17.04.1946
Neðri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í C-deild Alþingistíðinda. (3905)
96. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði
Pétur Ottesen:
Herra forseti. Í rökst. dagskránni er talað um nauðsyn bættra hafnarskilyrða vegna fiskveiða. Þetta hef ég brýnt fyrir hæstv. Alþ. í sambandi við fiskiskipakaupin, að nú þurfi að hefja stórt átak og að það verði hafið nú, þannig að aukningu skipaflotans verði búin þau skilyrði, að öruggt væri um geymslu þessara dýru báta. Þessu máli hefur ekki verið sinnt sem skyldi.
Aðgerðir Alþ. eru ekki í samræmi við það, sem nauðsynlegt má teljast. Nú vil ég láta hefja rannsóknir í þessu efni á nokkrum stöðum á landinu. Mér er sama, hver stendur að þessum aðgerðum, bara ef þær eru gerðar í tíma, en ekki í ótíma. Hér er lagt til, að rannsókn fari fram, en er ekki um neina lausn, sem kemur að haldi, heldur aðeins rannsóknir, en þær skapa ekkert öryggi út af fyrir sig. Nú hef ég reynt að bæta úr með frumvarpi, sem ég flyt ásamt þremur öðrum hv. þdm. Ég vænti þess, að þetta bæti úr og að hæstv. ríkisstj. verði leyft að taka lán til þessa, og mæli ég því ekki með, að hin rökst. dagskrá verði samþ., en ef frv. er samþ., þá er það styrkur til skjótra framkvæmda. Ég legg áherzlu á, að hv. alþm. taki höndum saman og gangi frá þessu verkefni og veiti því afgreiðslu á þessu Alþ., sem nú situr, og að það verði síðan tekið fyrir af hæstv. ríkisstj., og ég veit, að hæstv. samgmrh. hefur sýnt málinu skilning og hefur ekki slakað á klónni um það.