30.10.1945
Sameinað þing: 4. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í D-deild Alþingistíðinda. (3675)

49. mál, afkoma sjávarútvegsins

Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti. Ég kvaddi mér ekki hljóðs til þess að tefja þetta mál á nokkurn hátt. En út af því, sem hv. flm. sagði viðvíkjandi reikningaskrifstofu sjávarútvegsins, get ég ekki látið hjá líða að taka það fram hér, af því að ég var við það mál riðinn, að koma þeirri skipun á, að ég tel með öllu óviðunandi, að stofnun, sem á að hafa ákveðin hlutverk með höndum og er til þess skyld að l. og á að fá til þess fé úr ríkissjóði, láti undir höfuð leggjast að rækja skyldur sínar. Og ég er þeirrar skoðunar, að þetta, sem farið er fram á í þáltill., að gert verði, sé hlutverk reikningaskrifstofu sjávarútvegsins og að hún geti vel framkvæmt þetta. Hv. flm. sagði, að því hefði verið borið við, er um það hefði verið að ræða, að reikningaskrifstofan innti þetta ekki af hendi, að ekki hefði verið veitt nóg fé til þess. Það var þegar borið undir stjórn Fiskifélagsins, og samkv. áliti þess var þessi greiðsla ákveðin í fjárl. En ég hef haldið fram, að þessi greiðsla hafi verið áætlun, en það hefði ekki verið látið standa í vegi fyrir starfrækslu skrifstofunnar, að fé hefði ekki verið veitt meira til hennar, og að ekki hefði verið látið á því standa. Ef hins vegar Fiskifélagið vill þrjózkast við að vinna þetta verk af einhverjum ástæðum, er auðvelt að knýja það til þess, því að það er hægt að svipta félagið ríkisstyrknum, ef það framkvæmir ekki það, sem Alþ. sanngjarnlega leggur fyrir það. Og ef eigendur skipa vilja ekki láta í té þær upplýsingar, sem á þarf að halda, þá er hægt að finna ráð við því, því að þeir, sem hafa fengið ívilnanir, lán eða styrki, hafa verið skyldaðir til að gefa reikningaskrifstofu sjávarútvegsins þær skýrslur, sem hún telur nauðsynlegar. Það er því hægt að neyða þessa menn til að gera skyldu sína og engin ástæða til annars.

Ég skal annars ekkert segja um þessa nefndarskipun, hvort ég verð með henni eða móti. (EystJ: Það er ekki gert ráð fyrir neinni n.). Einhverjir menn yrðu þó að gera þetta. Ég vil taka fram í sambandi við það, sem ég sagði áðan, að hér starfaði fyrir nokkru 6 manna n., sem átti að rannsaka afkomu og tekjur manna, sem fást við landbúnað, og gaf hún út álit um það. Og um þetta álit vil ég taka fram, að ég hef fengið óyggjandi sannanir fyrir því, hef fengið um það upplýsingar í fjölda mörgum kaupstöðum og kauptúnum, að n. hefur lagt til grundvallar rangar tölur. Ég veit ekki, hvort það var vísvitandi, en hún hefur fengið grundvöll, sem var rangur, með því að byggja á röngum tölum. Nú á kannske að koma önnur 6 manna n., sem sýni, að fiskimenn séu langt fyrir neðan aðra og nú þurfi að ausa þangað fé til að jafna metin. Þessi svikamylna getur gengið lengi. Ég mun, ef tilefni gefst, skýra nánar frá því, hvaða upplýsingar ég hef fengið frá merkum mönnum, sem eru í sveitarstjórn í sjávarþorpum hér á landi, um tekjur verkamanna og sjómanna á mótorbátum yfir það tímabil, sem sex manna n. miðaði við. Ég hef ekki vaðið reyk í því, heldur farið til þeirra, sem bezt vita um þetta, en það er fullkomlega alvarlegt mál, ef tekjur manna á skipum og hinum smærri fleytum eru ekki í samræmi við þá dýrtíð, sem er í landinu.

