17.04.1946
Neðri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í C-deild Alþingistíðinda. (3906)
96. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Þessi ræða hv. þm. Borgf. gaf mér tilefni til að taka hér til máls. Hv. þm. hélt því fram, að hafnarmálum hefði ekki verið sinnt sem skyldi, en ég fullyrði, að meiri ráðstafanir hafi verið gerðar á þessu þingi en nokkru sinni áður í þessu efni. Ég vil benda á, að á þessu þingi var samþ. frv. til 1. um hafnargerðir og lendingarbætur, og kannast ég því ekki við þetta, og er hæpið, hvort hægt sé að framkvæma meira á þessu ári en þegar er ákveðið.
Ég tel, að með því fjármagni, sem fyrir er, er varla hægt að framkvæma meira. Hv. þm. sagði, að rannsóknir væru góðar, en ekki nægar, en það er nú einu sinni svo, að alltaf verður að byrja á rannsóknunum.
Hv. þm. N.-Þ. skal ekki vera óánægður með þetta mál. Afgr. er hliðstæð í Höfn og Þórshöfn, en það eru einu staðirnir, sem nefndir eru. Hann spurði um rannsókn, og mun ég stuðla að því. Annars lýsti þessi hv. þm. ánægju og trausti á sjútvn.