08.03.1946
Sameinað þing: 31. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í D-deild Alþingistíðinda. (3865)
191. mál, slysavarnafélag Íslands
Frsm. (Guðmundur Í. Guðmundsson) :
Herra forseti. Fjvn. hefur borizt erindi frá hæstv. ríkisstjórn, þar sem farið er fram á, að n. beri fram till. til þál. um ábyrgð á láni fyrir Slysavarnafélag Íslands til að láta gera við mótorskipið Sæbjörgu. Óskar hæstv. ríkisstj. eftir því, að Alþ. gefi henni heimild til þess að ábyrgjast allt að 400 þús. kr. lán til endurbóta á þessu björgunarskipi, enda fái ríkisstj. frá eigendum skipsins, sem er Slysavarnafélag Íslands, þær tryggingar fyrir skilvísri greiðslu lánsins, sem ríkisstj. geti metið gildar.
Fjvn. hefur athugað þessa þáltill. ásamt grg., sem fylgdi með frá ríkisstj., og rætt við þann hæstv. ráðh., sem þetta mál heyrir undir, sem er félmrh. Og hefur fjvn., að þeirri athugun lokinni, fallizt á að bera þessa þáltill. fram og mæla með því, að hún verði samþ. En þegar till. var endanlega afgr. í n., var hv. 7. þm. Reykv. fjarverandi vegna veikinda og gat því ekki tekið þátt í endanlegri afgreiðslu n. á málinu.
Eins og mönnum er kunnugt, er björgunarskipið Sæbjörg eign Slysavarnafélags Íslands. Þetta skip hefur um átta ára skeið stundað björgunar- og gæzlustörf hér við land. Á hverri vertíð hefur skipið verið hér við Faxaflóa, en á öðrum tímum árs hefur það verið annars staðar við landið. Árangurinn af starfsemi þessari hefur verið slíkur, að skýrslur sýna, að skipið hefur á þessum átta árum liðsinnt samtals 224 skipum með samtals 1257 manna áhöfn. Það verður náttúrlega ekki fullyrt, að skipið hafi bjargað lífi allra þessara manna eða bjargað öllum þessum skipum, þó að það hafi liðsinnt þeim. En fullyrða má þó með vissu, að talsverður hluti af þessum skipum og mannslífum, sem þarna er um að ræða, mundi hafa farizt og verðmæti spillzt, ef ekki hefði notið við hjálpar skipsins. Það má því segja, að þarna hafi verið um svo þýðingarmikið starf að ræða, að ekki verði virt eða metið til fjár. Má því slá föstu, að íslenzka þjóðin, og ekki sízt sjómannastéttin, standi í mikilli þakkarskuld við þá menn, sem hafa haft forgöngu að kaupum þessa skips og úthaldi. — Hins vegar hefur komið í ljós, að þetta skip er að ýmsu leyti ekki svo hentugt sem skyldi til þeirrar starfsemi, sem það hefur verið notað til. Skipið er bæði of lítið og vél þess sérstaklega ekki eins kraftmikil og æskilegt væri og nauðsynlegt er til þess að aðstoða og draga til hafnar stór skip, og þá sérstaklega ekki í stormi og stórsjó. Og er talið víst, að þessir ágallar muni ekki hvað sízt koma í ljós nú, þegar verið er að ráðast í að byggja stærri skip til veiða, sérstaklega hér við Faxaflóa, heldur en áður. Það er því talin á því hin mesta nauðsyn að stækka Sæbjörgu sjálfa og vél hennar, til þess að skipið geti komið að tilætluðum notum, auk þess sem nauðsynlegt er, að fram fari á skipinu ýmsar aðrar endurbætur og viðgerðir. Slysavarnafélagið hefur látið gera um það allýtarlega áætlun, hvað þessar endurbætur skipsins mundu kosta, og er talið, að ef sett er ný 325 hestafla vél í skipið og það er lengt um 4½ metra, auk ýmissa annarra breytinga, mundu slíkar endurbætur og viðgerðir á skipinu kosta um 400 þús. kr. Fjárhagur Slysavarnafélags Íslands er hins vegar ekki þannig, að félagið geti ráðið við þetta hjálparlaust, og hefur félagið því leitað aðstoðar ríkisstj. til þess að koma þessu í framkvæmd. Hafa tekizt samningar á milli Slysavarnafélags Íslands og hæstv. ríkisstj. um það, að ríkisstj. taki að sér að ábyrgjast fyrir hönd félagsins allt að 400 þús. kr. kostnað við þessar endurbætur og viðbætur á Sæbjörgu, enda fái ríkisstj. þær tryggingar, sem hún telur gildar. Og hefur þegar verið samið um það, að þær tryggingar skuli vera fyrst og fremst veð í sjálfu skipinu, en auk þess fái ríkisstj. leigusamning við eigendur skipsins til 15 ára, og skulu afborganir og vextir af þessum 400 þús. kr. árlega ganga upp í viðgerðarkostnaðinn, 400 þús. kr., þar til það er að fullu greitt á 15 árum, þannig að leigan og þessi viðgerðarkostnaður eiga að mætast á þessum tíma. Má telja, að með þessum samningi sé vel fyrir því séð, að ríkið fái ekki neitt áfall af þessu og að leigunni sé þó fullkomlega í hóf stillt.
Á þessum samningi, sem þannig hefur verið gerður, er nú af hálfu ríkisstj., fyrir milligöngu fjvn., leitað staðfestingar. Og mælir fjvn. fyrir sitt leyti með því og hefur gengið inn á að flytja þessa þáltill. samkv. ósk hæstv. ríkisstjórnar. Fyrir hönd fjvn. legg ég því til, að þessi þáltill. verði samþ. og hún látin ganga leið sína til síðari umr.