18.12.1945
Sameinað þing: 19. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í B-deild Alþingistíðinda. (365)
16. mál, fjárlög 1946
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Ég er tæplega tilbúinn að tala nú, því að ég átti von á því, að búið væri að útbýta brtt., sem ég hef afhent og ætlaði að minnast á um leið. En hér á þskj. 362 er brtt. frá okkur þm. Eyf., sem ég get minnzt á, og kann þá að vera, að þskj. verði útbýtt á meðan. Við þm. Eyf. fórum að dæmi annarra hv. þm. við 2. umr. og tókum allar brtt. okkar aftur. Nú berum við sumar fram við þessa umr., en þó ekki allar. Í fyrsta lagi berum við fram till. um lítils háttar hækkun til vega í Eyjafjarðarsýslu. Er það sama till. og við bárum fram við 2. umr. Ég gerði þá grein fyrir þessari till. og sé því ekki ástæðu til að endurtaka það nú. En ég varð þess var við þá umr., að það gætir nokkurs misskilnings bæði hjá frsm. n. og fleiri hv. þm., sem minntust á, hve mikið væri lagt til vega í Eyjafjarðarsýslu. Ég man eftir því, að einn hv. þm. nefndi millj. kr. í þessu sambandi. En það er ekki rétt, að svo há upphæð sé lögð beinlínis til vega í Eyjafjarðarsýslu. Ég fæ ekki séð, að það sé annað eftir fjárlagafrv., eins og það er eftir 2. umr., heldur en 90 þús. kr. Hrísavegur 10 þús. kr., Árskógssandsvegur 50 þús. kr., Hörgárdalsvegur 10 þús. kr. og Laugalandsvegur 20 þús. kr. Þetta er veitt til Eyjafjarðarsýslu eða samtals 90 þús. kr. Það er að vísu satt, að á fjárlagafrv. eins og það er nú og samkv. því, sem fjvn. lagði til við 2. umr., er veitt allhá upphæð til Öxnadalsheiðarvegar og Ólafsfjarðarvegar. En svo stendur á um báða þessa vegi, að þetta fé verður ekki notað í Eyjafjarðarsýslu nema að mjög litlu leyti. Eins og fjölmargir vita, sem farið hafa veginn til Akureyrar, er vegurinn þarna að langmestu leyti lagður vestur að sýslumörkum Eyjafjarðar- og Skagafjarðarsýslna. Ég játa það, að Eyfirðingar hafa gagn af veginum yfir Öxnadalsheiði, eins og fjölmargir landsmenn aðrir, sem veginn þurfa að nota. En ég get ekki séð, að það sé sérmál Eyfirðinga að fá þennan veg lagðan. Það stendur allt öðru vísi á um þennan veg en veginn yfir Hellisheiði, sem menn á Suðurlandsundirlendinu þurfa að nota til þess að koma afurðum sínum til Rvíkur. Eyfirðingar þurfa ekki að koma neinum afurðum svo teljandi sé yfir Öxnadalsheiði. Þessi vegur er byggður vegna þjóðarheildarinnar, en ekki vegna Eyfirðinga sérstaklega. Það er alveg eins nauðsynlegt fyrir Skagfirðinga að komast til Akureyrar eins og Eyfirðinga að komast vestur fyrir heiði. Svipað má segja um Ólafsfjarðarveginn. Þótt hann heiti Ólafsfjarðarvegur, mun hann vera um það bil á takmörkum þess lands, sem nú tilheyrir Ólafsfjarðarkaupstað og Skagafjarðarsýslu. Og féð verður notað, að því er ég bezt veit, aðallega í Skagafjarðarsýslu. Þessi vegur kemur sjálfsagt Ólafsfirðingum að miklum notum, en það gegnir ekki síður um Fljótamenn, sem þurfa að koma afurðum sínum til Ólafsfjarðar. Og þeirra viðskipti munu beinast þangað, þegar vegurinn er kominn. Verzla þeir þar þó þegar nokkuð. Ég sá ástæðu til að leiðrétta þetta, þar sem bæði frsm. fjvn. og fleiri hv. þm. hafa talað um það, hvað mikið væri lagt í vegagerð í Eyjafjarðarsýslu.
