér höggur sá, er hlífa skyldi“, því að vitað er, rið hann hefur í ýmsum sjávarútvegsmálum sýnt áhuga og dugnað, þótt honum fatist svo mjög tökin í þessu máli, sem er undirstaða þess, að aðrar aðgerðir í útvegsmálum okkar geti komið að haldi. Þetta er hið stóra atriði, sem hv. frsm. sést yfir, þegar hann er að beita áhuga sínum og orku að því, sem er þýðingarmikið í sjálfu sér, en kemur ekki að haldi fyrir okkur, ef við og aðrir fyrirhyggjulaust stundum þá rányrkju, sem átt hefur sér stað að undanförnu.
Þetta, sem ég hef nú lýst, eru aðalatriðin, sem fram hafa komið hjá hv. frsm. til þess að hnekkja þessum samþykktum fiskimanna. Ég hef sýnt fram á, að á bak við þetta frv. eru raunar miklar aðgerðir og að því stendur hugur sjómannastéttar þessa lands óskiptur. Ég hef og sýnt fram á, að fiskifræðingur landsins, sem sjálfsagt fer með þessi mál af okkar hálfu í samningum við aðrar þjóðir, hefur gert um það tillögur, þar sem hann taldi sterkar röksemdir fyrir því, að slíkar ráðstafanir sem þessar væru gerðar, þótt hann nú hafi borið út af réttri leið í umsögn sinni og sézt yfir það, að friðun af okkar hálfu er nú enn sterkari röksemd til framdráttar málinu.
Ég vil engan veginn gera lítið úr því, að við Íslendingar og þó sérstaklega þeir, sem búa við Faxaflóa, mundu fórna nokkru með þeim aðgerðum, sem hér um ræðir, en að þessu ganga sjómennirnir með opnum augum. Hitt er vitað, að ef maður ber saman þau tvö tímabil, þ. e. tímabilið, sem fyrri heimsstyrjöldin stóð yfir, og síðan það, sem hin síðari tók yfir, sem stóð enn lengur, þá fylltist Faxaflói af fiski fyrri styrjaldarárin, en þá var þar engin dragnóta- eða botnvörpuveiði. Nú í þessu stríði hafa engir útlendir botnvörpungar verið að veiðum í Faxaflóa og lítið af íslenzkum, en hér hefur hins vegar verið mikið safn af dragnóta- og botnvörpubátum. Útkoman er því sú, að á síðara tímabilinu hefur aldrei verið neinn uppgripaafli á innri miðum flóans, mest reytingsafli, en oft ördeyða. Þessi mismunur á rót sína að rekja til þess, að hér hafa verið sífelld áhlaup dragnóta- og botnvörpubáta á Faxaflóamiðin. Sjómönnunum er þetta ljóst, og þeir láta þessa reynslu sér að kenningu verða. Samþykkt sjómannanna við Faxaflóa er því mjög áberandi hér í þessu máli, þar sem þeir bjóðast til að fórna hagsmunum sínum í þessum tilgangi, en vitanlega til þess að vinna annan miklu stærri sigur. Er þetta mjög ljóst dæmi um vilja og áhuga sjómanna til þess að hrinda þessu máli fram.
Hv. þm., sem fer alltaf hjá sér, þegar verið er að tala um róttækar aðgerðir í þessu máli, og er það vissulega mjög í samræmi við skoðanir hans bæði fyrr og síðar virtist hins vegar geta sætt við þær ráðstafanir, að smækkaðir verði möskvar neta til þess að þyrma með því fiskungviðinu. Þeir þekkja það, sem kunnugir eru dragnóta- og botnvörpuveiðum á stærri og smærri skipum, að í hverjum einasta drætti, — og er það sérstaklega áberandi í Faxaflóanum, af því að ungviðið heldur sig þar meir en á öðrum miðum — koma upp í vörpuna dyngjur af ungviði, sem ekki eru til nokkurra nytja. Og hvað verður svo um þetta ungviði? Það er dregið upp, hvolft niður á þilfarið og síðan mokað aftur út í sjó steindauðu, og þetta gerist, þótt hér hafi verið, tekin upp ákvæði um ákveðna möskvastærð. Það eru vitanlega sjómennirnir, sem þessu eru kunnugastir, og þess vegna láta þeir þetta ekki verða til þess að trufla sig í þeirri sókn, að öflugar ráðstafanir verði gerðar gegn hættunni, sem yfir okkur vofir í þessum efnum.
