05.02.1946
Sameinað þing: 24. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í D-deild Alþingistíðinda. (3653)

67. mál, húsaleiga

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Þessi till. á þskj. 83 hefur verið hjá allshn. Eins og segir í áliti n. á þskj. 330, var leitað álits þeirra höfuðaðila, sem ætla má, að séu kunnugastir þessum málum, félags fasteignaeigenda og húsaleigunefndar, og fór nú að vonum ekki saman þeirra álit. Félag fasteignaeigenda taldi, að það væri óþarfi að rannsaka frekar í þessum efnum, reynslan væri búin að sýna það, að húsaleigulögin ættu ekki lengur rétt á sér, enda hefðu þau verið sett í upphafi sem ófriðarráðstöfun, og þar sem ófriðnum væri lokið teldu þeir ekki rétt að halda þeim lengur í gildi. Húsaleigunefnd taldi sig raunar geta fallizt á þá skoðun, sem fram kemur í grg. hv. flm., en áleit þó, að ekki mundi vera hægt að fella húsaleigulögin úr gildi, enda taldi sú góða nefnd, að slíkt mundi leiða til mesta öngþveitis, og þó vildi hún ekki setja sig á móti því, að þetta mál væri rannsakað. Nú, eftir að hafa fengið álit þessara aðila, var þetta rætt í allshn. að nýju og skoðanir manna mjög mismunandi, því að eins og við má búast, hittast varla svo tveir menn um svona viðkvæmt mál, að ekki beri eitthvað á milli um skoðanir. Sumir töldu, að þetta mál, afskipti hins opinbera af húsaleigulögunum eins og þau eru hvað löggjöf snertir og í framkvæmd, yrði til þess að ýta undir eins konar svartan markað í húsnæðismálum, og því bæri að afnema þau. Aftur á móti voru svo aðrir þeirrar skoðunar, að ekkert ætti að gera fyrr en þessi rannsókn hefði farið fram. En um eitt voru allir sammála, og það var það, að ef rannsaka ætti, þyrfti að gera það skjótlega og endurskoða lögin. Samt sem áður virtist nefndinni, að rannsókn, framkvæmd af ríkisstj. í þá átt, sem henni þykir bezt henta, gæti orðið eins góð og ef sérstök mþn. væri skipuð til þessara hluta. Niðurstaðan varð því sú, að n. leyfir sér að leggja til, eins og hér segir á þskj. 330, að till. verði samþ. með þeirri breyt., er þar segir, að Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta tafarlaust fara fram rannsókn á því atriði, þ. e. a. s. húsaleigulögunum, og endurskoðun á þeim fyrir næsta reglulegt Alþingi. Undir þetta hafa allir nm. skrifað fyrirvaralaust.

Ég vil nú vænta þess, að hv. flm. geri sig ánægðan með þessa afgreiðslu á málinu, þar sem frá hans hendi var ekki farið fram á annað en að málið yrði rannsakað. En ekki er því að leyna, að meðal nm. eru ýmsir, sem, ef málið hefði legið öðruvísi fyrir, hefðu viljað leggja til, að þessi lög væru afnumin. Rannsókn á þessu atriði geti að vísu verið þörf og góð, en ég ætla, að þeir telji, að reynslan og það, sem daglega ber við í húsaleigumálum höfuðstaðarins, sé búið að sýna fram á nægilega, hve að mörgu leyti hafi verið skotið fram hjá markinu með þessari löggjöf. En um það er ekki að ræða hér, heldur það, hvort við viljum láta rannsaka og á hvern hátt, og þar ber í sjálfu sér ekkert á milli hv. flm. annað en það, hvernig þessi rannsóknarnefnd eða rannsóknarstofnun skuli vera skipuð.