30.10.1945
Sameinað þing: 4. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í D-deild Alþingistíðinda. (3674)

49. mál, afkoma sjávarútvegsins

Flm. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Þessi till. til þál. á þskj. 55 er ákaflega lík að efni þáltill., sem ég hef flutt í tvö skipti áður, þó að vísu nokkuð frábrugðin, þar sem ég geri nú ekki, till. um það, að sérstök n. verði skipuð til þess að athuga það verkefni, sem greinir í þáltill., heldur legg aðeins til, að hæstv. Alþ. leggi fyrir ríkisstj. að láta þá athugun fara fram, sem þarna er gert ráð fyrir, á framleiðslukostnaði sjávarafurða. Ég læt það liggja á milli hluta í þáltill., hvernig rannsókninni er fyrir komið, en geri ráð fyrir, að hún mundi verða falin jöfnum höndum sérstökum fagmönnum í þessum efnum annars vegar, sem vanir eru að vinna úr hagfræðilegum skýrslum og hafa sérþekkingu í því, og svo aftur öðrum, sem hefðu sérþekkingu um hag og afkomu sjávarútvegsins. — Ég geri mér fyrirfram nokkru meiri vonir nú en áður um það, að þessi þáltill. verði samþ., þar sem mér sýnist, að nú liggi það gleggra fyrir en áður, — þó að áður hafi verið glöggt, — að knýjandi nauðsyn er á því, að slík rannsókn fari fram. Ástæðurnar fyrir því eru sumpart tilfærðar í grg. þáltill., en ég vil einnig taka fram nokkur önnur atriði.

