18.12.1945
Sameinað þing: 19. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 428 í B-deild Alþingistíðinda. (383)

16. mál, fjárlög 1946

Jóhann Jósefsson:

Hæstv. fjmrh. gerði að umtalsefni till., sem ég ásamt öðrum hef flutt hér á þskj. 366, að heimila ríkisstj. að ábyrgjast fyrir hönd ríkissjóðs allt að 8 millj. kr. lán til sveitar- og bæjarfélaga vegna kaupa á atvinnutækjum, og mæltist til þess, að þessi till. yrði tekin aftur. Ég verð að segja, að það er fleiri en ein ástæða fyrir því; að ég sé mér ekki fært að verða við þessum tilmælum hæstv. ráðh. Ég viðurkenni að vísu röksemdirnar fyrir því, að þetta mál mætti taka upp aftur síðar á þ. í þessu formi, þó að þessi till. væri tekin aftur, en það eru aðrar till., eins og hæstv. ráðh. veit, sem fara í svipaða átt og jafnvel alveg í sömu átt og eru bundnar við vissa staði á landinu, sem ég veit ekki til að verði teknar aftur nú, og þá hefði það a. m. k. orðið að vera þannig, að allar þessar till. yrðu teknar aftur. Annars er hér ekki um annað en heimild að ræða, og ég þykist mega treysta svo réttdæmi hæstv. ráðh., að það verði að öllu leyti óhætt að leggja slíka heimild í hans hendur.

En ekki frá hálfu hæstv. ráðh., heldur af hálfu hv. frsm. n., hafa fallið nokkuð svæsin orð út af flutningi þessarar till. Ég hirði ekki um að svara þeim orði til orðs, en ég vil benda þingheimi á, að það er vissulega svo, að það mun sýna sig, að við verðum að ganga feti lengra en við höfum undir öðrum kringumstæðum viljað gera, ef á að verða í þessu efni við þeim óskum utan af landi frá ýmsum stöðum, sem fram hafa komið um það, að einhver af þessum stórvirku atvinnutækjum, t. d. togarar, yrðu staðsett þar, m. ö. o. ef ekki á að vinna að því beinlínis, að þessi togarafloti verði bundinn við Reykjavík og Hafnarfjörð. Ég held, að það sjónarmið að vinna á móti því, að skipin verði ekki öll hér, heldur einnig á góðum höfnum úti á landi, þar sem aðstaða er til að notfæra sér slík skip, verði útilokað sökum skorts á fjármagni til að eignast slík skip, en það sjónarmið hefur vissulega meira til síns máls en hv. frsm., vill vera láta, og get ég þess vegna látið mér hans umbrot í þessu máli í léttu rúmi liggja eins og sakir standa.

Ég vil svo að því er snertir þá till. hæstv. fjmrh., sem síðast kom fram um heimild fyrir ríkisstj. til að takmarka útgjöld, sem hér eru samþ., að vissum hundraðshluta, ef ástæður verða þannig, að það virðist óhjákvæmilegt o, s. frv., þá vil ég segja það, að ég tel þá till. vera réttmæta, enda ekki eins dæmi, að slík till. sé samþ. á Alþ., því að það hefur oft verið gert áður, og mun ég því fyrir mitt leyti fella mig við, að stj. fái slíka heimild og ekki síður fyrir það, að formáli fylgir þar eða eftirmáli reyndar, sem gæti orðið nokkuð til fyrirgreiðslu nauðsynlegum framkvæmdum. Þó að þessi heimild yrði notuð, þá er það talsvert á annan veg en áður hefur átt sér stað, því að vissulega hefur þessi heimild verið til fyrir ríkisstj., án þess að bent væri á leið til úrbóta á annan veg.

