07.02.1946
Sameinað þing: 25. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í D-deild Alþingistíðinda. (3725)
49. mál, afkoma sjávarútvegsins
Sigurður Kristjánsson:
Herra forseti. Það er orðið langt um liðið, síðan þetta mál var til fyrri umr. Ég leit svo á, að þessi athugun væri bezt komin í höndum reikningaskrifstofu sjávarútvegsins, og eftir till. allshn. er í rauninni sveigt inn á þá braut, af því að það er skammt milli reikningaskrifstofunnar og Fiskifélagsins, því að Fiskifélagið er skyldað til þess með l. að láta þessa skrifstofu starfa, en auðvitað er það ríkissjóður, sem hefur kostað skrifstofuna. En þessi skrifstofa hefur bezta aðstöðu til þess að geta látið þessa rannsókn fara fram. Annars er það svo, að till. bendir í þá átt, að meinsemd sjávarútvegsins eigi að lækna með breyt. á verðlagi. Ég geri ekki ráð fyrir, að þetta sé meiningin, en það stendur hér, að rannsókn skuli fara fram, en að þeirri rannsókn lokinni verði lagt fram rökstutt álit um, hvaða verð þurfi að vera á sjávarafurðum. Nú leiðir það náttúrlega af sjálfu sér, að þetta mun koma í ljós við rannsókn, en mér þykir ástæða til að leiða að því athygli, að það hefur verið of einhliða blínt á það, hvað afurðaverðið ætti að vera, rétt eins og það sé í hendi einhvers aðila, sem við ráðum yfir, að hafa það verð á sjávarafurðum, sem nauðsynlegt er, og Alþ. eða ríkisstj. geti bara látið það verð koma fyrir sjávarafurðir, sem framleiðendur þurfi að fá. Ég veiti því athygli, að þetta er orðið talsvert ríkjandi í huga fjölda framleiðenda bæði til lands og sjávar, rétt eins og það væri einhver stórlax hér á Alþ. eða í stjórnarsætunum, sem í rauninni sé sá þrjótur, sem alltaf sé að halda verðinu fyrir framleiðendum, hann vilji ekki borga það verð, sem þurfi að fást fyrir afurðirnar. Það er enginn maður, sem nokkur framleiðandi geti gengið að og sagt, að hann þurfi að fá þetta og þetta verð fyrir afurðirnar, sem geti uppfyllt þær óskir. Það er oft, að framleiðendur þurfa að fá meira fyrir vörur sínar en raun er á. En það er ekki á okkar valdi að skammta verðið. Það, sem Alþ. og ríkisstj. hafa margoft gert, er aðeins fyrirgreiðsla um að opna markaði, veita framleiðendum bætta aðstöðu til þess að ná í hagkvæma markaði og stundum beinlínis að bæta upp verðið af almannafé, þegar liggur við borð, að framleiðslan stöðvist, af því að hún beri sig ekki. En yfir verðlaginu er erfitt að ráða. En það getur rekið að því, að það verði að gera mjög róttækar ráðstafanir, ekki til þess að hækka verðlagið, því að það er sennilega ekki hægt, heldur til þess að draga úr framleiðslukostnaðinum. Og ég hygg, að árangurinn af svona rannsókn, rannsókn á kostnaði útgerðarinnar, muni glögglega benda á það, hvar tilkostnaðarmeinsemdin liggur. Mér er kunnugt um kostnaðarliði útgerðarinnar, og það er ekki vafi á því, að ef þessir reikningar eru lagðir fyrir hæstv. Alþ., þá mun það sýna sig, að alvarlegar meinsemdir eiga sér stað í sambandi við kostnaðarliði útgerðarinnar. Það er kannske ekki auðvelt að lækka kostnaðinn í öllum liðum, en það er hluti hans, sem verður að lækka. Því að það er ekki hægt að loka augunum fyrir því, að bátaútvegurinn, þar sem fólkið er ráðið upp á hlut, en ekki kaup, kemur þannig út 6 undanfarin góðæri, að hagnaðurinn er sáralítill og sá útvegur þolir ekki aflatregðu á einni vertíð. Það er líka staðreynd, að hér á landi hefur orðið geysimikil efnaaukning. Og í þriðja lagi er það staðreynd, að þessi efnaaukning er til orðin að langmestu leyti fyrir framleiðslu sjávarafurða. — Nú hlýtur hver maður að sjá, að eitthvað er bogið við það, að framleiðendur skuli standa uppi með tvær hendur tómar, en þó hefur orðið geysimikil efnaaukning. Hagnaðurinn hefur m. ö. o. lent í höndum allt annarra manna en þeirra, sem staðið hafa fyrir þessari framleiðslu og barizt fyrir henni.
Þetta er verkefni, sem verður að leysa, og ég hygg, að einmitt svona rannsókn muni geta greitt götu að því. Og ég álít, að það verði langgleggst og að sjálfsögðu hlutdrægnislausast leyst af hendi einmitt af reikningaskrifstofu sjávarútvegsins.