19.03.1946
Sameinað þing: 34. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í D-deild Alþingistíðinda. (3896)
109. mál, vatnsveita Stykkishólms
Gunnar Thoroddsen:
Í nál. um. fjvn. er minnzt á frv. um heildarlöggjöf um stuðning við vatnsveitur. Eins og tekið hefur verið fram, fluttum við hv. þm. Vestm. í fyrra till. um að fela stj. undirbúning þessa máls, og hefur vegamálastjóra verið falið að undirbúa frv. um þetta efni. Hv. þm. Barð. talaði nú um þetta mál eins og mér hefði verið falið að semja frv. um vatnsveitur, en mér hefur aldrei verið falið neitt slíkt. Ég vil mótmæla því atriði í nál. hv. fjvn., að það sé sýnt, að frv. um vatnsveitur muni ekki verða lagt fram á þessu þ., því að ég vil vona, að slíkt frv. komi fram á þessu þ., það er aðkallandi mál. Að því er snertir hækkun á vatnsskatti, þá er þar um að ræða breyt. á vatnal., sem vegamálastjóri hefur tilbúna, en það er nauðsynlegt, til þess að vatnsveitur geti staðið undir sér.
Það er svo ekki fleira, sem ég þarf um að ræða í þessu efni. Að því er snertir hækkunina úr 500 þús. í 600 þús. kr., þá sagði ég, að ég mundi greiða því atkv. Ég benti á, að með því að breyta þessu væru flokkarnir lausir frá sínum loforðum, en ég mundi greiða atkv. með till. í trausti þess, að flokkarnir mundu eftir sem áður standa við fyrirheit sín. Hvað það snertir, að málið hafi verið afgr. fyrir brennandi áhuga n., þá vil ég benda á, að það er 3½ mánuður síðan n. fékk málið til meðferðar og hún hafði ekki komizt að niðurstöðu þegar ég krafðist þess, að málið væri tekið á dagskrá. Svo getur hver sem vill ályktað af þessum staðreyndum, hvort það muni vera fyrir brennandi áhuga n. og frsm., að málið er nú loks knúið fram.