18.12.1945
Sameinað þing: 19. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í B-deild Alþingistíðinda. (385)
16. mál, fjárlög 1946
Pétur Ottesen:
Herra forseti. Ég hef nú ekki lagt mikið til þessara umr. og skal heldur ekki gera það. Ég lét alveg niður falla við 2. umr. að gera grein fyrir þeim fyrirvara, sem ég hafði, þegar ég skrifaði undir nál. fjvn. Mér þykir rétt nú, áður en þessari 3. umr. fjárl. lýkur, að gera þetta aðeins með örfáum orðum. Fyrirvari minn var miðaður við það, að mér leizt svo sem sumar hækkunartill. n. á sumum tekjuliðum fjárl. væru ekki alls kostar gætilegar, þegar tekið er tillit til þess — eins og mér virðist vera —, að grundvöllur undir atvinnulífi þjóðarinnar virðist vera harla ótraustur sökum sívaxandi dýrtíðar og verðbólgu í landinu, samfara óvissu um verðlag á afurðum okkar á erlendum markaði. Þetta er þó alls ekki miðað við það nýja viðhorf, sem nú hefur skapazt í fisksölumálunum, enda var það ekki vitað, þegar ég skrifaði undir nál. með fyrirvara. Ég veit, að menn líta allmisjöfnum augum á það, hvernig atvinnulífi okkar er háttað nú. Sumir líta á það með mjög mikilli bjartsýni og hjá þeim ýmsum verður ekki vart við neinn ótta við, að þar verði breyting á, og kemur þetta oft og iðulega fram. En ég vildi sem sagt láta koma fram þessa afstöðu mína og þá þetta sem skýringu á mínum fyrirvara.
Það er aðeins eitt atriði hjá hv. frsm. fjvn., sem ég vildi gera dálitla aths. við. Það var það, þegar hann sagði, að samgmrh. væri alveg óbundinn um ráðstöfun á því fé, sem gert er ráð fyrir að taka að láni og verja til hafnargerða og lendingarbóta. Eins og hv. frsm. fjvn. hefur flutt hér af hálfu fjvn., þá hefur hún gert till. um skiptingu á þessu fé. Og sömuleiðis hefur hv. frsm. fjvn. borið hér fram fyrir hönd n. till. um skiptingu á fé, sem veitt er til byggingar gagnfræðaskóla, húsmæðraskóla o. s. frv. Ég vildi láta koma fram þá skoðun, sem ávallt hefur verið ríkjandi hér á hæstv. Alþ., að ríkisstj. eða sá ráðh., sem með slík mál fer, væri bundinn af þessum yfirlýsingum, sem gerðar eru á Alþ. í viðurvist hv. alþm. án þess að nokkrum mótmælum hafi verið hreyft. En ef sá skilningur væri í það lagður, sem hv. frsm. fjvn, hefur hreyft hér, þá er það alveg andstætt þeirri venju, sem ríkt hefur í þessum efnum hér á hæstv. Alþ. að undanförnu, og ég vil sem sagt ganga út frá því, að út af þeirri venju verði ekki brugðið, enda er þessi skipting, sem n. gerði till. um viðkomandi framlagi til hafnanna, gerð í samráði við þann ráðh., sem þessi mál heyra undir. Og það er vitanlega enn frekar til áherzlu á því, að fullkomið tillit verði tekið til þessarar skiptingar, þegar til framkvæmdanna kemur.
