14.03.1946
Neðri deild: 87. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í C-deild Alþingistíðinda. (3763)

183. mál, lögreglustjórar í Fáskrúðsfirði og í Dalvík

Frsm. (Garðar Þorsteinsson):

Herra forseti. Þessu frv. var vísað til allshn. og á fundi í n. var samþ. að mæla með því, að frv. yrði samþ., en ég vil þó geta þess, að 2 þm., hv. 4. þm. Reykv. og hv. þm. Snæf., voru ekki á fundi, og veit ég því ekki um þeirra afstöðu. En þeir, sem viðstaddir voru, mæla með því, að frv. verði samþ. N. varð ásátt um að flytja á bskj. 526 brtt. um það, að einnig skyldi skipaður lögreglustjóri á Dalvík. Árið 1941 var flutt um það frv., en náði ekki fram að ganga. Frá næstu áramótum er ákveðið, að Dalvíkurhreppi verði skipt, og koma þá til með að verða í þeim hlutanum, sem þorpið tilheyrir, um 750 íbúar. Þorpið er nú í örum vexti, og þar er verið að reisa höfn og ráð er fyrir gert að leggja þangað rafmagnsleiðslu frá Akureyri, og má búast við, að þar rísi upp iðnaður. Einnig liggur straumur ferðamanna, sem fara frá Akureyri til Siglufjarðar, í gegnum Dalvík, því að þangað koma menn á bílum frá Akureyri og halda svo áfram á bát. Upp frá Dalvík liggur Svarfaðardalur, eins og menn vita, og verður það fjölmennur hreppur. Af því að fólksfjöldi er þarna svo mikill og íbúatala fer ört vaxandi, þá hefur það sýnt sig, að þeir, sem gegna opinberum störfum, hafa mjög mikið annríki, og hefur því reynzt erfitt að fá menn til slíkra starfa, og af þeim ástæðum og af því, að framkvæmdastarfið er yfirleitt fullkomið eins manns verk, hefur verið farið fram á það, að lögreglustjóri verði skipaður þar og taki hann við störfum oddvita, og er til þess ætlazt, að hann hafi fógetavald o. fl. Frv. var flutt um þetta í Ed., en þar kom fram rökst. dagskrá um, að nauðsyn væri á, að undirbúið yrði almennt frv. um þetta, og á þeim grundvelli skyldi þessu frv. vísað frá. Flm. þessa frv., er fluttu það skv. ósk hreppsnefndar Búðahrepps, féllust á, að þetta yrði líka á Dalvík. Ég tel, að lögreglustjóri á Dalvík ætti ekki að tefja framgang almenns frv. um þetta efni. Ég hygg, að ekki sé minni þörf á að hafa lögreglustjóra á Dalvík en t. d. í Keflavík, Akranesi og Ólafsfirði, en á þessum síðasttalda stað er kauptúnið sjálft fámennara en Dalvík. Ég tel mikla nauðsyn á almennu frv. um þetta mál, en þetta á ekkert að tefja framgang þess. Það er miklu betra, að einn maður hafi þetta sem aðalstarf en margir sem aukastörf, og það er hægt að gera meiri kröfur til slíks manns í embætti sínu.

Ég vænti þess, að hæstv. dómsmrh., sem ég sé, að beðið hefur um orðið, muni ekki leggja stein í götu þessa máls og hindri það ekki, að Dalvíkurhreppur hinn nýi fái lögreglustjóra.