21.03.1946
Efri deild: 89. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í C-deild Alþingistíðinda. (3715)

87. mál, vinnuskóli á Reykhólum

Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson) :

Eins og sjá má hér á nál. meiri hl. n. á þskj. 529, þá er lagt til, að málið verði afgr. með rökst. dagskrá. Ég skal ekki tefja hv. d. með miklum umr., en það eru einkum þrjár ástæður, sem koma til greina. Í fyrsta lagi, að þing, sem hefur með höndum frv. eins og það, sem hér var áðan til umræðu, og fleira, getur ekki haft þau vinnubrögð að afgr. l. um skóla, sem standa eiga utan við skólakerfið. Það er því ótímabært að vera með þetta nú. Annað atriðið er, að seinasta þing samþ. l. um að setja upp tilraunastöð á Reykhólum. Þessi tilraunastöð er ekki komin upp, vegna þess að fé hefur ekki fengizt nægilegt. Mér sýnist það því vera að bera í bakkafullan lækinn að samþ. nýjar byggingarframkvæmdir, meðan ekki er hægt að framkvæma lögskipaðar byggingar. Og ég gæti vel hugsað mér, ef þessi vinnuskóli eða tilraunastofnun yrði sett þarna á stofn, að hún yrði sá búnaðarskóli, sem vakir fyrir þeim mikla áhugamanni, hv. þm. Barð., Gísla Jónssyni, að koma upp á Reykhólum, fyrir utan það, hvað það mundi hressa upp á staðinn, ef slíkur húsakostur kæmi þar. En ég sé ekki nokkra ástæðu til þess að lögbinda neitt frekar um þetta en þegar er búið, með því að ekkert er komið í framkvæmd af því, sem áður er búið að samþ. um þennan stað. Hins vegar var n. sammála um það að mæla eindregið með því, að hert yrði á þessum framkvæmdum, og vildi, að það kæmi sem viðurkenning frá hennar hálfu til hv. flm. frv. (GJ: Eins og sárabætur). Ég vil ekki segja sárabætur, en það sýndi a. m. k. hug n. til þeirrar viðleitni, sem hér kemur fram um það að skapa á Reykhólum menntastað fyrir Austur-Barðstrendinga. Og ég held, að það væri miklu þarfara, ef hægt væri að herða á þeim framkvæmdum, sem búið er að lögbjóða nú, heldur en fara að samþ. ný pappírsl., sem staðurinn er engu nær fyrir.

Loks er þriðja ástæðan, að ég fyrir mitt leyti er ekki tilbúinn í það að vera með í því að setja á stofn enn einn nýjan búnaðarskóla. Og búnaðarskólarnir, sem fyrir eru, eftir því sem mér er sagt, skera sig úr öðrum skólum í því að vera heldur lítið sóttir, og ein búnaðarskólasamþykkt er nýlega komin á pappírinn, en ekki enn byrjað á þeim framkvæmdum. Það er skólinn í Skálholti. Og ég veit satt að segja ekki, hvað er unnið með því að fara að bæta við nýjum skólum; þegar þeir skólar, sem fyrir eru nú, eru ekki eftirsóttir mjög mikið. En það hefur komið fram í nál. minni hl., að þeir skólar, sem fyrir, eru, séu ekki með réttu sniði og þess vegna ófullnægjandi, en að hér ætti að setja upp nýjan skóla með réttu sniði. Ég fyrir mitt leyti get alls ekki fallizt á þessa hugmynd. Mér dettur ekki í hug að ætla að segja neitt til um það, hvað sé rétt snið á búnaðarskóla, til þess brestur mig algerlega þá þekkingu, sem þarf til þess. En hitt virðist mér ekki þurfa neina sérþekkingu til að sjá, að ef á að setja upp búnaðarskóla til viðbótar þeim, sem fyrir eru, vegna þess, að þeir séu svo ófullkomnir, þá sé nær að breyta þeim gömlu skólum. Og ef það er ekki aðeins álit minni hl. n., heldur þeirra, sem búnaðarmálum stjórna og fara með þau mál, að búnaðarskólarnir séu óheppilegir og þurfi þess vegna að byggja nýja skóla, þá er alveg sjálfsagt að breyta skólunum, sem fyrir eru, nota það mikla húsnæði og þá kosti, sem þeir staðir hafa til að bera.

Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa um þetta fleiri orð. Það má vel vera, að hv. þm. Barð. sé ekki ánægður með þessa afstöðu meiri hl. n., því að það er jafnan vilji þm., að þeirra mál gangi fram. En ég fyrir mitt leyti lét ekki stjórnast af öðru en því, sem ég taldi réttast og málinu fyrir beztu, og ég vonast til, að hv. þm. geti verið eftir atvikum ekki óánægður með þessa afgreiðslu, sérstaklega ef hert yrði á því, sem búið er þegar að samþ. sem lög.