05.02.1946
Sameinað þing: 24. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í D-deild Alþingistíðinda. (3663)
67. mál, húsaleiga
Hermann Jónasson:
Herra forseti. Það er ekki mikil þörf á að ræða um, hversu stórt þjóðfélagslegt vandamál húsnæðismálin eru, því að það er öllum ljóst. En það er eins og vanalega, að hæstv. ríkisstj. hleypur á brott og lætur ekki sjá sig, þegar mál eru hér til umr., sem erfitt er að ráða fram úr. Það er og ljóst, að umr. um þetta mál, eins og það er rætt hér, eru ekkert annað en látalæti, eins og hv. þm. Borgf. hefur fært rök að. Ég ætla ekki að fara að minnast á það, hvernig framkvæmdin í húsnæðismálunum hefur verið og hverjar afleiðingar hún hefur haft, þar eð öllum má vera ljóst, að húsaleiguokrið á nýju húsunum hér í Reykjavík er sennilega einstakt fyrirbrigði í veröldinni, svo gífurlegt sem það er.
Mergurinn málsins varðandi þá till., sem hér liggur fyrir, er sá: Hvað þarf að rannsaka viðkomandi húsaleigul.? Svar við því er að finna í þeirri till., sem ég flyt hér og er næsta mál hér á dagskrá. Ég býst við því, að mönnum geti skilizt, að hægt er að fá skýrslur um húsnæðislaust fólk á 2 dögum. Það þarf aðeins að auglýsa og biðja það fólk, sem þannig er ástatt fyrir, að gefa sig fram, eins og þegar auglýst er eftir fólki til atvinnuleysisskráningar. Þetta er það, sem fyrst þarf að gera. Ekki þyrfti mikinn tíma til þess að athuga þá, hve mikið húsnæði þetta húsnæðislausa fólk þarf. Síðan yrði farið til byggingarfulltrúa og athugað, hve mörg hús væru í smíðum og fyrir hvaða tíma þeim væri lokið. Væri þar með fengið yfirlit um það, að hve miklu leyti þessi hús, sem væru í smíðum, gætu ekki fullnægt húsnæðisþörf hins húsnæðislausa fólks, og yrði að sjálfsögðu reiknað með eðlilegri fólksfjölgun yfir tiltekið tímabil. Hér er svo verið að tala um, að þetta krefjist mikillar rannsóknar, sem menn úr stjórnarráðinu þurfi að framkvæma, en hún er hins vegar ekki stærri en það, að hana má gera á einni viku. Mætti síðan leggja hana strax fyrir þ. og taka um hana ákvörðun. En ef ætti að fara að rannsaka það atriði, sem er þó ekki beinlínis varðandi húsnæðisskortinn, sem sé kjör þau, sem húsaleigjendur hafa búið og búa við, þá er það þannig vaxið, sem kunnugt er, að allt er á huldu um það, t. d. hvað fólk hefur greitt raunverulega í húsaleigu, og yrði erfitt eða ómögulegt að fá yfirlit yfir slíkt. Menn vita um þetta meira og minna, og út frá þeirri forsendu getur Alþ. tekið þessa ákvörðun viðkomandi afnámi húsaleigul. Það, sem skiptir máli, er að rannsaka það, sem ég hef bent á, og það er ekki nema sáralítið verk, það er hægt að gera það á einni viku. Hvað er það eiginlega, sem menn eru alltaf að fara í kringum og veldur því, eins og hv. þm. Borgf. tók fram, að ekkert er gert í málinu?
Húsaleigulögin voru sett á þeim tíma, þegar ætlunin var að halda niðri kaupgjaldi og verðlagi, og húsaleigul. voru, eins og kunnugt er, þáttur í þeirri heildarlöggjöf, sem snerti þegnana alla. Síðan hefur þetta allt eða flest breytzt, svo sem ráðstafanir viðvíkjandi kaupmannastéttinni. T. d. álagningarreglan, sem verðlagsráð setti, er þannig, að hún getur ekki talizt nein þvingun fyrir kaupmannastéttina, og má víða sjá það greinilega. Ég sé t. d. í einu norðanblaðinu birta töflu yfir vörur, sem sum fyrirtæki hafa selt fyrir neðan það verð, sem verðlagsráð hefur sett. Það má því segja, að húseigendur séu eina stéttin, sem býr undir svona löggjöf. Hver verður svo afleiðingin? Hún verður sú, að þegar allt hefur hækkað, er verðlagsvísitalan og framfærsluvísitalan orðin svo há, að hvorki landbúnaðurinn né sjávarútvegurinn verður rekinn nema með ábyrgð og meðlagi frá ríkinu, og vísitölunni er haldið niðri á falskan hátt með húsaleigul.
Það er staðreynd. Ef húsaleigul. væru ekki í gildi og áhrif þeirra væru tekin út úr vísitölunni, þá liggur fyrir útreikningur um það frá einum þeirra manna, sem reiknað hafa út verðlagsvísitöluna, — það mun vera Jón Blöndal í blaðinu Útsýn, — að framfærsluvísitalan mundi hækka um 30 stig.
Hæstv. dómsmrh. tók það fram, sem var virðingarvert, að hann gæti ekki lofað neinu um árangur af þessum ráðstöfunum, og sagðist vilja benda á, eins og hv. þm. Borgf. hefði gert, að ef sú leið yrði tekin að afnema húsaleigul., gerði hann tæplega ráð fyrir, að menn vildu horfast í augu við þær afleiðingar, sem það hefði fyrir framleiðendur í landinu.
Það má segja, að húseigendur séu einkum þeir, sem fórna, a. m. k. þeir, sem eiga gömlu húsin og nota ekki þvingunarráð við leigutaka. Á baki þeirra hvílir það, að hægt sé að halda uppi framleiðslu í landinu, og um leið er þetta komið á bak launþegum, vegna þess að framfærsluvísitalan er með þessu fölsuð. Þetta er málið, og þetta er staðreyndin og þess vegna er farið í kringum þetta eins og köttur í kringum heitan graut. Það er alveg greinilegt, að það er ekki ætlunin að gera neitt, af því að það er ekki hægt nema með því að rannsókn fari fram og rannsaka þá liði, sem ég hef bent á í minni till., svo sem húsnæðisþörfina í landinu, reyna að fullnægja henni og afnema síðan húsaleigul. Og einnig að gera fjármálalegar ráðstafanir, svo að mögulegt sé að halda framleiðslunni og atvinnuvegunum í landinu áfram. En með núverandi fjármálastefnu er það ekki hægt, og þá ekki heldur hægt að afnema húsaleigul. nema það leiði til almennrar stöðvunar á framleiðslunni.
Það er táknrænt, að menn skuli eyða tíma og vinnu í að flytja og ræða till. og vísa til ríkisstj., þar sem allir vita, að ekkert verður gert í málinu. Það vita allir aðilar, þó að hæstv. dómsmrh. segði það, að hann gæti ekki ábyrgzt neinn árangur af þeirri rannsókn, sem stj. væri falin, og hann reyndi að segja þetta á einhvern þann hátt, hæfilega óákveðið, þar sem hann veit sjálfur, að ekkert verður gert í málinu. En rannsókn á málinu sjálfu þarf ekki að taka nema nokkra daga. En að skapa þann grundvöll, sem þarf til þess, að hægt sé að afnema húsaleigul., án þess að almenn stöðvun verði á framleiðslunni, er stórt verk, og verður þess vegna ekkert gert í málinu.