Það ætti öllum að vera ljóst, að þeir, sem framleiða vörur fyrir erlendan markað, geta ekki flúið undan verðbólgunni, nema þeim takist að hækka verð á þeim vörum, sem þeir selja úr landi. Auðvitað hefur verið reynt að fá hækkað verð fyrir útfluttar sjávarafurðir. Og t. d. árið 1942 tókst að fá verulega hækkun á verðinu fyrir fiskinn, aðalútflutningsvöru landsmanna, úr 35 aurum á kg í 45 aura, hjá þeim, sem selja hér við land. En þótt þessi hækkun fengist, óx verðbólgan það mikið jafnframt, að sjávarútvegurinn mun eftir það hafa verið verr settur með þetta hærra verð fyrir fiskinn en með lægra verðið áður. Á síðasta ári var gerð tilraun til þess að hækka verðið með nýrri skipan á fiskflutningunum og sölu á fiskinum. Örlítil hækkun fékkst um stund á fiskverðinu með þessu móti, og það er ýmissa manna skoðun, að hægt hefði verið að komast lengra í því, ef vel hefði verið á haldið, en ég ætla ekki að blanda því inn í þetta mál. En sá litli árangur hefur meir en étizt upp með síhækkandi framleiðslukostnaði og síversnandi aðstöðu þeirra, sem stunda sjávarútveg. Nú í dag er ástandið í þessum efnum þannig, sem mér skilst vera viðurkennt, þótt ekki liggi það fyrir í tölulegri athugun, eins og þó þyrfti að vera, að smáútvegurinn sé mjög illa haldinn. Smáútvegurinn hefur undanfarið flotið á því, að mokafli hefur verið, en ekki má neitt út af bera til þess að kostnaðurinn við smáútveginn verði svo stórfelldur, að engin tök verði fyrir menn að rísa undir honum. Ég hygg, að þótt ekki nema annaðhvort kæmi fyrir, að fiskverðið lækkaði eina vertíð eða þá hitt, að afli brygðist, þá væri hagur útgerðarinnar í voða. Ef við lítum lengra í þetta mál, sjáum við einnig hitt, að það er að verða sífellt erfiðara og erfiðara að fá menn til þess að stunda fiskveiðar á vélbátaflotanum, af þeirri einföldu ástæðu, að það er búið að koma þessum málum þannig fyrir, að sá hlutur,sem menn geta fengið í mörgum tilfellum á vélbátaflotanum, þótt vel gangi veiði og stríðsverðið haldist á fiskinum, er ekki nógu stór til þess að jafnast á við þann hlut, sem öðrum mönnum er ætlaður í kaupgreiðslum, eða tekjur, sem menn fá við önnur störf. Þetta hefur gengið svo langt undanfarið, þó að menn hafi ekki viljað sjá það, að fjölda útlendinga hefur orðið að fá á vélbátaflotann til þess að halda honum uppi. En það hefur ekki dugað til, þannig að útgerð hefur orðið að falla niður á bátum, sem hefðu ekki haft lakari skilyrði til að bjargast en ýmsir aðrir bátar, hefðu fengizt menn til þess að hægt hefði verið að gera þá út á veiðar. — Ef við jafnframt lítum á þá, sem nú eru að byrja útgerð, þá er ástandið þannig: Verðið á vélbátunum er 9–10 þús. kr. smálestin, ef þeir eru byggðir í landinu sjálfu, en líklega 5–6 þús. kr. frá Svíþjóð, og eitthvað talsvert ódýrari munu þeir vera frá Danmörku. Þeir, sem vilja leggja í útgerð, verða að borga allar lausar eignir sínar upp í bátana til þess að eignast þá, og skulda einnig, svo að ekki verður séð, hvernig menn fá undir risið, þó að allt leiki í lyndi, hvað þá ef eitthvað bæri út af. Afleiðingarnar yrðu þær fyrir þá, sem leggja út í að stunda þennan þýðingarmikla atvinnuveg, að ef eitthvað ber út af um afla eða verðlag, þá komast þeir í þrot. Það liggur nú fyrir, að síldveiði hefur brugðizt á síðasta sumri, sem ætti að geta orðið til þess að sýna mönnum, hver hætta yrði á ferðum, ef annar sjávarafli brygðist líka. Það hefur jafnvel komið til orða að setja upp kreppulánasjóð nú í góðærinu — fyrir síldarútveginn, eftir að síldarútgerðin hefur brugðizt í eitt skipti. Þannig er búið að tefla þessum málefnum á fremsta hlunn. Og þetta gefur sannarlega vísbendingu um, hvað framundan kann að verða, ef ekki verður gerbreytt um stefnu. Það hefur verið talsvert rætt um þetta á undanförnum árum. En ég hef haldið fram að umræður um það væri ekki nóg, heldur ætti að fara fram athugun á því, hvernig hag sjávarútvegsins væri ástatt og hver væri hlutur fiskimannanna í samanburði við hlut annarra. Því að ef fyrir hefðu legið tölulegar upplýsingar um það, þegar athugun sexmannan. fór fram á tekjum landbúnaðarmanna í samanburði við tekjur annarra manna, þá hefðu fengizt samtök um það nú fyrir nokkru síðan að nema staðar á þeirri óheillabraut, sem farin hefur verið. En menn hafa heldur viljað stinga höfðinu ofan í sandinn og koma í veg fyrir, að slík athugun færi fram, sem leitt hefði getað til þess, að það sæist svart á hvítu, hvernig ástandið í þessum efnum er.

