15.03.1946
Sameinað þing: 33. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í D-deild Alþingistíðinda. (3890)
109. mál, vatnsveita Stykkishólms
Eysteinn Jónsson:
Ég vildi aðeins benda hv. þm. Snæf. á það, að mér fyndist, að það væri auðvelt af hans hendi að fallast á það, að málið verði afgr. eftir helgi, því að alþm. hafa ekki séð neitt nál. um þetta mál og hafa fyrst heyrt umr. um efni málsins í dag. Mér finnst því, að hann ætti ekki að taka það svo óstinnt upp, þó að málið yrði ekki afgr. fyrr en eftir helgi, og held ég, að það yrði málinu til góðs. Ég vil eindregið styðja að því, að málið verði afgr. í aðalatriðum eins og það liggur fyrir.