20.03.1946
Efri deild: 88. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í C-deild Alþingistíðinda. (3777)
183. mál, lögreglustjórar í Fáskrúðsfirði og í Dalvík
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Ég get fallið frá orðinu, því að ég fellst á í einu og öllu það sem 1. þm. S.-M. sagði um málið. Ég tek undir það, að ég get vel fellt mig við að bíða eitt ár eða svo, ef fyrir lægi yfirlýsing frá ríkisstj., að hún undirbúi löggjöf um þetta mál og leggi það þá fyrir næsta þing.
Það er alveg rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að þegar svo stendur á, er það ekkert verk fyrir ungan mann að vera aðeins lögreglustjóri í kauptúni. En ráðh. er aldrei í d., svo að það er ómögulegt að spyrja neins. En ef hann hefði verið viðstaddur, þá hefði ég viljað spyrja hann nokkurs, t. d. hvort það kæmi í bága við embættiskerfið, að lögreglustjórarnir hefðu önnur opinber störf á hendi í viðkomandi héraði. En þetta mál fer nú til n., og það n., sem ég á sæti í, svo að ég ætla ekki að fjölyrða um það frekar. En ég verð að kvarta yfir því, að þegar mál sem þetta er til umræðu, þá er ómögulegt að hafa tal af viðkomandi ráðh. Hann fer bara, þegar hann hefur lokið máli sínu, og varðar ekkert um, hvað aðrir segja. En ég vil láta þá ósk í ljós, að áður en allshn. skilar áliti, þá eigi hún tal við þann ráðh., sem þetta heyrir undir, til þess að vita, hvort þess sé að vænta, að sú rökst. dagskrá verði samþ., sem allshn. lagði fram um lögreglustjóra á Dalvík, og ég lýsti yfir að ég gæti verið samþykkur, en er nú í vafa um, sökum breyttra aðstæðna, að ég geti sætt mig við.