Þegar ég flutti þáltill. í svipaða stefnu og þessa síðast, þá var henni vísað frá hér á hv. Alþ. með þeirri röksemd, að hún væri óþörf. Það var sagt, að það væri hægt að koma þessari athugun í framkvæmd með öðru móti. Menn vildu ekki beinlínis halda því fram, að það væri óþarft, að fyrir lægju upplýsingar í þessum efnum, sem sýndu, hvernig komið væri. En hitt sögðu menn, að það væri hægt að koma þessu í framkvæmd án þess að setja sérstaka nefnd og án þess að Alþ. skipti sér af því. Og það var á það bent, að Alþ. hefði sett l. um reikningaskrifstofu sjávarútvegsins og að sú stofnun gæti gert þessa athugun og mundi gera hana. Þáltill. var þá vísað frá, að því er kallað var í trausti þess, að sú stofnun ynni þetta verk og léti frá sér fara nægilega snemma upplýsingar um það. En hver hefur orðið niðurstaðan í þessu efni í framkvæmdinni í höndum þeirra manna, sem tóku á sig þá ábyrgð að vísa því máli frá með þeim rökum? Ég benti á það strax, að reikningaskrifstofa sjávarútvegsins gæti ekki leyst þetta hlutverk eins og þyrfti að vera, jafnvel þótt hún kæmist að fullu af stað með verkefni sín, auk þess sem ég áleit, að sú skrifstofa kæmi því ekki svo fljótt af, að að gagni væri. En reikningaskrifstofa sjávarútvegsins er hvergi til nema á pappírnum, og engin athugun hefur farið fram á þessu. Áhuginn hefur verið slíkur, að ekki einu sinni hefur verið hrint af stað þessari reikningaskrifstofu sjávarútvegsins, sem l. mæla þó fyrir, að skuli starfa. Ég hef spurzt nokkuð fyrir um þetta, og því hefur verið borið við, að svo lítið fjármagn hafi verið ætlað til þessarar skrifstofu, að þess vegna hafi hún ekki komizt í gang, því að aðeins 10 þús. kr. hafi verið veittar til hennar. Stórhugurinn er ekki meiri en það, að ekki var hægt að hugsa sér að veita meira fé til þeirrar stofnunar, til þess að hún gæti farið af stað, heldur en 10 þús. kr. Það virðist ekki hafa mátt sjá af neinu af þessum 160 millj. kr., sem ríkissjóður hefur tekið á þessu ári, til þess að koma þessari stofnun af stað. Þetta verkefni hefur ekki verið unnið, þótt gert væri ráð fyrir því. Það hefur aðeins verið byrjað á því í Fiskifélaginu, án þess að þessi reikningaskrifstofa væri sett á fót. Aðeins hefur verið óskað eftir, að menn sendu reikningsuppgerð.

Ég skal ekki fara lengra út í þetta og ekki orðlengja frekar um þetta málefni en ég hef gert. Ég hef fært fram ástæður fyrir því, að ég tel þessa athugun nauðsynlega. Og ég tel, að slík athugun megi alls ekki dragast, heldur þurfi að gera öflugar ráðstafanir til þess, að þessi athugun fari fram nú þegar, svo að niðurstöður. hennar geti legið fyrir nú á þessum vetri. Og ég vil biðja menn að athuga, í hverri hættu allur sjávarútvegurinn er, og líta í því sambandi til þess, sem gerðist í sambandi við síldveiðarnar í sumar. Það er of seint að gera öflugar tilraunir til þess að koma á jafnvægi eftir á, því að útgerðin þolir ekki aflaleysi eða verðfall, heldur þarf að gera ráðstafanir í þessu efni án tafar, svo fljótt, að þær geti komið að gagni, því að það er of seint að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið ofan í. Auk þess, sem vitað er, hvernig síldveiðin brást á síðasta sumri, þá er það vitanlegt þeim, sem kynnt hafa sér það sérstaklega, að það er stórkostleg hætta á því, að útgerðin dragist verulega saman, jafnvel þótt engin óhöpp komi fyrir, hvorki verðfall né aflaleysi. Hún hefur nú þegar dregizt saman víðs vegar um land af ástæðum, sem ég hef greint. Og það ætti þá líka að vera augljóst, þegar gerðar eru ráðstafanir til þess að afla til landsins nýrra báta og tækja til sjávarútvegsins, að þá verði um leið að gera ráðstafanir, sem geri það líklegt, að hægt sé að reka þau tæki með dágóðum árangri, ráðstafanir, sem geri það að verkum, að menn vilji gjarnan vinna á þessum nýja flota, og tryggi jafnvel og geri það að verkum, að menn komist úr því öngþveiti, sem orðið er í þessum málum.

Að svo mæltu óska ég, að þessari þáltill. verði vísað til hv. allshn. að þessari umr. lokinni.