03.04.1946
Efri deild: 98. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í C-deild Alþingistíðinda. (3787)

183. mál, lögreglustjórar í Fáskrúðsfirði og í Dalvík

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég var áður búinn að láta í ljós skoðun mína. Mér finnst rökin liggja svo mjög fyrir frá báðum hliðum, að ekki þurfi að lengja umr. öllu meir. Var orðið að samkomulagi í allshn., að skynsamlegra væri að fresta málinu og undirbúa betri heildarlöggjöf um þessi atriði. Ástæða er til að taka upp fyrri leiðina, þ. e. að því er Dalvík snertir.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, en leyfi mér að koma fram með dagskrártill. í málinu, svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Með því að engar upplýsingar liggja fyrir um það, hvort kauptúnum þeim, sem um ræðir í frv., er meiri þörf á að fá sérstakan lögreglustjóra en ýmsum öðrum, kauptúnum á landinu, og samþykkt frv. gæti því haft í för með sér algera stefnubreytingu í sveitarstjórnarmálum, þá telur deildin varhugavert að samþykkja frv. án rækilegri athugunar en gerð hefur verið og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.“

Ég tel réttara, að stj. athugi þetta mál betur milli þinga og taki þá nauðsynlega staði. Ræður hending ein, eins og nú hagar til, hver kauptún fái lögreglustjóra. En búast má við, ef einstök kauptún eiga að fá lögreglustjóra, að þá komi önnur á eftir.

Ég leyfi mér að afhenda hæstv. forseta þessa dagskrártill.