Þá höfum við þm., Eyf. endurtekið þær brtt. okkar við 22. gr., sem við fluttum við 2. umr. um heimild fyrir ríkisstj, til að ábyrgjast 160 þús. kr. lán fyrir Ólafsfjarðarkaupstað til að reisa fiskimjöls- og niðursuðuverksmiðju. Ég gerði grein fyrir þessu máli við 2. umr. og ætla ég ekki að endurtaka það, sem ég sagði um það þá. Aftur á móti höfum við fellt niður till. um brú, sem við fluttum við 2. umr., af því að við álítum, að vonlítið muni vera að fá slíka till. samþ. Sé ég þó, að margir hv. þm. bera fram till. um brúarbyggingar við þessa umr. Þá höfum við einnig fellt niður till. um að greiða Ólafsfjarðarkaupstað sama styrk til skólabyggingar eins og ef Ólafsfjarðarkaupstaður hefði verið hreppur áfram. Ég heyrði ávæning af því, sem frsm. fjvn. sagði við 2. umr. um þetta mál, en þó ekki svo greinilega, að ég geti nú svarað því, þar sem ég lét það vera við þá umr., og þá sérstaklega vegna þess, að till. er ekki fram borin nú. En ekki fæ ég skilið, að það hafi verið eins mikið ódæði að bera þessa till. fram eins og frsm. fjvn. vildi vera láta, og gerðum við þm. Eyf. ekkert annað í því efni en ganga þá leið, sem hæstv. ríkisstj. virðist vera að ganga í þessu efni, því að það lítur út fyrir, að hennar ætlan sé, að kaupstaðir fái styrk til barnaskólabygginga á sama hátt og sveitirnar hafa fengið hann.
Þá flyt ég hér á þskj. 366 brtt. ásamt tveimur öðrum hv. þm. undir III. lið. Það er verið að útbýta þessu þskj., en ekki búið að fá afbrigði fyrir því. Vona ég, að hæstv. forseti leyfi mér samt að tala fyrir þessari till. Við flytjum þarna till. um að hækka styrk til fyrrverandi barnakennara um 1000 kr. frá því, sem nú er í frv., eins og það liggur fyrir, auk tilsvarandi hækkunar á verðlagsuppbót. Fjvn. hefur gert till. um að hækka þetta um 300 kr. miðað við sams konar hækkun á verðlagsuppbót. Er þá sú hækkun, sem við leggjum til, frá því, sem fjvn. gerir, 700 kr. Ég býst við því, að það séu nákvæmlega sömu ástæðurnar til þess, að við berum þetta fram eins og fjvn. ber fram sínar brtt. Ég hlustaði á frsm. fjvn. í dag, og hann gat þess, að till. n. væri borin fram til þess að sérstakur kennari, að mér skildist, gæti komizt að um styrk. Þessi till. er einnig borin fram af sömu ástæðum, til þess að kennari, Ingimar Eydal á Akureyri, sem að vísu hefur of lítil ellilaun úr lífeyrissjóði, geti komizt að um viðbótarstyrk þarna. En svo er um ýmsa merka kennara, sem voru búnir að gegna lengi starfi áður en lögin um lífeyrissjóð voru sett, að lífeyrir þeirra eða eftirlaun eru miklu lægri en ætlazt var til, að þau verði fyrir þá kennara, sem starfa fullan starfstíma undir l. og fá eftirlaun sín úr lífeyrissjóði kennara. Þetta er lítil upphæð, og ég vona, að það verði ekki ágreiningur um þetta, þótt það sé ákaflega smávægilegt samanborið við fjárl., sem eru nú töluvert yfir 100 millj. kr. En eins og menn vita, er ekki víst, að það sé svo smávægilegt í augum þeirra, sem eiga að njóta þessa. Ég tel víst, að fjvn. hafi haft samráð um þetta við fræðslumálastjóra, en það er einmitt út af viðtali við hann, sem ég ber mína till. fram. Þessi till. er flutt vegna manns, sem hann taldi þess maklegan að fá þarna einhverja litla glaðningu. Vona ég, að meiri hl. fjvn. hvað þá aðrir hv. þm. verði ekki á móti þessari meinlausu till.