05.02.1946
Sameinað þing: 24. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í D-deild Alþingistíðinda. (3667)
67. mál, húsaleiga
Gísli Jónsson:
Ég vil að gefnu tilefni leyfa mér að mótmæla því, sem hefur komið fram, að mál þetta væri fram borið til að sýnast. Það er borið fram af fullri alvöru.
Ég hef skilið till. hv. allshn. á þá leið, að það væri til þess, að málið fengi betri meðferð og fljótari en gert er með frumtill., og er ég n. þakklátur fyrir það.
Ég hygg, að þeir, sem hafa látið þau orð falla, að málið væri borið fram til að sýnast, hafi ekki gert það af heilum hug við málið. Þeim hefði þá verið innan handar að bera fram brtt., en það hafa þeir ekki gert. Að ég hef ekki borið fram brtt. við l. sjálf, kemur til af því, að mér þótti heppilegra, að fyrst færi fram athugun á þeim. Ég vísa því alveg á bug öllum ummælum hv. þm. Str. og hv. þm. Borgf. og ummælum um, að hér sé verið með leikaraskap frá minni hálfu. Ég hygg, að megi segja um hv. þm. Str., að hann hafi verið með meiri leikaraskap í sambandi við síðustu bæjarstjórnarkosningar en hér er af minni hálfu.