Hv. þm. Vestm. minntist á það, að samþykkt þessa frv., sem hér liggur fyrir, væri gersamlega þýðingarlaus, af því að áður hefði verið samþ. þáltill. um sama efni hér á hv. Alþ., og virtist honum þetta frv. vera í samræmi við þá samþykkt, sem þá var gerð. Er þetta rétt hjá honum, að fullkomið samræmi er þarna á milli. En til þess að styrkja aðstöðuna í baráttunni fyrir þessu málefni er þetta frv. flutt, og samþykkt þess mundi að sjálfsögðu verða sterkasta vopnið, sem við gætum lagt í hendur þeirra manna, sem eiga nú að sækja þessi mál fyrir okkur, og því sterkara er þetta vopn, því meir sem við viljum leggja í sölurnar til þess að fá þessu mikilsverða máli hrundið í framkvæmd. Þetta er öllum augljóst, þótt hv. þm. Vestm. virðist ekki geta komið auga á það. — Nei, eins og þessi mál standa nú, þá er það gersamlega óforsvaranlegt af okkar Íslendinga hálfu að láta undir höfuð leggjast að nota okkur þau ráð og meðul, sem við höfum yfir, að ráða til þess að hrinda þessu máli í framkvæmd. Nú eru allar þær þjóðir, sem líklegastar eru til þess að stunda fiskveiðar í Norðurhöfum, eins og við að búa sig undir miklu öflugri sókn á þessu sviði en verið hefur áður. Við erum að gera þetta bæði með því að auka togaraflotann okkar og auk þess með því að gera hann miklu betur úr garði og þannig, að sem fæstir dagar þurfi að falla úr, sem ekki er verið að veiðum á miðunum. Þetta felst vitanlega í því, að notuð verða miklu stærri og öflugri skip, sem geta miklu betur boðið veðurhamnum og öðrum öflum byrginn, sem löngum hafa hindrað það, að flotinn hafi getað aðhafzt á miðum úti. Þetta hvort tveggja verður þess valdandi, að ánauðin á miðunum margfaldast frá því, sem verið hefur undanfarið. En ef þannig verður haldið áfram, þá flýtir það að sjálfsögðu fyrir því, að áfram haldi á sömu braut um rýrnun fiskistofnsins, svo að segja má, að það, sem verið hefur að seigdrepa að undanförnu í þessum efnum, getur orðið til þess, að höggið ríði miklu fljótar af, þannig að sökum fiskiskorts á miðunum stæðum við uppi með okkar fiskveiðitæki og með þjóðina svipta öðrum aðalatvinnuvegi landsmanna, eða svo lamaðan, að hann geti ekki undir neinum kringumstæðum svarað til þeirrar þarfar, sem gera verður til hans á þessu landi. Þegar svo væri komið, sem sennilegt er að ekki yrði langt að líða, þá býst ég við því, að hv. frsm. ætti erfitt með að mikla svo það, sem við ættum að lengja hér af mörkum með því að banna íslenzkum sjómönnum að veiða með dragnót eða botnvörpu í Faxaflóa. Það væri svo óverulegt atriði í þessu máli, að það festi enginn sjónir á því, frekar en hve hv. þm. Vestm. á erfitt með það nú að festa sjónir á því, hversu sterkt vopn þetta er í okkar hendi, ef við meinum okkar eigin þegnum að framkvæma rányrkju í dýrmætustu klakstöðinni við strendur landsins. Það má vel vera, að ég sé að tala fyrir dauðum eyrum hjá hv. frsm. í þessum efnum, en það kemur fram, ef hann tekur til máls hér á eftir mér.
Ég þykist þá hafa með þessum tiltölulega fáu orðum hrakið þær fullyrðingar hv. þm. Vestm., að þetta eina dæmi úr samþykkt sjómannanna í Gerðum sé þess eðlis, að ekkert væri upp úr því leggjandi, sem sjómenn og fulltrúar þeirra segja um þetta mál, eins og ég þykist líka hafa hrakið þau ummæli hans, að það væri engin skynsamleg ástæða fyrir því, að samþykkt þess frv., sem hér liggur fyrir, kæmi að nokkru gagni í baráttu okkar fyrir þessu máli. Með þessu lýsir hv. þm. yfir, að í þeim till., sem Fiskifélag Íslands bar fram fyrir ríkisstj. 1939 um að setja á slíkt bann, sem hér um ræðir, væri engin skynsemi. Hann slær þarna í einu höggi og ætlast til þess að slá niður röksemdir Fiskifélagsins og sjómanna um, að þetta sé atriði, sem skipti ekki neinu máli.
Ýmislegt annað, sem hv. þm. fór út í og ef til vill hefði verið ástæða til að minnast á, skiptir miklu minna máli, og ætla ég þess vegna til sparnaðar á tíma að ganga fram hjá því. Ég hef svarað því áður, þar sem hann sagði, að ég hefði verið að sveigja að Nýbyggingarráði, en það var einungis aðstaða hans sjálfs í þeim störfum, sem Nýbyggingarráð hefur með höndum, og aðstaða hans gagnvart þessu máli, sem ég benti á, að væri í mjög miklu ósamræmi hvort við annað. — Hann sagði, að ég hefði viljað dæma sjútvn. með þessum orðum. En ég benti aðeins á veilur í röksemdafærslu hans og n. auðvitað; að svo miklu leyti sem hún er samþykk túlkun hv. þm. Þetta má til sanns vegar færa með því að bera saman skjallega það, sem fyrir liggur frá sjómönnum og útvegsmönnum við Faxaflóa.