Það hefur mörgum hv. þm. orðið tilrætt um þá brtt., sem hæstv. fjmrh. hefur borið fram við fjárl. á þskj. 372, um að draga úr fjárframlögum til verklegra framkvæmda, ef fé er ekki fyrir hendi, eða, eins og það er orðað í till., að með þeim hætti að framkvæma verklegar framkvæmdir, sem um er að ræða, dragist um of vinnuafl frá framleiðslustörfum í landinu. Ég hef áður hér á hæstv. Alþ. staðið að flutningi sams konar eða mjög svipaðrar till. og þessarar. Ég ætla, að það hafi verið í a. m. k. tvö eða þrjú skipti, sem fjvn. hefur beitt sér fyrir, í samráði við þáverandi ríkisstj., að slík ákvæði væru tekin inn í heimildargr. fjárl., 22. gr. Og eins og nú horfir við um fjárlagaafgreiðsluna, þá virðist mér fullkomin ástæða vera til þess að slá slíkan varnagla. A. m. k. hygg ég, að í þau skipti, sem þetta hefur verið gert áður, hafi ekki verið nándar nærri eins brýn ástæða til að slá slíkan varnagla eins og nú er. En þetta kann að vera af því, að ég er ekki eins bjartsýnn í þessum efnum eins og aðrir hv. alþm, virðast vera. En hins vildi ég mega vænta, að hæstv. fjmrh. gæti framkvæmt þessa brtt. þannig, ef þörf gerðist að framkvæma hana, að í þessu efni yrði ekki í framkvæmd alveg fylgt því, sem hér segir, þannig, að niðurfærslan á útgjöldum ríkissjóðs til þessara verklegu framkvæmda, sem brtt. tekur til, verði hlutfallslega jöfn, hvaða verklegar framkvæmdir, sem um er að ræða innan þessa ramma. Því að, eins og hér hefur verið tekið fram, þá er náttúrlega mjög mikill munur á því, hvort um er að ræða framkvæmdir, sem eru beinn þáttur í framleiðslustarfsemi landsmanna, sem með þessari brtt. á að styðja og styrkja, þ. e. a. s. með þeim hætti að draga ekki allt of mikið vinnuafl frá þeim starfsgreinum, — það er ákaflega mikill munur á því, hvort um slíkar framkvæmdir er að ræða eða aðrar, sem standa þar utan við, til dæmis að taka þær starfstegundir, sem standa ekki í neinum beinum tengslum við framleiðslustarfsemi á þeim tíma, sem gert er ráð fyrir, að þær fari fram á. Ég vil t. d. í þessu sambandi benda á, að á 20. gr. fjárl. er gert ráð fyrir að verja 6½ millj. kr. til byggingar nokkurra stórbygginga, sem er þó ekki nema lítill hluti af því, sem þær byggingar endanlega kosta. En gera má ráð fyrir, og er sennilega út frá því gengið, þegar þessar upphæðir eru teknar inn í fjárl., að á grundvelli þessara fjárveitinga verði byrjað á þessum byggingum. Vil ég í þessu sambandi t. d. benda á, að í fjárlfrv. er gert ráð fyrir, að rúmlega ein millj. kr. verði veitt til þess að byggja fyrir útvarpshús í Reykjavík, en sú bygging á, samkv. þeim áætlunum, sem fyrir liggja, að kosta 9 millj. kr. Sömuleiðis er hér um að ræða byggingu yfir þjóðminjasafnið, sem veitt er til á fjárlfrv. 1 millj. kr., en sú bygging, sem þar liggur fyrir að reisa, á samkv. áætlun að kosta 3 millj. kr., en mun þó sennilega fara nokkuð mikið fram úr þeirri áætlun, miðað við þá teikningu, sem ráð er fyrir gert af því húsi. — Ég vildi aðeins benda á þetta, hvort hæstv. fjmrh. mundi ekki, þegar til þess kemur e. t. v. að framkvæma þessa brtt., telja sig hafa nægilegt svigrúm til þess að haga nú þessum niðurskurði nokkuð misjafnlega, en ekki hlutfallslega jafnt á öllum viðkomandi greiðsluliðum, heldur eftir því sem þessar greiðslur grípa inn í atvinnulíf í landinu og atvinnuástand landsmanna. Mér skilst t. d., að orðalagið „að því er við verður komið“ í brtt. ætti að geta veitt hæstv. fjmrh. nokkurt svigrúm í þessu efni.
Mér þykir svo ekki ástæða til að lengja þessar umr. frekar, en ég vildi aðeins, til viðbótar því, sem hv. 1. þm. Rang. (HelgJ) sagði hér að gefnu tilefni frá hv. 2. þm. Rang., því leiðinlega fleipri, sem fram kom hjá þeim hv. þm., er hann sagði, að við í fjvn. hefðum verið beittir ofríki þar af okkar form., þá vildi ég taka undir það, sem hv. 1. þm. Rang. sagði um það efni, að fyrir þessu er ekki hinn minnsti flugufótur. Í fjvn. hefur nú sem endranær — og kann ég þar vel um að dæma — verið gott samkomulag og hv. form. n. hefur ekki sýnt neina viðleitni í þá átt, sem hv. 2. þm. Rang. var hér að fleipra um í umr. í. kvöld.