11.02.1946
Sameinað þing: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í D-deild Alþingistíðinda. (3819)
110. mál, viðlega báta um vertíðir
Flm. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Það hefur nú borið nokkuð á því undanfarið, að útgerðarmenn vélbáta eða fyrirtæki, sem gera þá út, hafi átt erfitt með að fá viðunandi aðstöðu til viðlegu á vertíð fyrir bátana. Nú er fyrirhugað að stækka bátaflotann talsvert á næstu missirum, og það hlýtur því að verða að gera ráðstafanir til þess, að menn geti fengið viðunandi viðlegupláss fyrir vélbáta þessa á næstunni. Talsvert mikið af bátum þessum verður sennilega gert út til viðlegu, og jafnvel flestir þessir nýju bátar munu vera miðaðir við það. — Í þessu sambandi þarf að athuga fyrst og fremst hafnarskilyrði. Því er ekki að neita, að talsvert hefur verið gert undanfarin missiri til þess að gera sér grein fyrir, hvaða hafnarbátur eru nauðsynlegastar. Og það eru mál á leiðinni gegnum þingið, sem fjalla um að bæta hafnarskilyrði. Þó sýnist mér nokkuð skorta á, að heildaryfirlit hafi náðst um þessa hlið málsins, og væri þörf á því, að þeir aðilar, sem hér eru nefndir í þáltill., ríkisstj. og Fiskifélag Íslands, bæru betur saman ráð sín en enn hefur orðið um heildarskipun í þessum efnum og gerðu till. um niðurröðun á því, hvernig vinna skuli að hafnarframkvæmdum, til þess að tryggja þetta, sem þáltill. fer fram á. Þess vegna hef ég nú flutt þessa þáltill., að mér virðist, að það hafi ekki enn þá verið gerðar skipulegar heildaráætlanir um þessi efni. Mþn. í sjávarútvegsmálum hafði þessi mál nokkuð með höndum með fyrrv. vitamálastjóra, núv. hæstv. samgmrh. (EmJ), en hafði engan veginn lokið þeim athugunum, sem hún vildi gera, þegar hún var látin hætta störfum. En mér sýnist fara vel á því, að Fiskifélagið í samvinnu við ráðuneytið taki upp starf við rannsókn á þessari hlið málsins.
En nú er hitt kunnara en svo, að hafa þurfi um það langt mál, að það er ekki aðeins aðstaðan til þess að komast að bryggju við sæmileg skilyrði og losa afla upp á bryggju, sem þarf, til þess að útgerð báta geti farið sæmilega úr hendi. Til þess þarf enn fremur sem allra bezta aðstöðu í landi, sem bezt sjóhús og aðstöðu við þau og enn fremur hæfilegar íbúðir fyrir þá, sem að þessum málum eiga að starfa. Nú er almannarómurinn sá, að þessu sé ákaflega áfátt í okkar landi, svo áfátt, að það sé okkur minnkun, að það skuli hafa viðgengizt fram á þennan dag eins og það er. Þá, sem koma í verstöðvarnar, a. m. k. sumar hverjar, hlýtur að reka í rogastanz, þegar þeir athuga þau skilyrði, sem sjómenn á vélbátaflotanum eiga við að búa. Það er ekki hægt að segja, að það séu á nokkurn hátt mannabústaðir, sem þeim er ætlað að vera í um vertíðina, samanborið við þær kröfur, sem nú eru gerðar um íbúðir. Og þau hús, sem vinna á að fara fram í í verstöðvum, eru líka ákaflega ófullkomin. Um þetta hefur mikið verið talað á undanförnum missirum og mánuðum, en litlar framkvæmdir verið gerðar til þess að kippa þessu í lag. Og mér virðist nauðsyn bera til þess að athuga, á hverju stendur í þessu efni, því að svona getur þetta ekki gengið til lengdar. Það er ekki vansalaust fyrir þjóðina í heild, hvernig ástandið er í þessum efnum, að sjómenn skuli búa við slík skilyrði, jafnmikið og þjóðin á undir þeirra starfi. Nú þarf að fá úr því skorið, á hverju stendur um umbætur í þessum efnum, og kynna sér, hverjar eru endurbótafyrirætlanir þeirra fyrirtækja í þessum efnum, sem nú eiga það húsnæði, sem þannig er ófullkomið og sjómenn verða að búa við í viðlegum. Ef þeir aðilar, sem þetta húsnæði eiga, eru á leið með að bæta úr þeim ágöllum, sem á því hafa verið, má kannske segja, að sá þáttur þessara mála sé leystur.
