21.03.1946
Efri deild: 89. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í C-deild Alþingistíðinda. (3717)

87. mál, vinnuskóli á Reykhólum

Gísli Jónsson:

Ég vil í fyrsta lagi þakka hv. menntmn. fyrir að hafa tekið þetta mál til rækilegrar athugunar, því að þótt n. yrði ekki sammála um afgreiðslu þess, hefur hún athugað þetta mál og lagt í það vinnu, til þess að fá upplýst ýmislegt í sambandi við það. En þrátt fyrir það, þó að ekki sé alveg stefnt að því marki, sem ætlazt var til með frv., þá miðar því þó áfram. Og í því sambandi vil ég leyfa mér að benda hv. menntmn. á, hvernig saga þessa máls er.

Það byrjaði með því, að árið 1938 er samþ. á Alþ. að heimila ríkisstj. að kaupa höfuðbólið Reykhóla, til þess, eins og ákveðið er í l., að koma þar upp samvinnubúi eða til annarra almenningsnota. Þetta er fyrsta stig málsins, og er þetta gert vegna þess, að það eru þá fjórir vel efnaðir menn, áhugasamir, sem óska eftir að kaupa jörðina, til þess að koma þar upp mjög myndarlegum atvinnurekstri til atvinnubóta fyrir héraðið. Það er keypt undan þessum mönnum jörðin, og það er fyrirbyggt alveg með framkvæmdum Alþ. og jafnvel ríkisstj., að héraðið geti notið þeirra gæða, sem af því hefði hlotizt, að þessir menn hefðu fengið að sinna hlutverki sínu óáreittir af ríkisvaldinu, sem var meira unnið sem hugsjónastarf annars vegar og sem óeigingjarnt starf hins vegar. Ég veit ekki, hvort hv. menntmn. hefur verið þetta kunnugt, en ef henni hefur ekki verið það kunnugt, þá getur hún leitað sér upplýsinga um það í þskj. Síðan eru liðin 8 ár, og hvað hefur skeð í málinu? Það, að fyrir mín tilmæli var skipuð mþn. til þess að gera till. um það, hvernig með höfuðbólið Reykhóla skyldi farið. Þessi n. var skipuð 2 mönnum úr Barðastrandarsýslu, Aðalsteini Eiríkssyni skólastjóra, Pálma Einarssyni og mér. N. skilaði áliti, og hún var algerlega sammála um það, hvernig ráðstafa skyldi Reykhólum í framtíðinni. Það var lagt fyrir landbrh. og landbn., til þess að bera fram frv. um málið, sem hafði verið samið af mþn. Það var sent báðum landbn. þingsins, og þær óskuðu ekki eftir að bera frv. fram.

En síðan er það borið fram af mér 1942, en þá er málinu vísað frá með rökst. dagskrá, þar sem hd. Alþ. skorar á ríkisstj. að hlutast til um það, að þegar verði hafinn undirbúningur undir það að reisa og reka á Reykhólum tilraunastöð samkv. l. frá 1940. Og enn fremur var það frv., sem ég þá flutti um skólastarfsemi á Reykhólum, nákvæmlega sams konar frv. og nú hefur verið flutt og samið var af mþn. og hefur nú verið sent mþn. í skólamálum, sem nú starfar. Og það er ekki meiri áhugi fyrir þessu máli en það, að mþn. hefur nú haft það í ár og ekki skilað áliti. Mér er ókunnugt um, að n. hafi gert annað í þessu máli en að vísa því frá með rökst. dagskrá, þess efnis, að þetta mál yrði að bíða, þar til búið væri að ákveða skólakerfi í landinu í heild. Og ég hygg, að það sé ætlun mþn., ef hún starfar enn þá, sem ég er ekki viss um, að láta allt bíða með Reykhóla, þar til settur sé þar gagnfræðaskóli, og er þar að vísu góður staður fyrir slíkan skóla. En ég vil í því sambandi segja það, að ef allt stendur fast á Reykhólum með framkvæmdir þær, sem fyrirhugaðar hafa verið, og meiningin er, að ekkert verði gert þar fyrr en settur sé þar gagnfræðaskóli, þá er það augljóst mál, að það er alveg nauðsynlegt að gera nú þegar eða sem allra fyrst alveg ákveðnar aðgerðir um það, hvað eigi að gera við jörðina sjálfa, þegar búið er að halda henni í niðurníðslu í 6 ár, svo mikilli, að það er orðið til smánar fyrir ríkið að eiga slíka eign, sem er hið mesta höfuðból landsins. Bærinn er orðinn 100 ára og er svo illa farinn, lekur svo, að það er klínt í hann hér og þar kúamykju til þess að fylla í holur. Það er svo tekið, þegar batnar í veðri, en byrjað svo aftur á sama starfinu á haustin. Þannig er ástandið á höfuðbólinu Reykhólum. Þar að auki hefur annar maðurinn, sem þar býr nú, byggt hús, og það ekki sérlega fallegt, sem mun e. t. v. stafa af því, að þessi maður veit ekki, hvort hann fær að vera áfram á Reykhólum. Þá er búið að byggja manninum þar út í vor, og er það gert í trausti þess, að eitthvað verði gert á Reykhólum. Þessi jörð hefur verið leigð frá ári til árs, og þeir, sem hafa verið þarna, hafa ekki vitað, hvað þeir mættu gera eða hvað þeir ættu að vera þarna lengi. Þetta ástand er ekki lengur þolandi, en þessu hefur verið hagað svona vegna þess, að vonazt var eftir, að þingið tæki rögg á sig, — sem ég held, að allir séu sammála um, að eigi að gera, — og reisi við höfuðbólið Reykhóla, eins og því ber skylda til, af því að Alþ. 1938 heimilaði ríkisstj. að gera þar verulegar umbætur, eins og hv. þm. mun vera kunnugt.

