02.04.1946
Neðri deild: 100. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í C-deild Alþingistíðinda. (3734)

63. mál, vegalagabreyting

Björn Kristjánsson:

Herra forseti. Af því að hv. frsm. samgmn. minntist í framsöguræðu sinni á litið frv., sem ég flutti á þessu þ. á þskj. 218, þá vildi ég aðeins minnast á það. Það kom fram í ræðu hans út af hreppavegagjaldinu, að nú sé það orðin svo úrelt aðferð, að það sé miklu réttara að afla tekna til vegagerða með því að jafna því með útsvörum. Um þetta mál mætti deila aftur og fram; en mér finnst þó ekki óeðlilegt, að hver sveit eða hreppur fái að ráða því sjálfur, hvor aðferðin er notuð. Og þar sem það er meirihlutavilji að halda þessu hreppavegagjaldi, sem má telja nefskatt á alla verkfæra menn, þá finnst mér ekki ástæða til þess að meina mönnum það, og þess vegna vil ég fyrir mitt leyti óska þess, að þetta fái að standa áfram. Hins vegar get ég verið hv. þm. sammála um það, að ef ekki verður leyft að hækka þessi gjöld fram yfir það, sem þau eru nú, þá sé réttara að afnema þau alveg, því að eins og allir sjá, er 2–5 kr. gjald á verkfæra karlmenn svo algerlega þýðingarlaust, að það borgar varla fyrirhöfnina að innheimta það.

Hv. samgmn. hefur ekki afgr. sérstaklega þetta litla frv., sem ég flutti, og ég get tekið undir það með hv. þm., sem talað hafa, að mér finnst það heldur óviðkunnanlegt að láta afgreiðslu þessa frv. og þess litla frv., sem kom hér, fram rétt á eftir, dragast svona lengi sem raun hefur á orðið, því að n. hefur að minnsta kosti ekki haft svo mikið að starfa, að hún hefði ekki getað afgr. frv. í svona marga mánuði, svo að unnizt hefði tími til þess að afgr. málið nú á þessu þingi. En mér skilst, að þótt b. kunni að dragast töluvert hér eftir, þá er þó alveg víst, að hv. þm. er það áhugamál, að störfum þess verði lokið áður en langt líður. Og með tilliti til þess gæti ég sætt mig við það, að dagskráin yrði samþ., með því móti þó, að einhver vissa verði fengin fyrir því, að eitthvað verulegt verði gert af hálfu ríkisstj. til þess að undirbúa breyt. á vegal. fyrir næsta Alþ.