Hv. frsm. fór mjög geyst í svörum sínum, ekki einasta að mér, heldur mörgum öðrum. Hann er náttúrlega sjálfráður um sinn málflutning, og það er ekki fyrir mig að kenna slíkum manni, hvernig hann á að haga orðum sínum gagnvart þingheimi, en hitt vitum við báðir, að það er engin nýlunda hér á þingi, að þm. beri sig upp, skulum við segja, undan ýmsum hliðum, sem að þeim snúa frá fjvn. Við höfum hér hlýtt á framsögu fjvn. á ýmsum tímum, en ég veit varla dæmi til, að nokkur frsm. hafi brotizt svo hart um í sinni framsögu og, ég vil segja, ausið yfir menn ásökunum, eins og hér hefur átt sér stað. Það er yfir höfuð ákaflega leiðinlegt ástand, þegar það hendir okkur að ganga út frá því, að við einir vitum allt og hinir viti ekkert, en það er eins og eitthvað svipað hafi vakað og vaki fyrir þessum hv. þm., þegar hann er að tyfta þá þm., sem hafa leyft sér að fara fram á breyt. eða leiðréttingu á því, sem n. hefur gert undir hans stjórn. Hann segir í einu orðinu eitt og öðru orðinu annað, þegar ég ber mig upp undan því, að framlag til Vestmannaeyjahafnar hafi verið minnkað frá því, sem áður hefur verið. Hann segist ekki geta séð inn í mitt hugskot, af því að ég hafi ekki borið mig upp við n., og í hinu orðinu segir hann, að kvörtun mín byggist á öfund á öðrum, og síðan rekur á sviptibyl af fúkyrðum, sem hv. þm. skemmti sér við að slá um sig með, en engin rök.

Þá var það eitt bréf, sem hv. þm. hélt svo mjög á lofti hér, sem nýbyggingarráð forbraut sig á að skrifa hæstv. ráðh., sem síðan komst í hendur fjvn., það varð þessum hv. frsm. yrkisefni ekki alllítið, og eiginlega er þungamiðja málsins hjá hv. frsm. ein misritun í þessu bréfi. Hann lagði út af því og velti mjög vöngum yfir því, að í þessu bréfi er komizt þannig að orði, sem ég skal játa, að er misritun, sem oft getur komið fyrir, að þar er talað um eins árs rekstraráætlun á stofnkostnaði, en á vitaskuld að lesast og mundi hver fermingardrengur geta lesið í málið, ef hann vildi, að þetta á að vera eins árs rekstraráætlun ásamt stofnkostnaði. En hv., þm. hefur vitaskuld ekki viljað lesa það rétt, heldur nota tækifærið til að snúa út úr. Hans afsökun er engin í þessu máli, vegna þess að þessi áætlun fylgir bréfinu, og hún er ekki frá nýbyggingarráði, heldur frú Halldóru sjálfri, og er þetta stofnkostnaður og rekstraráætlun. Það liggur því augljóst fyrir, að hv. form. fjvn. er ber að því að reyna að nota misritun til þess að gera nýbyggingarráð hlægilegt í þessu máli, í augum hv. þm. Og til hvers? Hv. form., fjvn. sagði, að Halldóra Bjarnadóttir hefði verið svo óheppin að lenda með erindi sitt hjá nýbyggingarráði. Og það er hennar eina sekt. Nýbyggingarráð pantaði ekki þetta bréf frá frú Halldóru. En því þótti hlýða, þar sem um var að ræða kennslu í ekki ómerkari efnum en tóskap og þess háttar, að leggja þessu máli liðsyrði. En það lítur út fyrir, að af einhverri andúð á nýbyggingarráði hafi hv. form. fjvn., og kannske einhverjir aðrir hv. nm. með honum, snúizt öndverðir gegn þessari ágætu konu fyrir það, að hana henti þetta, að beina orðum sínum til nýbyggingarráðs. Og þó veit ég ekki, hvað hér er á ferð, því að í öðru orðinu hrósar hv. form. n. þessari konu, en í hinu orðinu vill hann gera nýbyggingarráð hlægilegt fyrir það að vilja leggja þessari konu, sem er rösklega sjötug, liðsinni. Ég held, að svona málfærsla sé langt fyrir neðan það, sem frambærilegt getur talizt, að jafnvel núverandi hv. form. fjvn. vaxi ekki af henni. Það er gersamlega óframbærileg málafærsla að nota misritun í bréfi til þess að gera veður út af og slá um sig með því.

