21.02.1946
Sameinað þing: 28. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í D-deild Alþingistíðinda. (3749)

167. mál, rafveitulán fyrir Akureyrarkaupstap

Flm. (Sigurður E. Hlíðar) :

Herra forseti. Eins og sést á þskj. 409, er í þessari þáltill. farið fram á, að samþ. verði að heimila ríkisstj. að ábyrgjast rafveitulán fyrir Akureyrarkaupstað.

Þetta mál er hæstv. Alþ. kunnugt að því leyti til, að fyrir þessu rafveituláni er raunverulega veitt heimild til ríkisábyrgðar, með l. frá 31. des. 1937. En þá var fengið danskt lán hjá Köbenhavns Handelsbank í Kaupmannahöfn.

Nú hefur bæjarstjórn Akureyrar samþ. á fundi sínum að breyta þessu láni þannig, að þetta erlenda lán sé greitt upp, og hefur verið samið við Landsbanka Íslands að fá 2200000 kr. lán hjá bankanum til endurgreiðslu á þessu erlenda láni. Erlenda lánið var minna, og hér er um 200 þús. kr. hækkun að ræða, sem liggur í því, að þegar á að fara að borga þetta lán upp í topp, þá er danska gengið hærra en það íslenzka, og munurinn liggur í því.

Hér er í raun og veru ekki farið fram á annað en að breyta ríkisábyrgðinni, að undanskildum þessum 200 þús. kr. Það er því að mestu leyti formsatriði, sem hér er á ferð, að fá nýja ábyrgðarheimild fyrir þessu láni. En hæstv. fjmrh., sem með þessi mál fer, mun ekki hafa treyst sér til að gangast undir nýja ábyrgð fyrir ríkisins hönd í þessu efni, án sérstakrar heimildar, vegna þess að tölurnar eru ekki hinar sömu í upphæð lánsins, sem miðað er við í þeirri heimild, sem til er nú fyrir ríkisstjórnina til að ganga í ábyrgð fyrir ríkisins hönd fyrir láni til þessarar rafveitu. En hann mælir með þessari ábyrgð og segir, að samþ. hennar sé naumast nema formsatriði, svo litlu sem munar á þessum tveimur ábyrgðarheimildarupphæðum.

Með tilliti til þess, sem ég hef greint, vonast ég til þess, að hæstv. Alþ. sjái aumur á þessu máli og samþ. það af fúsum vilja. En ég vil láta þess getið, að það þarf að hraða þessu máli mjög, vegna þess að 1. marz n. k., eftir rúma viku, þarf að greiða þetta lán, sem gert er ráð fyrir að greiða upp. Málið þarf því að fá nokkurt hraðbyri. Það er búið að semja við Landsbankann um þetta lán, ef ríkisábyrgð fæst.

Ég vil mælast til þess, að þessu máli verði vísað til hv. fjvn. að þessari umr. lokinni, og vænti, að n. afgreiði málið eins fljótt og hún getur.