20.03.1946
Efri deild: 88. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í C-deild Alþingistíðinda. (3776)
183. mál, lögreglustjórar í Fáskrúðsfirði og í Dalvík
Ingvar Pálmason:
Ég skil vel varfærni félmrh. að stofna til embætta, þar sem ekki er um fullkomin embætti að ræða, og ég hef ekki á móti því, að ekki sé stofnað til óþarfa embætta. Hins vegar saknaði ég þess í ræðu hæstv. ráðh., að hann kæmi með einhver ráð til að bæta úr þeim vandræðum, sem nú ríkja með stjórn umræddra kauptúna og annarra, sem svipaða aðstöðu hafa. Það er ekki hægt að þverskallast við kröfum héraðsbúa í þessu efni, og vænti ég, að allshn. taki það til íhugunar við meðferð þessa máls. Ég get sagt eins og hv. 1. þm. Eyf., að ég sæki þetta mál ekki með neinu ofurkappi, en ég tel ekki sæmandi að afgreiða það þannig að vísa því frá. Ef styðjast á við rökst. dagskrána, sem fram hefur komið, þá við ég fá ákveðin svör frá félmrh., hvers vænta má í þessu máli, en það gat ég ekki fengið út úr ræðu hans áðan. Ef félmrh. er að láta athuga þessi mál, horfir málið öðruvísi við, en ég vil ekki bíða lengur en eitt ár eftir viðunandi lausn.