Stuttu eftir að nál. meiri hl. var gefið út, sem form. n. og frsm. meiri hl. sýndi mér af mjög miklum velvilja, sem ég er honum þakklátur fyrir, hef ég rætt við Pálma Einarsson, sem er í tilraunaráði, og spurt hann um, hvort hugsanlegt væri að samrýma það, sem n. fer inn á, þ. e., að tilraunastöð gæti tekið að nokkru leyti upp á sína arma það, sem skólanum er ætlað að gera, og taldi hann það útilokað.

Það á að láta annan bóndann fara, og Pálmi lýsir því yfir að tilraunastöðin sjálf hafi ekkert með stærra land að gera. Hún geti ekki notað Reykhóla og þau hlunnindi, sem þar, eru, og þurfi ekki á því að halda. Þetta breytir því alveg eða kippir fótunum undan þeim grundvelli, sem er bundinn við þessa rökst. dagskrá. Mér þykir þetta leitt, en svona horfir málið við. Ég hef spurt Pálma að því, hvað hann hafi hugsað sér að leggja til um sjálfa jörðina. Sagðist hann ekkert geta lagt til annað en að helmingurinn sé tekinn og byggður með lífstíðarábúð, til þess að viðkomandi aðilar geti farið að byggja þar upp sjálfir samkv. l., sem nýbúið er að samþ. á þinginu. En allt þetta verður að taka til athugunar í sambandi við afgreiðslu þessa máls. Ef þingið hugsar sér að uppfylla þær óskir, sem fram voru bornar frá Ed. 1943, að koma þarna upp tilraunastöð í jarðrækt, sem mætti starfrækja jörðina í sambandi við, þá verður að stíga sporið að fullu nú og slá því föstu, að þetta verði ekki gert, og ráðstafa svo jörðinni í samræmi við þær ákvarðanir. Nema menntmn. hafi hugsað sér, að það sé hægt að sameina þetta við 45. gr. frv. á þskj. 434, ef það verður að lögum. Ég veit ekki, hvort menntmn. hefur hugsað sér að fella þetta tvennt saman, en sé svo, vildi ég gjarnan vita um það, því að annars er nauðsynlegt fyrir mig, ef þetta nær ekki fram að ganga, að bera fram ákveðnar till. um það, hvað eigi að gera við jörðina, því að ekki er hægt að þola það lengur, að hún liggi í því ástandi, sem hún nú er í.

Ég vil einnig geta þess í þessu sambandi, að veturinn 1938–1939 var það ákveðið með l., að flytja mætti prestssetrið frá Stað að Reykhólum. Nú hefur þessi heimild ekki verið notuð, en prestsseturshúsið á Stað er í slíkri niðurníðslu, að það er útilokað að láta það vera svo, og verður þá að verja ákveðinni fjárhæð til þess að byggja þar prestsseturshús. Gæti þá mjög komið til álita, hvort ekki væri rétt að gera gangskör að því að nota þessa heimild og byggja prestsseturshús á Reykhólum og afhenda prestinum jörðina til þess að búa á. Þá væri þessu þó þokað í rétta átt, en ég álít það gersamlega óviðunandi, bæði fyrir mig sem þingmann kjördæmisins og svo alla aðila, að láta þessi mál liggja svona frá ári til árs. —

Ég hef fullan skilning á rökum hv. frsm. meiri hl. í málinu, sem hann færði fram um fjárhagshlið málsins. Og þó að ég hefði óskað eftir annarri afgreiðslu, þá get ég skilið hans afstöðu í málinu, og skal ekkert fara frekar inn á það, nema það, sem ég sagði í upphafi, að ég þakka meiri hl. fyrir að hafa unnið að þessu máli, en vænti þess jafnframt, að hann taki til athugunar þær skýringar, sem hann ekki kann að hafa vitað um, áður en ég gaf þær hér.

Um afstöðu minni hl. í nál. vil ég aðeins segja, að mér félli það bezt, ef mætti afgreiða málið þannig og samþ. frv. með þeim breyt., sem hann leggur til í nál. á þskj. 459, að gerðar verði. Það er raunverulega til þess að færa þetta enn nánar í sama horf og n. hugsaði sér á sínum tíma.

Ég vil svo endurtaka það að síðustu, að ef til þess skyldi koma, að rökst. dagskráin yrði samþ., er nauðsynlegt að snúa sér að því að gera eitthvað annað við þessa jörð en láta hana liggja svona, því að það er hvorki Alþ. né ríkisstj. til sæmdar.