03.04.1946
Efri deild: 98. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í C-deild Alþingistíðinda. (3793)

183. mál, lögreglustjórar í Fáskrúðsfirði og í Dalvík

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Ég skal ekki deila við hv. 1. þm. Eyf. um það, hvort ástæða gæti verið til að taka sveitarstjórnarlögin í heild upp til athugunar og gera á þeim breyt. Hann talaði um það, að sérstaklega geti verið ástæða til þess að breyta sveitarstjórnarlögunum í það horf, að sveitarfélögin yrðu stærri en þau nú eru. Mér þykir sennilegt, að færa megi ýmis rök fyrir þessu, en hitt vil ég benda á, að þróunin hefur yfirleitt gengið í öfuga átt. Það hefur yfirleitt farið svo þar, sem hreppsfélög hafa orðið í stærra lagi, þar sem myndazt hafa kauptún, hvort heldur það er við sjó eða í sveit, að þar hafa kröfur komið fram um það að skipta sveitarfélögunum. Þetta er að vissu leyti eðlilegt, af því að þar koma venjulega að einhverju leyti nýir hagsmunir til greina þegar þéttbýli myndast innan sveitarfélaga eða dreifbýlis.

Hv. þm. var í rauninni ekki svo mjög harður á því, að ástæða geti verið til þess að umskapa alla sveitarlöggjöfina, heldur sagði hann, að þyrfti sérstaklega athugunar við, hvernig fara skyldi með stjórn kauptúna, þar sem þau hefðu myndazt. En ég verð að segja, að ég get ekki séð í raun og veru, hvaða rétt kauptún hafa til þess frekar en þá ýmis stærri sveitarfélög í landinu, að ríkissjóður beri kostnaðinn við stjórn þeirra. Hvernig er það t. d. með nágrannahrepp hv. 1. þm. Eyf., Glæsibæjarhrepp? Er hann ekki fjölmennari hreppur en Dalvík? Eða Glerárþorp? Ég hafði nú haldið, að ef Dalvík á rétt til þess að fá framkvæmdastjóra, launaðan af ríkissjóði, mundi Glæsibæjarhreppur og Glerárþorp kannske koma og segja: Við höfum ekki betri aðstöðu til að standa straum af kostnaði við sveitarstjórnina en Dalvík, og viljum hafa sama rétt. Og það mætti víst benda á ýmis fleiri sveitarfélög á landinu, jafnvel þar, sem engin kauptún eru, sem hafa sömu ástæður að gera þessar kröfur og það kauptún, sem um er að ræða. Mér er ljóst, að lögreglustjórar þeir, sem frv. gerir ráð fyrir, eiga að fá sérstaka bóknun, hafi þeir á hendi oddvitastörf samkv. 2. gr. frv. En þetta breytir engu í þessu sambandi. Tilgangurinn með stofnun þessa embættis er sá, að kauptúnin fái, ef svo mætti segja, sérstakan framkvæmdastjóra fyrir sig, launaðan af ríkissjóði, og þó að hann eigi að fá smáþóknun fyrir að gegna hinum eiginlegu oddvitastörfum skiptir það engu máli í þessu sambandi. Ég get ekki annað en haldið mig fast við það, sem ég lét í ljós í fyrsta skipti, sem ég talaði, að mér sýnist ekki orka tvímælis, ef þessi löggjöf nær fram að ganga, að þá muni koma kröfur frá ýmsum öðrum stöðum, sem erfitt verður að standa á móti, og ég hef ekki trú á, að Alþ. standi á móti þeim, ef þetta nær fram að ganga, og þess vegna álít ég ekki skynsamlegt að fara svo að segja af tilviljun inn á þá braut. Ef hv. 1. þm. Eyf. telur, að sveitarstjórnarlögin þurfi í raun og veru athugunar við, held ég, að væri skynsamlegra fyrir hann að bera fram hér á Alþ. till. um það, að skipuð verði nefnd, sem athugi það mál milli þinga. Ég hef sem sé enga trú á því, að í félmrn. verði samið til næsta þings frv. að nýjum sveitarstjórnarlögum, sem Alþ. mundi fallast á. Ég held, að það mál þyrfti betri undirbúning en svo, og auk þess held ég, að bezt sé, að sem flest sjónarmið komi til greina við setning slíkrar löggjafar, og að skipa yrði sérstaka n. þar til hæfra manna til þess að undirbúa löggjöfina, ef þetta er nauðsynlegt, sem ég dreg í efa, að sé.