Sama er að segja um þann mann, sem er á fertugs aldri — Guð minn góður! — og nýbyggingarráð lagði til, að væri styrktur til að læra teppagerð ( ! ) — maður, sem aldrei hefur stigið fæti á teppi, eftir því sem hv. form. fjvn. segir( ! ) Hvílík rök! Hvað lízt hv. þm. um þau? Því að þessi ummæli hv. form. áttu að miða að því, að eitthvert óráð væri að styrkja þennan mann. Þá var ekki minna veður í hv. form. fjvn., þegar hann fór að telja upp verkefni þessa fyrirhugaða skóla frú Halldóru Bjarnadóttur. Ég vil segja það hér, að form. nýbyggingarráðs hefur ekki samið þessa upptalningu. Hún er samin af Halldóru sjálfri. Og ég geri ráð fyrir því, eftir því sem þjóðin þekkir verk hennar, að það mundi engin löngun vera til þess að gera í fjármálaframsögu jafnmæta konu hlægilega fyrir að telja upp þessi verkefni, nema hjá sinnislagi eins og hv. þm. Barð., núverandi form, fjvn., hefur. Og að því er snertir það, að hún sé svo gömul þessi kona, að ekki megi líta við henni í þessum efnum, þá verð ég að halda því fram, að þegar maður lítur á þá löngu reynslu, sem hún hefur í sinni iðn, og hverju hún hefur afrekað á því sviði, þá sé miklu meira af henni að vænta en yngri konu, þó að hún væri kannske orðhvatari og pilsvargur, einhver Gíslína í þeim efnum, og þótt hún væri yngri að árum, ef hún væri af þessari tegundinni, að hún áliti sig vita allt, en aðra ekkert. — Sérstaklega fannst hv. form. fjvn., að það væri hlægilegt, að frú Halldóra talaði um kennslu í þvotti ullar, og hann gekk yfir sjálfan sig í kátínu og gleðskap yfir slíkri heimsku, að því er skilja mátti á honum. Það hafa einhvern veginn farið öfugt í höfuðið á hv. form. fjvn. þessi ummæli frá nýbyggingarráði. En við höfum ekki farið fram á annað en að þessu erindi frú Halldóru verði hæfilegur gaumar gefinn og hún verði styrkt hæfilega til þess að geta komið kennslustofnun sinni á fót. Við höfum ákveðið þannig að hjálpa henni um stofnkostnað til þess, en með því, að líka komi styrkur annars staðar frá. Það er svo mikill klaufabragur á hártogunum hv. form. fjvn. á erindi þessarar konu og skiptum nýbyggingarráðs af fyrirætlunum hennar, að í augum hv. þm. er sá klaufabragur svo mikill, að mér virðist, að jafnvel þótt það kynni að reynast svo, að enginn í þessu landi hefði þörf fyrir kennslu frú Halldóru í ullarþvotti, þá sé það þannig, úr því að hv. form. vill þvo hendur sínar af frú Halldóru í þessu efni, þá séu sumir, sem þurft gætu að fá einhverja undirvísun í kattarþvotti. Því að þessi kattarþvottur hjá hv. form. fjvn. í því skyni að hrinda þessu erindi af höndum sér byggist ekki á öðru en útúrsnúningum í sambandi við þá afstöðu hjá okkur í nýbyggingarráði, sem vorum að mæla með erindi frú Halldóru. Þessi framkoma í garð þessarar ágætu konu verður ekki til þess að hvetja hv. þm. til þess að vera á móti þessum styrk, sem við förum fram á, að þessum skóla verði veittur, heldur þvert á móti ætti hún að geta orðið til þess að hvetja hv. þm. til þess einmitt að styrkja þennan litla skóla þessarar ágætu konu.