En ef svo væri nú ekki, sem mér finnst, að gera mætti ráð fyrir, nefnilega, að þeir einstaklingar og aðrir, sem hér eiga hlut að máli, reyndust ekki hafa í hyggju að gera þær breyt. á þessum verbúðum, sem nauðsynlegar verða að teljast, þá þarf að gera ráðstafanir af hálfu hins opinbera til þess að breyta um til bóta í þessu efni, og eru þá ýmsar leiðir til, sem ég vildi fá ræddar og athugaðar, og þess vegna hef ég flutt þessa þáltill. Það er til sú leið, sem kalla má neikvæða leið, að setja í lög almenn skilyrði, sem verbúðir þurfi að fullnægja, til þess að leyfilegt sé að nota þær, t. d. eins og um verksmiðjupláss og íbúðir verkafólks og aðrar hliðstæðar. En mér vitanlega eru ekki til neinar reglur um þetta varðandi sjóbúðir eða verbúðir, og er það einkennilegt, að slíkt skuli ekki vera, þegar á það er litið, að löggjöf hefur verið sett um þetta viðkomandi öðrum atvinnugreinum, sem ekki eru þýðingarmeiri fyrir þjóðina, nema síður sé, heldur en þessi atvinnugrein.
Er það þá þægilegt að setja upp svona skýli? Verða þá aðgerðir í þessu efni ekki bara til þess, að nýjar verbúðir verði ekki byggðar, ef setja á reglur um kröfur, sem til þeirra skuli gera, vegna þess að eigendum þeirra þyki ekki einu sinni svara kostnaði að dubba upp á þær, sem til eru, eins og vera þyrfti? Og þá komum við að þessu atriði: Verður það opinbera ekki að hafast eitthvað að beinlínis, til þess að framvegis verði komið á fót nægilega góðum sjóbúðum og verbúðum á þeim stöðum á landinu, þar sem mest er komið undir því, að þessar búðir séu í lagi? Og mér er næst að halda, að málið sé á því stigi, að það reynist nauðsynlegt, að það opinbera hafist eitthvað að í þessum efnum. Og þá koma til greina ýmsar leiðir, t. d. að ætla mönnum, sem ætla að koma upp þessum húsum, lánakjör hliðstæð þeim, sem útvegsmönnum eru ætluð til þess að koma sér upp skipum og annarri aðstöðu við sjávarútveginn. Önnur leið, sem gæti komið til athugunar, væri að líta á byggingar sjóhúsa og byggingar verbúða eins og þátt í hafnargerðum, a. m. k. þar, sem um viðleguhafnir er að ræða, þannig að þær hafnarstjórnir, sem vildu taka rögg á sig og koma upp góðum sjóhúsum og góðum verbúðum og aðstöðu í landi, gætu fengið sams konar stuðning við þær framkvæmdir eins og við hafnargerðirnar sjálfar. Þetta finnst mér mjög til athugunar. En e. t. v. er erfitt að koma þessu fyrir, og það yrði kannske torvelt í framkvæmd, því að um þetta yrði að gera upp á milli viðleguhafna og hinna annarra hafna, þar sem stunduð er sjósókn einungis af bátum, sem eiga heima á staðnum.
Þetta mál hefur komið fram á Alþ. í sambandi við frv. um landshafnir. Þar hefur þessi till. komið fram, sem mér finnst mjög til athugunar.
Það eru auðvitað til fleiri leiðir til úrbóta í þessu efni en ég hef minnzt á og væntanlega mundu þá koma fram við athugun, sem fram færi, ef þessi þáltill. verður samþ.
Það gat auðvitað komið til mála fyrir mig að gera till. um sérstaka tiltekna úrlausn í þessum málum. En mér fannst það ekki vera rétt, því að mér fannst málið vera það yfirgripsmikið og vandasamt, að mér fannst réttara að vekja athygli á því í þáltill. formi og fara fram á það við þingið að fela ríkisstj. í samráði við Fiskifélag Íslands að rannsaka, hverra ráðstafana muni þörf til þess að tryggja bátaflota landsmanna viðunandi aðstöðu til viðlegu um vertíðir og vermönnum viðunandi aðbúnað. Ég geri mér vonir um, að Fiskifélagið gæti betur komið fram við ríkisstj. till. í þessu efni en að mínar till. hefðu getað orðið fullkomnar í þessu efni.
Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta. Ég geri ráð fyrir, að menn vilji heldur vísa þessari till. til n., og mætti þá fresta umr. og vísa þáltill. til allshn., ef mönnum sýndist svo.