Hv. flm. þessarar till. á þskj. 55 talaði um dýrtíðina eins og einhvern pinkil, sem væri hægt að varpa frá sér, ef þ. vildi ganga inn á það, en þetta hefur orðið erfiður hnútur að leysa. Ég veit ekki betur en að þessi hv. þm. sé í hópi þeirra, sem hæstar kröfur gera um verðlag á þeim vörum, sem að langmestu leyti skapa dýrtíðina. Hitt er annað mál, að vísitalan og dýrtíðin sjálf er, af mörgum talið vera ekki eitt og hið sama. En ég býst við, að í sambandi við sjávarútveginn, afkomu hans og framtíð, verði að athuga, hvort nokkur hluti eða verulegur hluti bátanna sé ekki orðinn það úreltur, að hann geti ekki skaffað sæmilega lífsafkomu. Það er vitað mál, að smáskip eru ekki fær til annarra veiða en þeirra, sem stundaðar eru svo að segja eingöngu frá heimahöfn, nema geta kannske yfir blásumarið gutlað eitthvað til útróðra frá öðrum stöðum, en aðallega verða þessir bátar að hlíta þeim aflabrögðum, sem fást frá heimahöfnum. Þetta getur aldrei orðið fullnægjandi framfæri fyrir fjölskyldumenn. Til þess að þessi atvinnuvegur geti gefið sæmilegan arð, verða menn að hafa góða báta, sem hægt er að halda út til veiða árið um kring. Það er enginn markaður til, sem gæti borið það verð, sem þyrfti til góðrar afkomu, ef ekki er hægt að stunda atvinnuna nema 1/3 úr árinu. Það er ekki heldur leið til, að ríkisvaldið gæti greitt það, sem á vantaði; það yrði því gersamlega ofvaxið. Það, sem byggja verður á, eru fullkomnari tæki. Það er einasta leiðin til að gefa þeim, sem við þau vinna, ríkulegri laun sinnar vinnu en þessi gömlu og smátæku framleiðslutæki gera. Í því sambandi vil ég í allri vinsemd minna hv. flm. á, að hann er einn í þeim leiða hópi manna, sem berst mjög á móti því, sem kallað hefur verið nýsköpun atvinnuveganna, en ég held, að það sé eina leiðin til þess að menn geti fengið þær tekjur, sem þarf til að draga fram lífið, að stórfelld breyt. verði til fullkomnunar á atvinnutækjunum.

Hvað síldveiðarnar í sumar snertir, þá er öllum kunnugt, að þeir erfiðleikar urðu ekki fyrir verðfall, heldur aflabrest, og það er nokkuð, sem við ráðum ekki við, það er ekki hægt fyrir þingið að koma í veg fyrir slíkt, en það er hægt fyrirfram að búa sig undir að standast slíkt áfall. Ég vil minna hv. flm. á, að ég hef síðan fyrir stríð verið að berjast við að fá Alþ. til að setja löggjöf um aflatryggingar, og það mun óhætt að segja, að ef þær hefðu komizt á, sem voru ekki heimtufrekari við atvinnuveginn en svo, að sjávarútvegurinn hefði sennilega ekki vitað af því yfir styrjöldina, þá mundi samt fyrir þessar ráðstafanir hafa safnazt það mikill sjóður, að hann hefði jafnað vel þennan halla á síldveiðunum, og vel það. En þetta mál mætti alltaf þrjózku mikils hluta þingsins, og var það ýmist drepið eða vísað frá. Svo er mér sagt, að eftir allar þær aftökur, sem farið hafa fram á Alþ. á þessu tryggingamáli, sitji nú einhverjir með sveittan skallann við að finna upp tryggingar, alveg sams konar náttúrlega, þó að vera kunni þar einhverjar formsbreyt.

Ég tel víst, að þetta mál fari til n., en ég vil, að n. leggi sig mjög eftir því að athuga, þegar hún hefur komizt að niðurstöðu um, hvort rannsókn er nauðsynleg eða ekki, hvort slík rannsókn er ekki einmitt hlutverk reikningaskrifstofu sjávarútvegsins og hvort ekki er hægt fyrir þ. að veita stuðning til þess, að skrifstofan geti innt þetta starf af hendi.