05.02.1946
Sameinað þing: 24. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í D-deild Alþingistíðinda. (3655)
67. mál, húsaleiga
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka allshn. fyrir afgreiðslu málsins og lýsi yfir því, að ég er fullkomlega samþykkur þeirri breyt., sem gerð er á þskj. 330. Það er ekkert aðalatriði fyrir mér, hvernig nefndin er skipuð, heldur, að málið sé rannsakað, eins og formaður n. tók fram. Ég vil hins vegar gjarnan heyra álit félmrh. um það, hvort hann sé því samþykkur að taka á móti þessari þál. eins og hún er hér á skjalinu og láta þessa rannsókn fara fram nú þegar, eins og þar er rætt um. Í sambandi við það vil ég vita, hvort hann gæti látið þessa rannsókn fara svo skjótt fram, að niðurstöðurnar gætu komið fyrir þetta þing, ef það ætti nokkuð langa setu. Ég vil í sambandi við þetta upplýsa, að nýlega var haldinn mjög fjölmennur fundur í félagi fasteignaeigenda hér í Reykjavík, og var samþ., svo að segja með öllum greiddum atkv., áskorun til Alþingis um að afnema húsaleigulögin nú þegar, og voru færð fyrir því mjög sterk rök, sem ég skal ekki eyða tíma í að endurtaka hér, þar sem þau eru öllum þm. mjög vel kunn. En þætti það ekki gerlegt á þessu þingi, þá a. m. k. að fá þær breyt. gerðar á l., sem hvort tveggja í senn gætu mildað eitthvað þann órétt, sem þeir enn búa við og eiga kröfu á að fá leiðréttan, þar sem ófriðnum er lokið, og hins vegar að bæta úr því öngþveiti, sem ríkir í þessum málum, því að nú er svo komið, að menn verða í sumum tilfellum að greiða 30 þús. kr. fyrir að komast inn í húsnæði, ekki af því, að húsnæði sé ekki nóg, heldur af því, að húsin kosta svo mikið fé og viðkomandi menn vilja tryggja sér niðurgreiðslu af þeim kostnaði eins og hægt er. En þetta ástand hlýtur að krefjast þess, að tafarlaust sé gengið skörulega inn í þetta mál til þess ekki aðeins að lága þann órétt, sem húseigendum er bakaður, heldur og til þess að laga það ástand, sem er um hin nýju hús í bænum og almenningur verður að búa við. Því vildi ég gjarnan heyra álit ráðh. um það, hvort hann hugsar sér að láta framkvæma þetta nú þegar, eftir að þál. nær samþykki Alþ., sem ég held, að verði hér í dag, og hvort hægt verði að fá úrbætur á þessu mjög fljótlega áður en þessu þingi lýkur.